Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 42
30 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Vodafone-völlur, áhorf.: 1796 Valur FH TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 7–10 (4–6) Varin skot Kjartan 4 – Gunnleifur 2 Horn 10–8 Aukaspyrnur fengnar 12–9 Rangstöður 4–2 FH 4–3–3 Gunnleifur Gunnl. 6 Guðm. Sævarsson 6 Pétur Viðarsson 5 Hafþór Þrastarson 5 Freyr Bjarnason 4 Gunnar Már Guðm. 6 Björn D. Sverrisson 6 Hákon Atli Hallfr. 6 (57. Matthías Vilhj. 6) Ólafur Páll Snorras. 7 Atli Viðar Björnsson 7 (79. Hjörtur Logi V. -) Torger Motland 5 *Maður leiksins VALUR 4–3–3 Kjartan Sturluson 6 Stefán Eggertsson 5 Atli Sveinn Þ. 6 Reynir Leósson 5 Martin Pederson 6 Haukur Páll S. 7 Ian Jeffs 6 (85. Sigurbjörn Hr. -) Rúnar Már S. 5 Baldur Aðalsteinss. 7 (77. Hafþór Ægir V. -) Arnar Sveinn G. 8 Danni König 7 (85. Viktor Unnar I. -) 1-0 Danni König (36.) 1-1 Atli Viðar Björnsson (39.) 2-1 Arnar Sveinn Geirsson (66.) 2-2 Gunnar Már Guðm., víti (82.) 2-2 Kristinn Jakobsson (7) 31 DAGUR Í HM Brasilíumaðurinn Ronaldo bætti markamet Þjóðverjans Gerds Müller í HM í Þýskalandi 2006 þegar hann skoraði sitt fimmtánda mark í úrslitakeppni HM. Müller hafði þá átt metið í 32 ár eða síðan hann skoraði 10 mörk á HM 1970 og 4 mörk á HM fjórum árum síðar. Ronaldo skoraði 4 mörk á HM 1998, 8 mörk á HM 2002 og 3 mörk á HM 2006. Þetta er stór dagur fyrir Selfyssinga sem í kvöld verður 27. félag- ið sem spilar í efstu deild kara. Fyrsti leikurinn er á heimavelli á móti Fylki og markakóngurinn Sævar Þór Gíslason segir alla leikmenn liðsins og allt bæjarfélagið vera tilbúið fyrir Pepsi- deild karla. „Það er langt síðan bærinn snerist við. Þetta er stór dagur. Ég býst við slatta af fólki og gæti trúað því að það verði mjög margt á leiknum á morgun. Ég held meira að segja að þó að það verði grenjandi rigning þá sleppi Selfyssingar þessu ekki. Það er þannig stemning í bænum. Bjartsýnustu menn búast við þúsund til fimmtán hundruð manns. það verður bara að koma í ljós,“ segir Sævar Þór um kvöldið. „Þetta er ævintýri fyrir lítinn klúbb eins og Selfoss að koma upp í þessa hákarladeild þar sem öll liðin virðast vera að sópa til sín leikmönnum og óeðlilegt er hvað er mikið af peningum í þessu hjá sumum liðum,” segir Sævar en hann segir heimamenn stolta af því að liðið er nánast eingöngu byggt upp á Selfyssingum. „Skjálfa-strákarnir ætla líka að vera með okkur áfram. Þeir eru klárlega okkar tólfti maður í þessum bardaga, bæði í 1. deildinni og núna. Þeir segjast ætla að koma sterkir inn í sumar og það verður bara gaman að sjá þá berjast við Miðjuna og Púma-sveitina og þessar öflugustu stuðningsmannasveitir,” segir Sævar. „Ég get lofað því að hér verður fullt á öllum leikjum. Ég er ekki frá því að ólíklegasta fólk eigi eftir að láta sjá sig. Maður hefur heyrt það útundan sér að hinir ýmsu aðilar ætli að skella sér á völlinn. Ég veit um einn sem hefur ekki komið á leik síðan hann fæddist og hann er kominn hátt í fimmtugt. Hann byrjaði að mæta í restina í fyrra og ætlar að mæta á alla leikina í sumar enda búinn að kaupa árskort og allt saman,“ segir Sævar Þór. „Þetta verður bæjarhátíð sama hvernig fer enda eru allir Selfyssingar stoltir af því að eiga lið í úrvalsdeild.” SÆVAR ÞÓR GÍSLASON: SELFYSSINGAR LEIKA SINN FYRSTA LEIK Í ÚRVALSDEILD KARLA Í KVÖLD Ævintýri fyrir lítinn klúbb að fara í þessa hákarladeild Viðarhöfða 6 - Reykjavík / Bæjarhrauni 12 - Hafnarfirði www.sindri.is / sími 575 0000 Verslanir PI PA R\ TB W A • SÍ A • 1 0 07 89 DW743 Vinsælasta veltisögin frá DeWalt Afl: 2000 W Blaðstærð: 250 mm 124.900 kr. (með VSK) Allt veltur á söginni! VESTURLANDSVEGUR VAGNHÖFÐI VÉLALAND HÚSGAGNA- HÖLLIN TANGARHÖFÐI BÍlDSHÖFÐI H Ö FÐ A B A K K I REYKJAVÍK Vélaland - VAGNHÖFÐA 21 Sími 515 7170 HANDBOLTI Allar líkur eru á því að Ólafur Guðmundsson, hand- knattleiksmaður úr FH, sé á leið í atvinnumennsku. Ólafur hefur vakið þónokkra athygli margra erlendra félaga en nokkur þeirra hafa nýlega sent FH fyrirspurn- ir. Þetta staðfestir Þorgeir Arnar Jónsson, formaður FH, í samtali við Fréttablaðið. Í gær greindi Stöð 2 frá því að þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen vildi fá Ólaf í sínar raðir en Þorgeir sagði félagið ekki eitt þeirra sem hefðu sett sig í sam- band við FH. „Það hafa verið einhver mál í gangi en það er lítið hægt að segja um þau eins og er,“ sagði Þorgeir. „Það var þó ljóst snemma í vetur að Ólafi myndu standa ýmsir möguleikar til boða og hafa þessi mál verið unnin í góðu samráði við Ólaf og hans fjölskyldu. FH mun ekki standa í vegi fyrir því að hann geti látið draum sinn um atvinnumennsku ráðast.“ Ólafur var valinn í landsliðshóp Íslands sem fór á Evrópumeistara- mótið í handknattleik í janúar síð- astliðnum þar sem liðið vann til bronsverðlauna. Hann hefur verið fastamaður í liði FH undanfarin ár og vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína. - esá Ólafur Guðmundsson mögulega á förum frá FH: Mörg félög hafa sýnt Ólafi áhuga ÓLAFUR GUÐMUNDSSON Mögulega á leið frá FH. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI „FH er aldrei sátt við að taka minna en þrjú stig. En úr því sem komið var er þetta kannski ágætt. Við komum tvisvar til baka eftir að hafa lent undir,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Gunnleif- ur Gunnleifsson eftir jafnteflið á Hlíðarenda í gær. Eftir rólega byrjun opnaðist leik- urinn um leið og Valsmenn kom- ust yfir á 36. mínútu. Arnar Sveinn Geirsson lagði þá upp á hinn danska Danni König sem skoraði í sínum fyrsta leik á Íslandsmóti. Arnar Sveinn átti flottan leik og var sprækur í sóknarleik heima- manna. Atli Viðar Björnsson jafnaði skömmu eftir mark Königs en stoðsendinguna átti Hákon Atli Hallfreðsson sem vippaði boltan- um glæsilega inn á Atla. Annars var lítill meistarabragur á Íslands- meisturunum í gær og varnarlína þeirra var óörugg. Arnar Sveinn kom Val yfir á 66. mínútu en tæpum tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði FH aftur. Reynir Leósson braut þá klaufa- lega á Matthíasi Vilhjálmssyni og dæmd var vítaspyrna. Gunnar Már Guðmundsson steig á punkt- inn, spyrna hans var slök en hafn- aði engu að síður í netinu. Úrslitin jafntefli, 2-2, sem verð- ur að teljast sanngjörn niðurstaða. Leikurinn var nokkuð fjörlegur og lofar góðu fyrir sumarið. FH var án Atla Guðnasonar sem er meiddur og horfði á í stúk- unni. Fleiri lykilmenn hafa átt við meiðsli að stríða og Matthías og Hjörtur Logi Valgarðsson byrjuðu báðir á bekknum. „Við vorum ekki að spila nægi- lega vel heilt yfir og verðum að gera betur í næsta leik. Sérstak- lega í upphafi leiks vorum við algjörlega á afturfótunum en kom- umst á gott skrið undir lok hálf- leiksins. Við náðum svo ekki að finna taktinn nægilega vel í seinni hálfleik,“ sagði Gunnleifur. „Valur hefur hörkuleikmenn og við vorum ekkert að vanmeta þá neitt. Þeir eiga örugglega eftir að gera fína hluti í sumar.“ Mikill stígandi var í Valslið- inu á undirbúningstímabilinu og leikurinn í gær ákveðið framhald af því. Haukur Páll Sigurðsson smellpassar inn í liðið og er öflug- ur drifkraftur á miðjunni og alveg ljóst að ef liðið byggir ofan á þessa frammistöðu getur það vel barist ofar en því var spáð. elvargeir@frettabladid.is Lofar góðu fyrir sumarið Valur og FH gerðu 2-2 jafntefli á Hlíðarenda í opnunarleik Pepsi-deildarinnar. Gunnar Már Guðmundsson jafnaði fyrir Fimleikafélagið úr vítaspyrnu. FÓTBOLTI „Það er alltaf gaman að standa sig vel en það hefði verið skemmtilegra að vinna þennan leik,“ sagði Arnar Sveinn Geirs- son eftir leikinn í gær. Arnar átti flottan leik fyrir Val og gæti orðið ein af stjörnum sumarsins haldi hann uppteknum hætti. „Það er búið að vera að spá okkur einhverju brasi í sumar en við sýndum að við eru með hörkulið og eigum roð við hvaða liði sem er í þessari deild. Það er bara leiðinlegt að hafa ekki náð að klára þetta,“ sagði Arnar. En hvað fannst honum um vítaspyrn- udóminn? „Mér fannst þetta ekki vera víti en sá þetta ekki vel. Hann (Kristinn Jakobsson) var lengi að flauta og það gefur vís- bendingu um að hann hafi ekki verið viss.“ „Markmið liðsins er að fara í hvern leik og reyna að vinna. Við setjum ekki stefnuna á neitt ákveðið sæti. Þetta snýst bara um okkur sjálfa, ef við erum ekki til- búnir í þetta getum við alveg eins verið á botninum.“ - egm Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Vals: Erum með hörkulið Í DAUÐAFÆRI Atli Viðar Björnsson er hér nálægt því að setja boltann í mark Kjartans Sturlusonar, markvarðar Vals. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÖFLUGUR Arnar Sveinn skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.