Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 2010
Prjónum saman er fyrsti íslenski prjónakennslu DVD-disk-
urinn. Á disknum kennir Ragnheiður Eiríksdóttir rúmlega
40 aðferðir í prjóni. Um leið er farið í uppskriftirnar sem
fylgja disknum.
Heimild: www.blog.eyjan.is/ragnheidur
Rithöfundurinn Auður Haralds
er enginn kreppuprjónari enda
hefur hún prjónað frá því að hún
man eftir sér. „Þegar ég var veik
sem barn voru mér fengnir hnykl-
ar, prjónar og heklunál og sagt
að hafa ofan af fyrir mér í rúm-
inu. Ég hef verið með eitthvað á
prjónunum síðan.“
Auður prjónar húfur, grifflur og
kraga sem fást í Handprjónasam-
bandinu en vörurnar eru sérstak-
lega vinsælar meðal ferðamanna.
„Það er vegna þess að ég prjóna
í lit öfugt við flesta Íslendinga
sem virðast eiga erfitt með að sjá
lífið í öðru en svart-hvítu. Ferða-
mennirnir eru hins vegar hrifn-
ir af litum og með þessu bjarga
ég þjóðinni um nokkrar evrur og
dollara,“ segir Auður sem er sjálf
þekkt fyrir litríkan klæðaburð og
hefur prjónað á sjálfa sig alla tíð.
Auður notar að lágmarki tvo liti og
leikur sér með útprjón, perluprjón
og flúr af ýmsu tagi. „Ég geri þó
stöku einlitar grifflur enda seljast
þær betur en mér leiðist þó ferlega
að prjóna einlitt.“
Auður hefur komið sér upp
nokkrum vörumerkjum sem hún
notar með mismunandi hætti.
„Easy Rider heita vörurnar sem ég
sel, Pólska prjónastofan það sem ég
gef og þegar ég geri eitthvað alveg
sérstakt fær það nafnið Sameinuðu
jórturdýrin enda er það yfirleitt úr
kinda-, geita- og lamaull og jafnvel
með stöku kattarhári.“
Auður hefur áralanga reynslu
af íslensku ullinni og segir ekkert
betra. „Ég las nýlega rannsókn sem
leiddi í ljós að hún er miklu betri en
allur þessi hátækni útivistarfatnað-
ur sem þarf að borga lifur og lungu
fyrir.“ Auður er sannfærð um eitt:
„Það verða prjónandi konur sem
draga þetta land á ullarhárinu upp
úr Icesave.“ vera@frettabladid.is
Leiðist að prjóna einlitt
Auður Haralds sér lífið í lit sem endurspeglast í prjónaverkum hennar sem fæst eru einlit. Hún hefur
verið með eitthvað á prjónunum frá því að hún man eftir sér og prjónað bæði á sig og aðra.
Auður notar að lágmarki tvo liti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Áralöng prjónareynslan leynir sér ekki.
Auður prjónar allt á sjálfa sig nema
vettlinga. Hún eyðir ekki vinnu í þá enda
ferðast hún um á hjóli og eiga þeir það
til að slitna.