Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 11. maí 2010 25
Mel Gibson og barnsmóðir hans,
rússneska tónlistarkonan Oksana
Grigorieva, slitu sambandi sínu
í síðasta mánuði. Grigorieva
sagði sambandsslitin hafa gerst
skyndilega og að hún gæti ekki
tjáð sig um málið en að sannleik-
urinn ætti eftir að koma í ljós.
Nú hefur pólsk glamúrfyrirsæta,
Violet Kowal, komið fram og
sagst hafa átt í þriggja mánaða
löngu ástarsambandi við Gibson
á meðan Grigorieva var ólétt.
„Það kemur mér alls ekki á óvart
að þau hafi hætt saman. Mel
getur ekki verið einni konu trúr,“
sagði Kowal sem stóðst lygapróf
sem tímaritið National Enquir-
er lagði fyrir hana. Talsmaður
Gibson segir þó söguna vera upp-
spuna.
Átti vingott
við Gibson
NÝ VINKONA? Mel Gibson á að hafa
haldið fram hjá barnsmóður sinni með
pólskri glamúrfyrirsætu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Uppáhaldshestur bresku prins-
anna lést í síðustu
viku og eru prins-
arnir báðir sagðir
miður sín. „Merin
Drizzle tilheyrði Vil-
hjálmi prins og Harry
og var áður eign
föður þeirra.
Hún veiktist
skyndilega í
miðjum póló-
leik og lést í
kjölfarið. Prinsarnir eru líkt og
gefur að skilja miður sín vegna
þessa,“ var haft eftir talsmanni
konungsfjölskyldunnar.
Bresku prins-
arnir syrgja
Leikarinn Jake Gyllenhaal fer með
aðalhlutverkið í ævintýramynd-
inni Prince of Persia og þurfti að
leggja talsvert á sig fyrir hlut-
verkið því auk þess að bæta á sig
vöðvamassa þurfti hann að safna
axlasíðu hári.
„Það tók mig sex mánuði að
safna hári, það var það erfiðasta
við þetta. Mér fannst erfiðara
að safna hári heldur en að læra
hreiminn eða að skylmast. Það var
næstum erfiðara en að
leika hlutverkið sjálft.
Ég neyddist einnig
til að nota sjampó og
hárnæringu því ég fékk
aukinn vöðvamassa við
að skrúbba á mér
hárið daglega með
sjampói,“ sagði
leikarinn við-
kunnanlegi.
Fannst erfitt
að safna hári
Kvikmyndir ★★
Cop Out
Leikstjóri: Kevin Smith
Aðalhlutverk: Bruce Willis, Tracy
Morgan, Ana de la Reguera, Seann
William Scott
Kevin Smith er fyndinn náungi og
skemmtilegur leikstjóri. Mynd-
ir eins og Dogma, Chasing Amy,
Mallrats og Clerks eru nokkur
dæmi um að Smith er með húmor-
inn í lagi. Honum fer líka best að
leikstýra myndum sem hann hefur
sjálfur skrifað og því er ekki gott
að átta sig á hvað fékk hann til
þess að leikstýra Cop Out þar sem
hún er hvorki gerð eftir handriti
hans né grunnhugmynd.
Smith bregst því bogalistin illi-
lega að þessu sinni þótt hann hafi
yfir ágætis leikurum að ráða.
Handritið er bara of þvælt, ómark-
visst og engan veginn nógu fyndið.
Þetta skolast svo allt til í höndun-
um á Smith sem fer stefnulaust út
um víðan völl.
Jimmy (Bruce Willis) og Paul
(Tracy Morgan) hafa verið félag-
ar í löggunni í New York í níu ár.
Þeir vinna ágætlega saman
þótt þeir séu ólíkir. Jimmy
er mátulega pirraður og
lokaður en Paul er málóð-
ur trúður. Báðir eru þeir
þjakaðir af vandamálum
í einkalífinu þar sem
Jimmy hefur ekki
efni á að borga fyrir
brúðkaup dóttur
sinnar og Paul er
viss um að konan
sín haldi fram hjá
sér.
Til þess að gera
stöðu þeirra enn verri
er þeim vikið frá störfum í mánuð
án launa eftir að þeir klúðra hand-
töku á dópsala. Jimmy bregður þá
á það ráð að selja sjaldgæft og for-
láta hafnaboltaspjald, sem hann
erfði eftir föður sinn, til þess að
fjármagna brúðkaupið. Spjald-
inu er stolið áður en honum tekst
að koma því í verð og það endar í
höndum umfangsmikils glæpafor-
ingja og fíkniefnasala.
Þeir félagar ráðast því til atlögu
við óþjóðalýðinn og kynnast í
leiðinni gullfallegri
þokkadís frá Mex-
íkó sem ribbaldarnir
eru á hælunum á og
þreytandi innbrots-
þjófi og brimbretta-
gæja sem Seann
William Scott
leikur eins
og honum
einum er
lagið.
Það er
sem sagt
meira en
nóg að gerast í Cop Out en þar
sem þræðirnir eru ekki fléttaðir
nógu þétt saman finnst manni
maður stundum þjást af athygl-
isbresti og áttar sig ekki alltaf á
hvert er verið að fara með þessu
öllu saman. Myndin er þó sem
betur fer stundum fyndin, aðal-
lega þegar William Scott mætir,
en Morgan sem á að vera brand-
arakallinn er ansi brokkgengur.
Einhver spenna næst líka upp á
köflum en því miður er þetta allt
saman svo klisjukennt að hasarinn
lognast einhvern veginn út af.
Bruce Willis stendur þó vita-
skuld fyrir sínu, þannig lagað,
enda gæti hann leikið svona löggu
blindandi. Hann bjargar þó litlu að
þessu sinni og er stundum eins og
álfur út úr hól. Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Stefnulaus og þvæld
grínspennumynd sem er ekkert
sérstaklega fyndin og nær ekki upp
neinni raunverulegri spennu. Bruce
Willis er samt sjálfum sér líkur en það
dugar ekki til.
Vanir menn á villigötum