Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 44
28 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
BAKÞANKAR
Önnu
Margrétar
Björnsson
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Sigga, þetta
er Carlos í
prófunar-
deildinni...
SVART OG
SYKURLAUST
Íslenska
kaffiverksmiðjan
Koma svo...
rólegur... vippa oní
fötuna...
Ég er með fersk-
an ávaxtasafa
handa þér
Haraldur!
Muntu ekki næla þér í
nokkrar krónur fyrir að
fara holu í höggi?
Jú! Hálf milljón!
Þær fara í tann-
læknareikning!
Svo á ég
vonandi
fyrir nýjum
gleraugum og
nýju golfsetti!
Ég ætla að
sofa uppi á
þaki í nótt. Á þaki? Af hverju?
Lífið er of stutt til að
eyða heilli sumar-
nótt í að sofa undir
þakplötum!
Kærar þakkir fyrir
hugmyndina
Þetta var reyndar
yfirlýsing, ekki boð!
Við skulum
þvo gluggana
um helgina!
Ókei, en þú verður
að lofa mér því
að ég fái að þrífa
þakrennurnar líka.
Ókei, en bara í
þetta skiptið.
Þetta átti að
vera kaldhæðni!
Fyrir nokkrum mánuðum horfði ég á skondna „heimildar“-mynd frá sjöunda
áratugnum sem fjallaði um eðluverur eða
„reptilians“ sem búa í iðrum jarðar. Þessar
verur komu samkvæmt þessari kenningu
frá geimnum og hreiðruðu um sig neðan-
jarðar fyrir mörgum þúsundum ára síðan.
Ég er gífurlegur skeptíker að eðlisfari en
að sama skapi finnst mér óráðlegt að úti-
loka neitt í þessum heimi. Eðlufólk í iðrum
jarðar eða litlir gráir karlar að sveima um
himingeiminn í silfurlitum furðuhlutum
gætu, þannig séð, auðvitað verið til.
INNRÁSIR frá Mars og fljúgandi furðuhlut-
ir hafa áratugum saman verið viðfangsefni
fjölmargra bóka og kvikmynda enda nokk-
uð augljóst að það hlýtur að vera einhvers
konar líf úti í hinum endalausa alheimi.
Sporöskjulaga geimfar á Youtube sem
sást fljúga í öskumekkinum yfir Eyja-
fjallajökli var að minnsta kosti kær-
komin tilbreyting frá vandræðalegum
fréttum af iðrunarlausum stjórn-
málamönnum og athafnamönnum
sem benda hver á annan. Geimverur
eru ávallt hressandi.
FYRIR tveimur árum síðan sendi
NASA Bítlalag út í geiminn í átt
að stjörnunni Polaris í þeirri von
að finna einhvers konar merki
um vitrænt líf úti í geimnum. Það
tekur um 430 ár fyrir lagið að ferð-
ast á áfangastað en stjörnufræðingar hlusta
grannt eftir svari. Það væri auðvitað stór-
fenglegt að fá loks staðfestingu á því að það
séu til fleiri en við mannfólkið í alheimin-
um en svo er auðvitað spurning um hvort
geimverur muni deila sama tónlistarsmekk.
Hver veit nema að „þeir“ fíli ekkert nema
mínimal teknó og dauðarokk og verði gífur-
lega pirraðir á gaulinu í Paul McCartney.
Guði sé lof að við sendum ekki Phil Collins.
TÖFFARINN í hjólastólnum, eðlisfræðing-
urinn Stephen Hawking, benti einmitt á
það fyrir stuttu að það væri ekkert svaka-
lega sniðugt að senda einhvern mannlegan
hressleika út í himingeiminn og vonast
eftir vinveittu svari. „Ef geimverur koma
til jarðarinnar verður útkoman áreiðanlega
svipuð og þegar Kólumbus sigldi til Amer-
íku en slíkt var ekki mjög hagstætt fyrir
frumbyggjana,“ segir Hawking og benti
á að jarðarbúar ættu frekar að gera allt
sem þeir geta til þess að enginn taki eftir
þeim. En þetta er bara allt of seint í rass-
inn gripið hjá Hawking. Geimverur hafa
áreiðanlega dundað sér áratugum saman
við að horfa á fréttaútsendingar frá jörð-
inni. Þær vita örugglega allt um hver vann
Idol og Euro vision, hvaða lag með Lady Ga
Ga er á toppnum og hvað Simmi og Jói eru
að bardúsa. Ef geimverur voru yfirleitt að
fljúga ofan í gíginn á Eyjafjallajökli um
daginn voru þeir örugglega bara að leita að
„off“-takkanum.
Fíla geimverur Bítlana?
Þriðjudagsbrjálæði
Hreinsum til á lagernum
3 verð;
2000 kr, 3000 kr og 5000 kr
Toppar
Skokkar
Bolir
Pils
Jakkar
Kápur
Kjólar
Leðurjakkar
og margt fl eira
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Suðurnesjum
Húsavík
Stigar og tröppur
til allra verka