Fréttablaðið - 11.05.2010, Qupperneq 2
2 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
Eignahlutur í fasteignum
Húseign í Reykjavík: metin á 100 milljónir
Sumarhús í Bláskógabyggð: metið á 10 milljónir
Jörðin Á í Skagafirði: metin á 14 milljónir
Bifreiðar
Range Rover árg. 2007: metin á 5 milljónir
Hummer H2 árg. 2003: metin á 4 milljónir
Mini Cooper árg. 2006: metin á 1 milljón
Bentley Continental árg. 2004: metin á 10
milljónir
Fjármunir á bankareikningum
Reikningur 1: 1.343.264 krónur.
Reikningur 2: 2.341.305 krónur.
Alls 151.684.569 krónur
HEYRNARSTÖ‹IN
Læknastö›in, Kringl
unni • Sími 568 7777
• heyrnarstodin.is
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á ætluðu
manndrápi í Reykjanesbæ á laug-
ardagsmorgun stendur enn. Litl-
ar sem engar upplýsingar er að fá
um málið frá lögreglunni á Suður-
nesjum.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá lögreglunni í gær er
rannsóknin á viðkvæmu stigi hvað
varðar nákvæmar upplýsingar
um aðdragandann og þá atburða-
rás sem leiddi til dauða mannsins,
sem var á sextugsaldri. Rúmlega
þrítugur maður, Ellert Sævars-
son, situr í gæsluvarðhaldi vegna
málsins.
Engar upplýsingar hafa fengist
um banamein hins látna eða hvort
vopni var beitt í átökunum. - sh
Litlar upplýsingar að fá:
Manndrápsmál
enn í rannsókn
Guðlaug, gréstu krókódíls-
tárum yfir þessu?
„Nei, ég lét bara krók koma á móti
bragði.“
Guðlaug K. Pálsdóttir varð fyrir því
undarlega óhappi á golfvelli í Flórída að
missa golfkúlu sína í krókódílsgin. Það
kom þó ekki að sök því hún fékk að slá
aftur vítalaust.
SKATTAMÁL Fjöldi eigna þeirra Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og Hann-
esar Smárasonar hefur verið kyrr-
settur að beiðni skattayfirvalda.
Kyrrsettar eignir eru að verðmæti
163 milljónir króna. Sölu þeirra er
ætlað að ganga upp í 400 milljón
króna hugsanlegar fésektir í máli
sem skattayfirvöld hafa til rann-
sóknar.
Frá þessu var sagt í fréttum
Stöðvar 2 í gærkvöldi. Eins og
fréttastofan hefur áður sagt frá
varðar málið grun um brot á
lögum um virðisaukaskatt hjá FL
Group. Jón Ásgeir og Hannes voru
báðir í forsvari fyrir félagið um
árabil. Einnig hefur verið farið
fram á kyrrsetningu eigna sam-
starfsmanna þeirra: Skarphéðins
Berg Steinarssonar og Jóns Sig-
urðssonar.
Í kyrrsetningarbeiðnum kemur
fram að þess var farið á leit að
eignir Jóns Ásgeirs að verðmæti
245 milljóna króna yrðu kyrrsett-
ar og eignir Hannesar að verð-
mæti 150 milljónir króna. Virði
eignanna er því langt undir þeim
fésektum sem skattayfirvöld telja
að lagðar verði á vegna þeirra
meintu brota sem um ræðir.
Eignirnar sem eru kyrrsettar
eru fasteignir, bílar og innstæður
á bankareikningum hérlendis.
Í frétt Stöðvar 2 kemur fram
að unnið sé að skýrslu um málið
hjá skattrannsóknarstjóra og
fá þá gerðarþolar andmælarétt.
Skýrslan mun síðan fara til rík-
isskattstjóra sem endurákvarðar
opinber gjöld þyki ástæða til þess.
Um leið og andmæli skýrslunnar
hafa borist skattrannsóknarstjóra
er tekin ákvörðun um hvort málin
verði send til efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra. Greiðist
sektin ekki að fullu getur gerðar-
þoli þurft að afplána fangelsisvist,
sem nemur að hámarki einu ári.
Jón Ásgeir sagði í viðtali við
Stöð 2 að hann skilji ekki hvern-
ig hann eigi að bera refsiábyrgð á
virðisaukaskilum FL Group. Stoð-
ir, áður FL Group, hafi lagt fram
tryggingu fyrir skattgreiðslunni.
Þá hafi öll skattskil FL Group
verið unnin af fagmönnum sem
lutu eftirliti hæfustu endurskoð-
enda.
Samkvæmt lögum verði refsi-
ábyrgð ekki lögð á stjórnarmann
vegna skattskila hlutafélags nema
stjórnarmaðurinn hafi sýnt af sér
stórkostlegt gáleysi eða ásetn-
ing. Jón Ásgeir segir þau skilyrði
augljóslega ekki uppfyllt þar sem
hann hafi ekkert vitað um málið.
svavar@frettabladid.is
Eignir Jóns Ásgeirs
og Hannesar frystar
Bílar, fasteignir og bankainnistæður í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Hannesar Smárasonar hafa verið kyrrsettar að beiðni skattayfirvalda. Virði
eignanna er 200 milljónum undir kyrrsetningarbeiðni skattrannsóknastjóra.
Kyrrsettar eignir Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar
HANNES SMÁRASON
Bifreiðar
Lincoln Navigator: metin á 4 milljónir
Range Rover: metin á 4 milljónir
Fjármunir á bankareikningum
Reikningur 1: 1.601.567 krónur
Reikningur 2: 394.825 krónur
Reikningur 3: 564.283 krónur
Reikningur 4: 916.599 krónur
Alls 11.477.247 krónur
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
Hreiðari Má Sigurðssyni og Magn-
úsi Guðmundssyni. Ástæða þess að
farið var fram á lengra gæsluvarð-
hald yfir Hreiðari en Magnúsi er sú
að Hreiðar er grunaður um fleiri
brot en Magnús, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins.
Vegna þessa taldi sérstakur sak-
sóknari sig þurfa lengri tíma til að
yfirheyra þá sem tengjast meintum
lögbrotum Hreiðars en Magnúsar.
Hreiðar var á föstudag úrskurðaður
í tólf daga gæsluvarðhald og Magn-
ús í sjö daga. Báðir kærðu úrskurð-
inn til Hæstaréttar, sem hefur nú
staðfest úrskurðinn. Sérstakur sak-
sóknari fór fram á að niðurstöður
Hæstaréttar yrðu ekki birtar á vef
dómsins vegna rannsóknarhags-
muna, og var fallist á það.
Embætti sérstaks saksóknara
hefur yfirheyrt nokkra sakborn-
inga og vitni sem tengjast málum
tvímenninganna undanfarna daga,
meðal annars menn sem voru eða
eru í forsvari fyrir þau félög sem
áttu í hinum vafasömu viðskiptum
við Kaupþing í aðdraganda banka-
hrunsins.
Til stendur að yfirheyra Sigurð
Einarsson, fyrrverandi stjórnar-
formann Kaupþings, en samkvæmt
heimildum hefur sérstakur sak-
sóknari enga vitneskju um hvenær
hann er væntanlegur til landsins.
Hann var upphaflega boðaður til
yfirheyrslu á föstudaginn kemur
en síðan var farið fram á að henni
yrði flýtt. Samkvæmt frétt Stöðv-
ar 2 í gær hyggst hann ekki flýta
för sinni hingað til lands, en býður
sérstökum saksóknara að yfir-
heyra sig í London, þar sem hann
er búsettur.
Þá stendur einnig til að yfirheyra
Ingólf Helgason, fyrrverandi for-
stjóra Kaupþings á Íslandi, og
Steingrím P. Kárason, fyrrverandi
yfirmann áhættustýringar bank-
ans. - sh, bj
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðahald yfir Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni:
Hreiðar er grunaður um fleiri brot en Magnús
BÖRN Frambjóðendur stjórnmála-
flokkanna fimm sem keppa í borgar-
stjórnarslagnum í sveitarstjórnar-
kosningum í enda þessa mánaðar
komu í heimsókn í leikskólann Nóa-
borg í gær og svöruðu fyrirspurn-
um barnanna.
Börnin hvöttu frambjóðendur
til að fá ökumenn til að draga úr
hraða bíla á götum borgarinnar,
breyta leiðum strætisvagna svo
þeir stöðvi nær leikskólum og Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum svo
þau þurfi ekki að ganga yfir Suð-
urlandsbraut og bæta úr skorti á
hoppuköstulum í borginni.
Nóaborg er eini leikskólinn sem
frambjóðendur heimsækja en þeir
komu þangað að frumkvæði skól-
ans. Nóaborg beinir sjónum að lýð-
ræði í ákvarðanatöku og hafa nem-
endur til dæmis kosið um hvað eigi
að vera í hádegismat og hvert skuli
fara í vettvangsferðir. - jab
Frambjóðendur í borgarstjórnarkosningunum hlýddu á börnin á Nóaborg:
Börnin vilja fleiri hoppukastala
SETIÐ FYRIR SVÖRUM Frambjóðendurnir Oddný Sturludóttir, Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, Einar Skúlason og Jón Gnarr svöruðu spurningum barnanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Karlmaður á fertugsaldri lést
um miðjan dag í gær þegar
sviffallhlíf hans skall utan í
kletta í Ingólfsfjalli. Maðurinn,
sem er af erlendum ættum, var
látinn þegar að var komið.
Tveir félagar mannsins voru
með honum, og létu þeir Neyð-
arlínuna vita af slysinu. Maður-
inn skall utan í klettavegg ofar-
lega í fjallinu og þurfti að kalla
til björgunarsveitarmenn með
búnað til að komast á slysstað.
Ekki er unnt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
Banaslys við
Ingólfsfjall
ÍRAK, AP Fjöldi sprengjuárása var
í Írak í gær, og er talið að þær
hafi kostað í það minnsta 102
menn lífið. Dagurinn var sá blóð-
ugasti í landinu það sem af er
árinu.
Mannskæðasta árásin var gerð
í borginni Hillah, tæplega 100
kílómetrum suður af Bagdad.
Tvær bílasprengjur sprungu í
miðborginni, og þegar fólk dreif
að til að hjálpa særðum sprengdi
sjálfsmorðssprengjumaður sig í
loft upp í miðjum hópnum.
Um það bil tveir mánuðir eru
liðnir frá kosningum í Írak, en
enn hefur ekki tekist að mynda
starfhæfa ríkisstjórn. - bj
Blóðugasti dagur ársins í Írak:
Yfir 100 vegnir
í árásum í Írak
ÖRYGGISGÆSLA Lögreglumenn með
alvæpni skoða bíla í miðborg Bagdad. Í
það minnsta 29 létust í árásum í borg-
inni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFGANISTAN
Breskur hermaður fórst
Breskur hermaður fórst eftir að
sprengja sprakk í Sangin í Afganistan
á sunnudagsmorgun. Þar með hafa
285 Bretar látið lífið þar í landi frá
árinu 2001. Um tíu þúsund breskir
hermenn eru í Afganistan.
LANDBÚNAÐUR Lífland lækkaði
verð á kjarnfóðri um allt að fjögur
prósent í gær. Áður höfðu Fóður-
blandan og Bústólpi lækkað verð á
kjarnfóðri um allt að þrjú prósent.
Ástæða lækkunarinnar er sögð
hagstæð þróun verðs á hráefni og
gengisþróun krónunnar. Greint er
frá breytingunum á vef Lands-
sambands kúabænda (LK). Þar
er jafnframt átalið að Sláturfélag
Suðurlands (SS) skuli hafa hækkað
verð á kjarnfóðri um tvö prósent
1. apríl án þess að geta þess neins
staðar. „Að mati LK er það eðlileg
kurteisi gagnvart viðskiptavinum
að tilkynna um verðbreytingar,“
segir þar, en SS er sagt hafa lofað
úrbótum. - óká
Kjarnfóður lækkar í verði:
Áhrif krónu og
hráefnisverðs
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON
MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
SPURNING DAGSINS