Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 20
HEILSA ÖRUGGT SAMFÉLAG er yfirskrift alþjóðlegrar ráðstefnu sem hald-in verður á Grand Hóteli 19.-20. maí. Efni ráðstefnunnar á erindi við þá sem áhuga hafa á öryggismálum og velferð. www.lydheilsustod.is „Börnin okkar eru yfirleitt skyn- söm og gera sér grein fyrir því að það er betra að lifa heilsusamlegu lífi. Þó er nauðsynlegt að hnykkja á þeim óæski- le g u á h r i f- um sem neysla munn tóbaks getur haft á heilsuna,“ segir Geir Bjarna- son, forvarna- fulltrúi Hafn- arfjarðarbæjar. Krabbameinsfé- lag Hafnarfjarð- ar hefur hrund- ið af stað átaki gegn munntóbaksnotkun ungs fólks í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Að sögn Geirs voru tildrögin að átakinu þau að nýlegar rannsókn- ir gáfu til kynna að sala á munntó- baki hefði aukist til mikilla muna á landinu að undanförnu. „Okkar eigin rannsóknir benda einnig til þess að neysla ungs fólks á munntó- baki hafi aukist, og það sem meira var, við fundum líka út að þessi neysla væri jafnvel að aukast í hverfum þar sem ekki er um að ræða aðra vímuefnaneyslu. Af því drógum við þá ályktun að krakk- ar sem eru í góðum málum, stunda jafnvel íþróttir og annað, séu að fikta með þetta,“ segir Geir. Hann segir Krabbameinsfé- lag Hafnarfjarðar hafa ákveðið að ýta af stað átaki til að bregð- ast við þessum upplýsingum, enda aukast líkur á krabbameini með neyslu munntóbaks eins og annars tóbaks. „Við ákváðum að fá íþrótta- hreyfinguna til liðs við okkur því þar er jákvæðar fyrirmyndir ungs fólks einna helst að finna. Hann- að var plakat þar sem fulltrúar margra íþróttagreina í Hafnar- firði taka afstöðu gegn munntób- aksnotkun og verður það hengt upp úti um allan bæ, meðal ann- ars í skólum og íþróttamiðstöðv- um. Þá hefur bannskilti við tób- aksnotkun í íþróttamannvirkjum bæjarins einnig verið endurnýjað, en það tekur nú til allrar tóbaks- neyslu en ekki einungis reykinga eins og áður var.“ Að sögn Geirs gerir Rannsókn og greining árlega rannsókn á tóbaks- og áfengisneyslu krakka í 8. til 10. bekkjum bæjarins og því sé hægur leikur að meta hvort átak af þessu tagi beri árangur. „Nýj- ustu niðurstöður benda til þess að tólf prósent krakka í tíunda bekk höfðu prófað munntóbak, en í sama árgangi höfðu tvö prósent prófað áfengi. Vonir okkar standa til þess að átak af þessu tagi beri árangur yfir ákveðinn tíma,“ segir Geir. kjartan@frettabladid.is Brugðist við munntóbaksnotkun Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær hafa hrundið af stað átaki gegn munntóbaksnotkun ungmenna. Rannsóknir benda til að sala og neysla munntóbaks hafi aukist til muna að undanförnu, meðal annars hjá krökkum sem stunda íþróttir. Geir Bjarnason, forvarnafulltrúi Hafnarfjarðar. Tólf prósent krakka í tíunda bekk hafa prófað munntóbak en í sama árgangi hafa tvö prósent prófað áfengi. Nýleg rannsókn bendir til þess að fyrirburar séu næmari fyrir sársauka vegna þeirra aðferða sem notaðar eru í lækninga- skyni á gjörgæslu. Niðurstöð- ur rannsóknarinnar voru birtar í tímaritinu NeuroImage. Rannsóknarteymið frá UCL- háskólanum í London mældi heilavirkni ungbarna þegar tekið var blóð úr hæl. Fyrir- burar sem höfðu verið á sjúkrahúsi í meira en 40 daga sýndu mun meiri viðbrögð en heilbrigð börn á sama aldri. Þetta var talið benda til þess að fyrirburar séu næmari fyrir sársauka. Enginn munur var á virkni þegar strokið var létt yfir hælinn og því ljóst að næmnin einskorðaðist við sársauka en ekki snertingu. Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem fæðast fyrir tímann séu næmari fyrir sársauka en önnur börn þegar þau eldast. Rannsakendur töldu nauðsynlegt að huga betur að því að nota verkjastill- andi lyf þegar nýburar eru á gjörgæslu. Fyrirburar finna meira til MARGT BENDIR TIL ÞESS AÐ FYRIRBURAR SÉU NÆMARI FYRIR SÁRSAUKA EN ÖNNUR BÖRN SEM FÆDD ERU Á RÉTTUM TÍMA. Fyrirburar þurfa oft að gangast undir sársauka- fullar meðferðir og eru tengdir við ýmsar vélar. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Staðurinn - Ræktin Síðustu námskeið fyrir sumarfrí! Innritun hafin í síma 581 3730 Velkomin í okkar hóp! Þú getur strax byrjað að æfa! Um leið og þú skráir þig á námskeið og greiðir fyrir það geturðu strax byrjað að æfa – sækja tíma í opna kerfinu okkar og tækjasal þar til námskeiðið hefst. Öllum námskeiðum fylgir frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasal. Á heimasíðunni okkar, www.jsb.is færðu svo nánari upplýsingar um það sem við höfum að bjóða. telpurS onuK r NÝTT! TT - HÁDEGISPÚL kl. 12:05 aðeins fyrir vanar Nýtt! MÓTUN Teygju- og styrktaræfingar. Æfingakerfi hannað af Báru Magnúsdóttur 2x í viku kl. 10:30 og 16:30 TT 3 Lokuð 5 vikna átaksnámskeið 3x í viku fyrir stelpur 16-25 ára kl.18:25 TT1 – Átaksnámskeiðin sívinsælu. Lokuð 5 vikna námskeið 3x í viku kl. 6:15, 10:15, 16:40 og 17:40 60+ Líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri 2x í viku kl. 9:25 STOTT PILATES Æfingakerfi byggt á pilatesæfingum Joseph Pilates. Krefjandi æfingar. 5 vikna námskeið 3x í viku kl. 16:30 Rope Yoga Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Lokuð 5 vikna námskeið kl. 6:15, 7:20, 12:05 og 16:30 Kál er hollt en það er talið vinna gegn líkum á krabbameini og heilablóðfalli og kál- safi orkar græðandi á magasár. Spergilkál er ríkt af fólasíni og járni. Borða má allan sperg- ilinn nema neðsta hluta stilksins. heimild: www. islenskt.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.