Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 32
20 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR BAKÞANKAR Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Spurning. Jahá. Áfram. Nei, nei, nei! Og allt var skapað á einni stuttri viku? Þar um bil. Þú átt ekki að vera að hugsa svona mikið um þessa hluti! Ekki hugsa? Það hjálp- ar. Trúðu mér! Góðan daginn! Við færum þér himneskan boðskap í dag! Trúið þið því að Nói hafi safnað saman öllum dýrategund- um veraldar og troðið þeim inn í trébát? Sé ekki tilganginn með keng- úrum og fleiri dýrum. Og Móses klauf hafið? Ekkert skrýtið við það? Og jómfrú- arfæðing? Ég held ég verði að veðja þúsara á Jósef. Hver er skemmti- legasta manneskja sem þú þekkir Stanislaw? Ég. Bull! Það er ég! Þú?? Láttu mig ekki fara að hlæja! Stundum er ég hrædd um að við förum beint úr „Sesame Street“ yfir í endursýningar á „Matlock“. Heyrðu, það varst þú sem vildir bíða með að eignast börn! Jarðarfarir læmingja Eitt af því fyrsta sem gefur til kynna að maður sé kominn í nýtt land er hvern- ig samskiptavenjur íbúa snarbreytast á milli landa. Það eru ekki nema um tvö þúsund kílómetrar á milli Reykjavíkur og Óslóar (maður lærir ýmislegt af hnakka- tölvunni í flugvélum Icelandair). Þetta er samt allt annar heimur. Til að mynda heils- ar bláókunnugt fólk manni með vinalegu hej-i, rétt eins og maður sé gamall vinur eða nágranni. Og það kveður með ha det − hafðu það gott. Þetta er voðalega huggulegt. HEIMA á Íslandi eru þeir sem heilsa ókunnugum opineygir og brosandi með hææjjj álitnir hálfgerðir einfeldningar, barnalegir einstaklingar sem lítið mark er takandi á. Við segjum góðan dag, bless og takk, nú eða ekki neitt bara. Kurt- eis já, svona oftast, en ekki alveg jafn vinaleg. EN það er ekki bara í kveðjunum sem þægilegheitin koma fram. Á götun- um virðist fólkið furðu afslappað. Það brosir út í annað þegar það mætist, unglingsstrákar nýkomnir með bíl- próf stoppa til að hleypa gangandi fólki yfir götu og löggumenn á risa- stórum hestum gefa sér tíma til að kjassast í tveggja ára forvitnum íslenskum strák. ÞAÐ má vera að syngjandi tungumálið spili nokkuð inn í þessa tilfinningu manns fyrir vinalegheitum. Þannig virkaði snar- sjúki englaryksmaðurinn sem dansaði fyrir framan okkur og jós yfir okkur fúk- yrðum á norsku bara óskaplega krúttleg- ur og meinlaus. Þangað til hann sparkaði í ferðatöskuna okkar, þá sáum við að senni- lega væri nú best að láta vera að spjalla meira við hann. NORÐMENN hafa svo sem ærna ástæðu til þess að vera viðmótsþýðir. Hér eru lífsgæðin mikil og þeim skipt á sæmilega jafnan hátt. Fólk hefur það alla jafna gott. En ég hef komið til annarra ríkra landa, þar sem viðmótið er fúlt, þó fólkinu líði vel. Það er dýpra á þessu en það. VIRÐING og velvild í garð annarra virðist vera greipt í þjóðarsál Norðmanna. Það er tilfinningin sem ég fæ hér, bæði af minni eigin takmörkuðu reynslu og sögunum sem ég heyri frá þeim Íslendingum sem ég hef hitt og fluttu hingað eftir hrunið. Þeim hefur upp til hópa verið vel tekið, líður vel hérna og hafa komið sér vel fyrir á stuttum tíma. Orð eins þeirra fannst mér umhugsunarverð fyrir Íslands hönd, landsins sem við stöndum svo fast á að sé best í heimi: „Ég sakna ekki neins. Akkúr- at ekki neins.“ Þar sem heilsað er með hlýju Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.