Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 4
4 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR Í Fréttablaðinu í gær var rangt farið með nafn stigahæsta ræðumanns í mælsku- og rökræðukeppni grunn- skóla Reykjavíkur og nágrennis, MORGRON. Stigahæsti ræðumaður- inn var Ásdís Kristjánsdóttir. Þá voru ummæli Ásdísar í viðtalinu eignuð rangri manneskju: „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og margt sem maður hefur lært, ekki bara að halda ræður og koma fram heldur er keppn- in góð æfing í rökhugsun þar sem maður þarf að kryfja allt til mergjar.“ LEIÐRÉTTING KÖNNUN Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, nýtur mests stuðn- ings í embætti bæjarstjóra, sam- kvæmt könnun Fortuna sem gerð var fyrir Samfylkinguna í Kópa- vogi. Alls sögðust 27,5 prósent þeirra sem þátt tóku í könnun- inni styðja Guðríði. Ármann Kr. Ólafsson, odd- viti sjálfstæðismanna, nýtur samkvæmt könnuninni stuðn- ings 20,9 prósenta Kópavogs- búa. Litlu færri vilja Gunnar I. Birgisson sem næsta bæjarstjóra í Kópavogi. Gunnar, sem er þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokks- ins, nýtur stuðnings sautján pró- senta. Ármann og Gunnar háðu harðvítuga baráttu um fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokks- ins fyrir kosningarnar. Um níu prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni nefndu Ólaf Þór Gunnarsson, oddvita Vinstri grænna í Kópavogi, og 4,3 prósent nefndu Ómar Stefánsson, oddvita Framsóknarflokksins. Rúmlega 17 prósent nefndu aðra og tæplega fjögur prósent vildu ópólitískan bæjarstjóra. Um var að ræða netkönnun sem stóð yfir dagana 16. til 21. apríl. Úrtak könnunarinnar voru 800 manns á kosningaaldri, vald- ir úr þjóðskrá. Spurt var: Hver telur þú farsælast að verði næsti bæjarstjóri í Kópavogi? Svar- hlutfall í könnuninni var 61,8 prósent. - bj Svipaður stuðningur við Ármann Kr. Ólafsson og Gunnar I. Birgisson í Kópavogi: Flestir vilja Guðríði sem næsta bæjarstjóra ÁRMANN KR. ÓLAFSSON GUNNAR I. BIRGISSONGUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR STJÓRNSÝSLA Má Guðmundssyni var heitið því að hann myndi njóta sömu kjara og forveri hans þegar hann sótti um embætti seðlabanka- stjóra síðastliðið vor. Áður en hann var skipaður í emb- ætti lá fyrir að lögum um Seðla- bankann yrði breytt og kjararáði falið að ákveða laun og starfskjör seðlabanka- stjóra í stað bankaráðs. Morgun- blaðið upplýsti í gær að Lára V. Júlíusdótt- ir, formaður bankaráðs Seðlabank- a ns , hefði lagt til að Má yrði bætt upp kjararýrnun í k j ö l f a r ákvörðunar kjararáðs frá í febrúar. Sam- kvæmt tillög- unni hækka laun hans um 400 þúsund krónur á mánuði, úr þeim tæpu 1.270 þúsund krónum sem kjara- ráð ákvað í tæpar 1.670 þúsund krónur. „Það er verið að efna samkomu- lag sem gert var við Má Guðmunds- son þegar hann kom til starfa,“ segir Lára V. Júlíusdóttir. Hún vildi ekki upplýsa hver gerði sam- komulagið af hálfu stjórnvalda en vísaði á forsætisráðuneytið. „Það var um það rætt að svona hefði verið gengið frá málum við hann og ég er ekki að gera annað en að fylgja því eftir.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra vildi ekki ræða málið við Fréttablaðið í gær en sendi frá sér orðsendingu þar sem hún sagð- ist engin loforð eða fyrirheit hafa gefið um væntanleg launakjör seðlabankastjóra. Í orðsendingunni kom líka fram að Jóhanna leggist gegn launahækkuninni. Seðlabankinn heyrði undir for- sætisráðuneytið þar til í haust þegar hann færðist undir efna- hags- og viðskiptaráðuneytið. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, tók í sama streng og Jóhanna í samtali við Fréttablaðið. Kvaðst hann vonast til að tillagan yrði dregin til baka. Tillaga Láru um launahækkun er sett fram í krafti lagaákvæðis um að bankaráðið ákveði bið- og eftirlaunarétt seðlabankastjóra „og önnur atriði sem varða fjár- hagslega hagsmuni hans“. Að mati Guðrúnar Zoëga, for- manns kjararáðs, er með þessu verið að „notfæra sér glufu í lög- unum“ eins og hún orðaði það. Við- líka lagaákvæði sé ekki að finna í lögum um aðrar stofnanir. Bankaráð Seðlabankans fundar undir lok mánaðarins. Lára V. Júlí- usdóttir sagði aðspurð að svo kunni að fara að tillagan um launahækk- un verði dregin til baka áður en til fundarins kemur. bjorn@frettabladid.is Samið við Má um að launin lækkuðu ekki Gert var samkomulag við Má Guðmundsson um að hann myndi njóta sömu kjara og forveri hans í embætti seðlabankastjóra. Tillaga þar um liggur fyrir bankaráði. Formaður kjararáðs telur tillöguna byggða á glufu í lögum. MÁR GUÐMUNDSSON SEÐLABANKASTJÓRI Kjararáð ákvað í febrúar að seðlabanka- stjóri ætti að fá 862 þúsund á mánuði auk 404 þúsund króna fyrir yfirvinnu og álag. Um leið voru bílahlunnindi hans færð inn í launin en áður hafði Seðlabankinn lagt bankastjóranum til bíl og greitt allan kostnað af rekstri hans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Það var um það rætt að svona hefði verið gengið frá málum við hann og ég er ekki að gera annað en að fylgja því eftir. LÁRA V. JÚLÍUSDÓTTIR FORMAÐUR BANKARÁÐS SÍ DÓMSMÁL Karlmaður sem hótaði fimm lögreglumönnum ítrekað lífláti í ágúst 2008 hefur verið dæmdur í eins mánaðar skilorðs- bundið fangelsi. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, hótaði lögreglu- mönnunum í lögreglubifreið á leið frá veitingastað við Tryggva- götu að lögreglustöðinni við Hverfisgötu og í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar. Hann ját- aði brot sitt. Rannsókn málsins og útgáfa ákæru dróst og telur héraðsdóm- ur það aðfinnsluvert. Með vísan til þess taldi dómurinn að eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi væri hæfileg refsing. - jss Fundið að drætti á ákæru: Hótaði lögreglu- mönnum lífláti HEILBRIGÐISMÁL Geðraskanir eru algengasta orsök örorku á Íslandi. Af um fimmtán þús- und einstaklingum sem metnir eru með yfir 75 prósenta örorku voru 37 prósent haldnir geðrösk- unum í fyrra. Þar á eftir fylgja stoðkerfissjúkdómar. Mun fleiri konur en karlar eru öryrkjar, en um níu þúsund konur eru með yfir 75 prósent örorku en sex þúsund karlar. Algengasta orsökin á meðal kvenna eru stoð- kerfissjúkdómar, árið 2009 voru rúmlega 3.100 konur öryrkjar af þeim völdum, en tæplega 3.100 voru með geðraskanir. Hjá körlum eru geðraskanir langalgengasta orsök örorku, rúmlega 2.600 voru öryrkjar af þeirra völdum í fyrra. Næst fylgja stoðkerfissjúkdómar, sem voru orsök örorku rúmlega 1.000 manns. - sbt 15 þúsund öryrkjar 2009: Geðraskanir helsta orsökin Anand enn með forystu Jafntefli varð í gær í sjöundu skákinni í heimsmeistaraeinvíginu milli Viswan- athans Anand og Veselins Topalov. Tefld var Katalónsk byrjun. Topalov var með svart og fórnaði skiptamun í byrj- uninni og úr varð æsileg barátta sem endaði með jafntefli. Anand er því enn með vinning í forskot. SKÁK FRAKKLAND, AP Alþjóðlegu sam- tökin Fréttamenn án landamæra hafa sett Vladimír Pútín, forsæt- isráðherra Rússlands, og Hu Jint- ao Kínaforseta á lista sinn yfir helstu óvini fjölmiðlafrelsis. Á listanum eru 40 stjórnmála- menn, embættismenn, trúar- leiðtogar, herflokkar og glæpa- samtök sem „geta ekki þolað fjölmiðla, líta á þá sem óvini sína og ráðast beint á fréttamenn“. Af öðrum á listanum í ár má einnig nefna Mahmoud Ahmad- inejad Íransforseta og Robert Mugabe, forseta Simbabve. - gb Fréttamenn án landamæra: Fjörutíu óvinir fréttafrelsis HU JINTAO OG VLADIMÍR PÚTÍN Báðir á listanum. NORDICPHOTOS/AFP AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 03.05.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 226,6555 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 128,14 128,76 195,45 196,41 169,52 170,46 22,773 22,907 21,572 21,700 17,643 17,747 1,3612 1,3692 193,11 194,27 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR HEYRNARSTÖ‹IN Læknastö›in, Kringl unni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 18° 14° 16° 10° 15° 8° 11° 11° 20° 11° 17° 28° 34° 8° 12° 15° 9°Á MORGUN 3-8 m/s, S-læg eða breytileg átt. FIMMTUDAGUR Hægviðri en 6-13 m/s, NV-til. 10 4 9 5 58 10 7 12 5 76 12 3 11 3 14 5 8 4 4 5 11 9 10 11 16 11 10 14 16 14 HÆGVIÐRI Hæða- svæði suður af landinu sér okkur fyrir hægum vindi og mildu veðri næstu daga. Í fyrra- málið má búast við vætu V-lands en úrkomusvæðið færir sig norðaustur á bóginn er líður á daginn. Á fi mmtu- dag er útlit fyrir bjart og milt veður víðast hvar. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.