Fréttablaðið - 04.05.2010, Side 8
8 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1 Hvað heitir snókerspilarinn
sem er sakaður um mútuþægni?
2 Hvað heitir olíuborpallurinn
sem sökk á Mexíkóflóa 22.
apríl?
3 Hvar er heimssýningin EXPO
2010 haldin?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
NÁM Verzlunarskóli Íslands er eftirsóttur hjá
tíundu bekkingum ef marka má forkönnun
menntamálaráðuneytisins. Alls setti 451 nemi
skólann í fyrsta sæti en 184 í annað sæti, saman-
lagt 635 nemendur. Verzlunarskólinn hefur 308
pláss fyrir fyrsta árs nema. Ef lagt er saman
fyrsta val nema í framhaldsskólana á höfuð-
borgarsvæðinu og borið saman við fjölda plássa
kemur í ljós að 2.834 setja skóla á höfuðborgar-
svæðinu í fyrsta sæti, en plássin þar eru 2.621
og munar þar rúmlega 200. Sigurbjörg Jóhann-
esdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðu-
neytinu, segir skýringuna meðal annars vera
umsóknir nema utan af landi. Verið sé að leita
leiða til að koma til móts við óskir tíundu bekk-
inga, hugsanlega verði fjármagn flutt á milli
skóla. Á landsvísu eru nægilega mörg pláss í
framhaldsskólum fyrir tíundu bekkinga.
Nemendur máttu velja tvo skóla en umsókn-
irnar eru ekki bindandi enda fylgdu ekki ein-
kunnir með, tilgangurinn var að kanna dreif-
ingu umsókna í skóla. Tíundu bekkingar geta
svo breytt umsókninni í júní eða látið hana
standa.
Á höfuðborgarsvæðinu eru fæstar umsókn-
ir í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ, 18 velja
hann í fyrsta sæti, 24 í annað en rúm er fyrir
100 nemendur þar. 39 settu Fjölbrautaskólann
við Ármúla sem fyrsta val en 140 sem annað
en hann tekur við 180 nemendum. Þeir eru einu
skólarnir á höfuðborgarsvæðinu sem færri
nemendur velja en pláss er fyrir. - sbt
200 fleiri vilja í skóla á höfuðborgarsvæðinu en rúm er fyrir:
Flestir tíundu bekkingar vilja í Versló
Þegar skoðaður er fjöldi umsókna í framhalds-
skólana samanborið við fjölda plássa munar
mestu í MH, 623 sóttu um hann í val eitt og tvö
en skólinn hefur 220 pláss. Næstur í röðinni er
Kvennaskólinn í Reykjavík, þar sækja 387 fleiri
um en pláss er fyrir, svo kemur Menntaskólinn
við Sund, þar munar 384 plássum, svo Verzlun-
arskóli Íslands, þar munar 327 plássum. Fimmti
í röðinni er Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, þar
munar 297 plássum.
Vinsælastir
FLÓAHREPPUR Sveitarstjórn Flóa-
hrepps hefur skuldbundið hrepp-
inn til að greiða vel á þriðja hundr-
að milljóna króna fyrir vatnsveitu
verði Urriðafossvirkjun ekki sett
á aðalskipulag hreppsins.
„Okkur finnst þetta hreinlega
ekki lýðræðislegt,“ segir Svanhvít
Hermannsdóttir. Hún skipar fyrsta
sætið á lista T-framboðsins, sem er
andvígt Urriðafossvirkjun. „Það
sem vekur fyrst og fremst undrun
okkar er að þetta skuli vera keyrt
í gegn mánuði fyrir kosningar, og
án allrar umræðu.“
Urriðafossvirkjun er eitt af
stóru kosningamálunum í hreppn-
um, og segir Svanhvít að eðlilegt
hefði verið að leyfa íbúum að kjósa
um stefnu sveitarfélagsins í þeim
málum.
Forsvarsmenn Flóahrepps og
Árborgar undirrituðu samning
um vatnveitu 26. apríl síðastliðinn.
Í samningnum, sem Fréttablaðið
hefur undir höndum, kemur fram
að hann er óuppsegjanlegur. Kom-
ist andstæðingar virkjunarinnar
til valda eftir kosningar verða þeir
annaðhvort að samþykkja Urriða-
fossvirkjun eða greiða kostnaðinn
við vatnsveituna að fullu.
Vatnsveitan verður hluti af mót-
vægisaðgerðum Landsvirkjunar
vegna Urriðafossvirkjunar. Kom-
ist virkjunin á aðalskipulag mun
Landsvirkjun því greiða allan
kostnað við vatnsveituna. Vatnið
mun koma frá Árborg, en vatns-
skortur hefur verið í Flóahreppi á
þurrkaköflum síðustu sumur.
Þar kemur fram að framkvæmd-
ir verði á þessu ári og því næsta.
Kostnaður við vatnsveituna verð-
ur 117 milljónir króna á þessu
ári. Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Flóahrepps, segir að kostnaður á
næsta ári verði svipaður, og heild-
arkostnaður því á bilinu 200 til 300
milljónir króna.
Þetta eru háar fjárhæðir fyrir
600 manna sveitarfélag, segir Svan-
hvít. Hún vill að rannsakað verði til
hlítar hvort hægt sé að bora eftir
köldu vatni í sveitar félaginu og
spara með því mikið fé.
Aðalsteinn segist ekki viss um
að hægt hefði verið að afla sveitar-
félaginu vatns með ódýrari hætti, í
það minnsta ekki með jafn góðum
og öruggum hætti.
Spurður hvers vegna svo
umdeild ákvörðun sé tekin aðeins
mánuði fyrir kosningar segir Aðal-
steinn að örlögin hafi einfaldlega
hagað málum þannig. Til hafi stað-
ið að ljúka málinu fyrr, en það hafi
ekki tekist.
Sveitarstjórn Flóahrepps hefur
enn ekki staðfest samninginn, en
hann verður tekinn fyrir á fundi
annað kvöld. brjann@frettabladid.is
Eðlilegra væri
að fá að kjósa
um virkjun
Flóahreppur þarf að greiða allt að 300 milljónir
króna fyrir vatnsveitu samþykki sveitarstjórn ekki
Urriðafossvirkjun. Ekki lýðræðislegt að semja svona
mánuði fyrir kosningar, segir frambjóðandi.
RAFORKA Landsvirkjun er tilbúin til að greiða kostnað við vatnsveitu í Flóahreppi, og
telur það hluta af mótvægisaðgerðum vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
U M A L L
T
LA
N
D
Keppt er um:
Flesta þátttökudaga
Flesta kílómetra
5.-25. maí
Vinnustaðakeppni
Skráning og nánari upplýsingar
á vefsíðunni: hjoladivinnuna.is
Nú látum við hjólin snúast
um allt land!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/Í
S
Í
49
83
3
03
/1
0
Samstarfsaðilar
Vertu með!
Ólympíufjölskyldan
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn á
Akranesi áttu erindi við einn af
„góðkunningjunum“ um helgina og
voru staddir í anddyri íbúðar sem
hann býr í er þeir veittu athygli
tveimur litlum pakkningum sem
hann hafði kastað á gólfið. Reynd-
ist vera amfetamín í báðum og við
húsleit sem gerð var í framhaldinu
fannst þriðja pakkningin. Maður-
inn var færður til yfirheyrslu og
viðurkenndi hann að eiga efnin og
sagði þau hafa verið ætluð til eigin
neyslu. Annar maður var svo hand-
tekinn aðfaranótt sunnudags með
lítilræði af amfetamíni í fórum
sínum. - jss
Lögregla hitti „góðkunningja“:
Kastaði amfeta-
míni í gólfið
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
LÖGREGLUMÁL Bifhjólaslys varð á
Biskupstungnabraut við Múla um
klukkan tíu í fyrrakvöld.
Ökumaður bifhjólsins missti
stjórn á því með þeim afleiðing-
um að það fór út fyrir veg þar
sem það hafnaði á hliðinni. Far-
þegi var á hjólinu og var hann
ásamt ökumanni fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild Land-
spítala. Ekki er ljóst með meiðsli
en þau munu þó ekki alvarleg,
samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Selfossi. - jss
Tveir slösuðust:
Bifhjólaslys
varð við Múla
VEISTU SVARIÐ?