Fréttablaðið - 04.05.2010, Side 31
vorverkin ● fréttablaðið ●ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 2010 7
Barátta við mosa er mörgum höf-
uðverkur, en þessi vágestur lætur
iðullega á sér kræla á vorin sem
er hans helsti vaxtartími. Best er
að fara vopnaður annaðhvort hrífu
eða mosatætara út í garð eftir
magni mosans og bera kalk á flöt-
ina þegar verkinu er lokið, þar sem
mosinn þrífst verr í kalríkum jarð-
vegi. Þá er tilvalið að bera áburð
á flötina svo grasið nái yfirhönd-
inni í baráttunni við mosann og
er best að gera það í maí, júní og
júlí meðan á vaxtartíma grassins
stendur.
Burt með allan mosa
Nú er tímabært að láta til skarar skríða
gegn mosanum.
● RÉTT ÁHÖLD Þótt ekki sé runninn upp tími trjáklippinga er mikil-
vægt að hafa réttu áhöldin þegar að þeim kemur í sumar. Best er að nota
sög til að klippa stórar trjágreinar en hvassar klippur á þær minni. Áríð-
andi er að áhöldin rífi ekki eða særi heldur skilji eftir sig snyrtileg og
hrein sár, sem trén loka síðan með kvoðu eða safa á réttu árstímunum.
Þar sem safastreymi er minna á haustin er hins vegar hætt við að sárin
lokist ekki og því getur óværa komist í þau og inn í vef trésins. Því er
betra að klippa á sumrin.
● NEYÐARKALL Ekki eru
allir svo lánsamir að vera með
græna fingur auk þess sem
sum garðverk eru hreinlega
þess eðlis að vana menn þarf
í verkið. Á Íslandi eru starfrækt
fjölmörg fyrirtæki sem annast
helstu garðverk, svo sem að
fella og fjarlægja tré og annan
garðúrgang, hlaða grjótveggi,
leggja rotþrær og margt fleira.
Þeirra á meðal er fyrirtækið
Vorverk en um það má lesa á
www.vorverk.is.
● GLANSANDI FÍNIR GLUGGAR AÐ VORI Blessuð sólin elskar
allt segir í kvæðinu enda tökum við henni fagnandi þegar fer að vora. Sól-
argeislarnir afhjúpa þó illilega óhreinindin á gluggarúðunum svo eitt af
vorverkunum er að þrífa gluggana.
Einfaldast er að blanda uppþvottalegi út í volgt vatn til að þvo rúðurnar
upp úr en líka er hægt að blanda einum desilítra af borðediki út í einn
lítra af vatni. Edikið verkar vel á fitu og býr til gljáa. Þegar rúðurnar eru
þvegnar er gott að bleyta þær vel með svampi eða gömlu handklæði þar
til óhreinindin eru laus. Þá skal skafa rúðuna með gúmmísköfu og varast að
skilja eftir línur og tauma á glerinu, best er að skafa alltaf í sömu átt. Ef ekki
er gúmmískafa við höndina skal þurrka rúðuna með mjúkum klút og pússa
jafnvel með dagblöðum en prentsvertan eykur einnig gljáa. Þótt gott sé að
sinna útiverkum í sólinni eru sólskinsdagar ekki hentugir til gluggaþvotta
þar sem sólin þurrkar rúðuna hratt og hættara er við að taumar myndist.
Kemur út fi mmtudaginn 6. maí
Sérblað
um grill
Auglýsendur vinsamlegast hafi ð samband
Benedikt • bfj@365.is • Sími 512 5411
Sigríður • sigridurdagny@365.is • Sími 512 5462