Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 38
26 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR Jóhannes Frank Jóhannesson áhugaljósmyndari hlaut svonefnd Excellent Award í ljósmyndakeppni á vegum tímaritsins Black And White Magazine, en blaðið er eitt virtasta ljósmyndatímarit í heimi. Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhannes Frank tekur þátt í ljósmyndakeppni á vegum Black and White Magazine og segir hann þetta hafa verið hálfgerða skyndihugmynd. „Ég átti orðið mikið magn af mynd- um og ákvað þess vegna að prófa að senda inn tvær möppur í sitthvorn keppnisflokkinn. Þetta er svo ný tilkomið að ég veit enn ekki hvaða myndir sigr- uðu eða hvað þetta mun hafa í för með sér,“ útskýrir Jóhannes Frank, sem starfar sem grafískur teiknari dagsdaglega. Hann hefur sinnt ljósmyndun frá árinu 2005 og hefur hann sérstaklega gaman af því að taka svart- hvítar ljósmyndir. Aðspurður segist Jóhannes Frank ekki viss hvaða áhrif sigurinn geti haft á ljósmynda- feril hans. „Þetta getur þýtt allt eða ekkert, það er erfitt að segja til um hvað komi út úr þessu. Hjá sumum getur ferillinn farið á flug en öðrum gerist lítið. Mér vitanlega eru engin verðlaun í boði, sigur- inn sjálfur þykir nógu góð verðlaun, enda fær maður myndir sínar birtar í einu virtasta ljósmyndatímariti heims,“ segir Jóhannes Frank að lokum. Áhugasöm- um er bent á heimasíðu Jóhannesar Franks, johann- esfrank.com. - sm Áhugaljósmyndari sigraði í virtri ljósmyndasamkeppni SIGRAÐI Jóhannes Frank Jóhannesson sigraði í ljósmynda- keppni á vegum eins virtasta ljósmyndatímarits heims. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 27. október 2008 lýsti leik- arinn Joaquin Phoenix yfir að hann ætlaði að hætta að leika og gerast rappari í staðinn. Í kjölfarið safn- aði hann skeggi, byrjaði að haga sér eins og fífl á almannafæri og rappa á sviði. Stóra spurningin er: Var hann að grínast eða ekki? Við erum að fara að komast að því. Heimildarmyndin I‘m Still Here: The Lost Year of Joaquin Phoenix er væntanleg. Myndin fjallar um árið 2009 í lífi Joaquins Phoenix, sem er árið sem hann virðist hafa misst vitið, hætt að leika og gerst rappari. Flestir telja að um eitt stórt grín sé að ræða, en þeir sem hafa séð myndina klóra sér í haus- num þar sem myndin er svo gróf að margir efast um að nokkur maður myndi grínast með það sem kemur fram í myndinni. Myndin var sýnd hugsanleg- um dreifingaraðilum í Hollywood á dögunum. Samkvæmt fólki sem mætti á sýninguna var meiri karl- kynsnekt en í hommaklámmynd. Phoenix sést í annarlegu ástandi nota kókaín, panta vændiskonur og stunda kynlíf með kynningar- fulltrúa. Þá úthúðar hann aðstoðar- fólki sínu og rappar vandræðalega illa inni á milli. Og til að kóróna þetta allt þá sést óvildarmaður Phoenix skíta á hann þar sem hann liggur sofandi. Það þarf því ekki að koma á óvart að menn efist um að myndin sé grín – hver myndi ganga svona langt? Svarið er augljóslega einfalt: Joaquin Phoenix myndi ganga svona langt. Hann hefur látið hafa eftir sér að hann ætlaði að þykj- ast ganga af göflunum og skipta um starfsferil og að Casey Affleck ætlaði að ná öllu á filmu. Affleck er eiginmaður systur Phoenix og leik- stjóri myndarinnar. Hann hefur reyndar líka látið hafa eftir sér að myndin sé ósvikin – að hann hafi hreinlega viljað gerast rappari og þetta sé heiðarleg tilraun. Við leyf- um okkur að efast um það. atlifannar@frettabladid.is SKITIÐ Á JOAQUIN PHOENIX Í NÝRRI HEIMILDARMYND KLIKKAÐ ÁR Joaquin Phoenix safnaði skeggi og þóttist ætla að verða rappari á síðasta ári. Tilraunirnar voru teknar upp fyrir heimildarmynd. NORDICPHOTOS/GETTY ■ Leikarinn River Phoenix heitinn var bróðir hans. Hann lést árið 1993 eftir ofneyslu eiturlyfja. ■ Joaquin var tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 2005 fyrir hlutverk sitt í myndinni Walk the Line, sem fjallaði um líf Johnny Cash. ■ Hann vann ekki, en vann Golden Globe-verðlaun- in fyrir myndina. HVER ER JOAQUIN PHOENIX? Enn berast fréttir af kynlífs- myndböndum sjónvarpsstjörn- unnar Kendru Wilkinson. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að klámframleiðandinn Vivid ætlar að gefa út eitt mynd- bandanna í enda maí og að fleiri en eitt séu til. Þá hefur komið fram að Kendra reyndi sjálf að selja myndböndin árið 2008, þegar hún var byrjuð með Hank Baskett, núverandi eiginmanni sínum. Nú kemur í ljós að fjölmarg- ir bólfélagar eru með Kendru í myndböndunum sem hún reyndi sjálf að selja og var meira að segja búin að stofna fyrirtæki til að sjá um söluna. Enn heyrist ekkert frá Kendru um málið, en marga grunar að hún stjórni fjölmiðlasirkusnum sjálf og hlæi alla leið í bankann þegar myndböndin verða gefin út. Fjölmargir bólfélagar Kendru MÖRG MYNDBÖND Kendra ku hafa komið fram í nokkrum kynlífsmynd- böndum á sínum yngri árum. Vill ekki bíómynd Hinn goðsagnakenndi gítar- leikari Slash úr Guns N‘ Roses tekur fálega í hugmyndir um að gerð verði bíómynd eftir ævisögu hans. Ævisaga Slash kom út árið 2007 og þar ræddi gítarleikarinn um baráttu sína við Bakkus og hvernig slettist upp á vinskapinn við Axl Rose, en í kjölfarið hætti Slash í Guns N‘ Roses. Slash hefur ekki viljað ganga aftur í hljómsveitina og því spilar Axl gömlu lögin með nýjum mönnum. Slash segist heldur ekki vilja rifja upp erfitt samband þeirra í kvikmynd. „Aðaltilgangurinn með bók- inni var að koma frá mér hinu rétta varðandi Guns N‘ Roses og endurfundina. Ég hef verið spurður hvort ég vilji gefa leyfi fyrir því að gerð verði bíómynd en ég hef bara ekki áhuga á því. Þetta er bara bók sem ég skrifaði til að koma frá mér ýmsum hlutum. Ég gæti bara ekki ímyndað mér að einhver léki mig í bíó- mynd.“ SLASH Vill ekki rifja um rifrildin við Axl í bíómynd. Höldum saman uppá 10 ára afmæli Max1 Fáðu 20% afslát t af nýjum hágæð a dekkjum, í dag! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Rvk Akureyri Suðurnesjum Húsavík Stigar og tröppur til allra verka

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.