Fréttablaðið - 04.05.2010, Qupperneq 46
30 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Söngkonan Alic-
ia Keys segist
aldrei nota tækn-
ina sem er í boði
í hljóðverum til
að betrumbæta
rödd sína. Þess
í stað treystir
hún algjörlega á
sína eigin rödd.
„Ég nota aldrei
„Auto-Tune“ eða
eitthvað í þeim dúr. Ég vil ekki
sjá svoleiðis hugbúnað. Mér er
sama þótt aðrir noti hann en ef ég
get ekki sungið lagið upp á eigin
spýtur þá tek ég það ekki upp,“
sagði Keys. Hún er dugleg við að
semja ný lög og notar oft farsím-
ann þegar sköpunargáfan kemur
yfir hana. „Ég punktaði smá niður
á símann minn fyrir nokkrum
dögum. Það er gömul hugmynd að
lagi sem kallast Holy Love.“
Treystir bara
á eigin rödd
ALICIA KEYS
> EKKI LENGI AÐ ÞESSU
Leikkonan Halle Berry tilkynnti í síðustu viku
að samband hennar og fyrirsætunnar Gabri-
el Aubry væri á enda. Um helgina skellti
Berry sér svo í leikhús með nýjum
manni og leiddust þau að sýning-
unni lokinni. Ekki hefur fengist
staðfest hver nýi maðurinn er
né hvers eðlis samband þeirra
er. Sumir miðlar vilja meina að
hann sé gamall vinur en aðrir
segja að ástin blómstri á ný.
Safta Jaffery, viðskiptaráðgjafi
Muse og umboðsmaður hljóðupp-
tökustjóra, verður á mælendaskrá
þeirra sem koma fram á fræðslu-
kvöldi Útón í Norræna húsinu í
kvöld. Safta stofnaði árið 1996
framleiðslufyrirtækið Taste Media
og ári síðar kynntist hann Muse
í gegnum umboðsmann Dennis
Smith, eiganda Sawmills-hljóð-
versins. Þeir lögðu saman grunn-
inn að velgengni Muse og Safta er
enn þá einn helsti viðskiptaráð-
gjafi hljómsveitarinnar. Þess má
geta að Safta var á meðal gesta í
kynningarpartíi Útóns í Los Ang-
eles á dögunum þar sem Emilíana
Torrini tróð upp. Ásamt Safta
tala á fræðslukvöldinu þau Eiður
Arnarsson, útgáfustjóri hjá Senu,
Tómas Þorvaldsson lögmaður og
Silja Bára Ómarsdóttir. Skráning á
fræðslukvöldið fer fram hjá thor-
ey@utflutningsrad.is.
Muse-maður
heldur ræðu Ása Ninna Pétursdóttir fatahönn-
unarnemi var fengin til að hanna
nýja kjóla á Jórukórinn frá Sel-
fossi. Ása Ninna flutti nýverið heim
eftir tveggja ára dvöl í Danmörku
og bauðst henni að taka að sér verk-
efnið stuttu eftir heimkomuna.
„Einn kórmeðlimurinn hafði eitt
sinn keypt kjól af mér og hún bauð
mér verkefnið. Mér fannst þetta
mjög spennandi og ákvað að slá til.
Ég vildi ekki gera hefðbundna kjóla
á þær heldur ákvað að gera kjóla
sem innblásnir voru af páfuglunum
sem ég hafði séð í Tívolíinu í Kaup-
mannahöfn þannig að kjólarnir eru
mjög skrautlegir,“ útskýrir Ása
Ninna.
Verkefnið tók um fimm vikur og
að sögn Ásu Ninnu gekk það vel þótt
það hafi verið strembið. „Konurnar
í kórnum eru eins og gefur að skilja
á öllum aldri og í öllum stærðum og
gerðum þannig að ég þurfti að sníða
kjóla í ýmsum stærðum. Ég var ein
um sníðagerð og saumaskapinn
nema síðustu þrjá dagana, þá fékk
ég aðstoð saumakonu við að falda og
ganga frá. Þannig að þetta var pínu
púl en gekk upp fyrir rest.“
Ása Ninna lenti þó í svolitlum
hremmingum þar sem efnið sem
sauma átti kjólana úr tafðist á leið-
inni til landsins og kom aðeins fjór-
um dögum fyrir skiladag. „Ég fékk
það á mánudegi og átti að afhenda
kjólana á fimmtudegi þannig að ég
stóð á haus síðustu dagana. Þetta
gekk þó á endanum.“
Ása Ninna heldur áfram með
hönnunarnám sitt við Listaháskóla
Íslands í haust en í sumar hyggst
hún nýta tímann til að hanna barna-
og herralínu undir heitinu Pardus,
en hún hefur áður hannað flíkur á
konur undir sama nafni. „Ég ætla
að reyna að vera dugleg að vinna
í mínu eigin í sumar og reyna að
koma mér á framfæri,“ segir Ása
Ninna að lokum. - sm
Saumaði 40 kjóla á fjórum dögum
DUGLEGUR HÖNNUÐUR Ása Ninna
Pétursdóttir tók að sér að hanna kjóla á
Jórukórinn frá Selfossi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Söngkonan Cheryl Cole segist
fylgja matarkúr sem er sérstak-
lega ætlaður hennar blóðflokki.
„Móðir mín sagði mér frá þess-
um kúr. Þar er tekið mið af blóð-
flokki manns við fæðuval og mér
ráðlagt að neyta ekki ákveðinnar
fæðu. Eftir að ég byrjaði á kúrn-
um líður mér mun betur bæði
líkamlega og andlega og er ég
einnig orkumeiri en áður,“ sagði
söngkonan sem hefur bæst í hóp
stjarna á borð við fyrirsætuna
Miröndu Kerr og söngvarann
Cliff Richard sem einnig fylgja
kúrnum.
Cole skildi við eiginmann
sinn, fótboltamanninn Ashley Cole,
fyrir skemmstu og hefur einbeitt sér
að söngferli sínum síðan. Hún viður-
kenndi einnig að hún fari sjaldan í
ræktina því hún þurfi þess ekki.
„Ég hef í mörgu að snúast þessa
dagana og það heldur mér í góðu
formi. Þess utan eyði ég miklum tíma
í dansæfingar og annan undirbúning
fyrir tónleikahald og það er mikið púl
að dansa marga klukkutíma á dag.“
Cheryl Cole á nýjum kúr
ORKUMIKIL Cheryl Cole segist ekki þurfa á
ræktinni að halda því hún fái næga hreyfingu
úr dansæfingum sínum.
NORDICPHOTOS/GETTY
*E
in
un
gi
s
er
g
re
it
t
up
ph
af
gj
al
d
6
kr
. a
f h
ve
rj
u
sí
m
ta
li.
M
án
.v
er
ð
1.
76
5
kr
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
18
6
8