Fréttablaðið - 04.05.2010, Side 22
HANNYRÐIR SAUMAKLÚBBURINN er snið-ugur áskriftarklúbbur fyrir áhugafólk um hannyrðir. Nánar á www.klubbhusid.is.
Heill árgangur stúlkna í Borga-
skóla tók þátt í prjónaklúbbnum
sem varð til síðastliðið haust
innan skólans. Þær eru, eða
verða, allar tíu ára á þessu ári.
Áhuga þeirra á prjónaskapnum
má rekja til einnar móðurinnar,
Arndísar Hilmarsdóttur kennara,
sem hefur smitað svona rækilega
út frá sér, ekki bara til bekkjar-
systra dóttur sinnar heldur til
mæðra þeirra líka.
„Okkur foreldrunum fannst
nóg að hafa klúbbinn hálfsmánað-
arlega en stelpurnar vildu hittast
oftar,“ segir Arndís glaðlega. Hún
segir mæðurnar mæta oftast líka
með sína handavinnu, spjalla
saman og kynnast og einn föður
hafa komið einu sinni. Af einhverj-
um ástæðum virðist prjónaáhugi
mjög kynbundinn og höfða meira
til kvenþjóðarinnar.
Ýmislegt fallegt liggur eftir
stúlkurnar á prjónasviðinu eins og
vænta má að vetri liðnum. Húfur,
treflar, töskur og veski hafa orðið
til í klúbbnum og hulstur utan um
farsíma eru líka á afrekaskránni.
Arndís kveðst hafa byrjað á að
prjóna sýnishorn af nokkrum
hlutum sem þær gætu farið eftir
og sett suma þeirra í þvottavél til
þæfingar. Það hefur orðið vinsæl
meðhöndlun á hlutunum, sérstak-
lega á það við um töskurnar.
Engar tvær stúlkur hafa gert
nákvæmlega eins hluti í klúbbnum
nema hvað fyrir jólin var herferð
í að gera jólasveinahúfur úr rauðu
bómullargarni og hvítu loðgarni.
„Þær skelltu sér allar í húfuprjón
þá,“ segir Arndís og hrósar litlu
dömunum óspart fyrir dugnað í
vetur. gun@frettabladid.is
Hittast með prjónana
Þær eru hressar stelpurnar í Borgaskóla í Grafarvogi sem hafa hist hálfsmánaðarlega utan skólatíma í
vetur með prjónana sína og alla vega lita hnykla og dokkur. Svo hefur margt fallegt fæðst.
Foreldrunum fannst nóg að hafa klúbbinn hálfsmánaðarlega en þær vildu hittast oftar enda eru þær iðjusamar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tveggja kvölda námskeið í
víravirkistækni verður haldið
í Handverkshúsinu í Bolholti í
Reykjavík 20. og 27. maí.
Þangað geta byrjendur komið og
farið heim með kross eða eyrna-
lokka sem þeir hafa gert með
eigin hendi. Aðferðin hefur verið
notuð um aldir í þjóðbúningagerð
á Íslandi.
„Lykillinn að okkar námskeið-
um er sá að við komum fólkinu
af stað, sýnum því aðferðirn-
ar og svo æfir það sig heima,“
segir Þorsteinn Eyfjörð, eigandi
Handverkshússins. Hann kveðst
selja efni og græjur sem við þurfi
þannig að fólk geti haldið áfram
að stunda þá iðju sem það lærir.
„Námskeiðin eru öll hugsuð
þannig að fólk geti unnið heima á
eldhúsborðinu.“ - gun
Læra handtökin
Kross er eitt fyrsta verkefnið sem nem-
endur spreyta sig á í víravirkistækninni.
MYND/HANDVERKSHÚSIÐ
Súluhöfða 15 – 270 Mosfellsbæ
s: 895 6086
Opnunartímar: mánud. – föstud.
milli kl:13:00–18:00
GÆÐA GARN
Á GÓÐU VERÐI
Heildsöludreifing: Satúrnus ehf. Brautarholti 4A, Reykjavík.
Fæst í hannyrðavöruverslunum
Gæða
prjónar
Eftirlæti
hand
a þi
nna