Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Þetta er bara alveg geðveikt gaman; ég fíla þetta alveg í botn,“ segir Davíð Örn Ingimarsson, sex- tán ára, spurður hvernig sé að taka þátt í starfi Sportklúbbs Árbæjar, samstarfsverkefni íþróttafélags- ins Fylkis og frístundamiðstöðv- arinnar Ársels. Sportklúbburinn hefur verið starfræktur frá árinu 2008 í þeim tilgangi að bjóða ungl- ingum í áttunda til tíunda bekk upp á íþrótta- og félagsstarf án áherslu á keppni. Davíð er á síðasta ári í grunn- skóla og segist vera mikill áhuga- maður um íþróttir, en hann hefur æft sund, handbolta, fimleika, fótbolta og aikido svo fátt sé upp talið. Sportklúbburinn bættist við á síðasta ári. „Ég ákvað að skoða þetta betur þar sem ég á þarna góða vini og fannst þetta síðan bara skemmtilegt. Allir geta spil- að fótbolta, það eru engir sem einspila eða spila bara sín á milli eða svoleiðis.“ Hópunum er skipt niður eftir aldri og mæta þeir vikulega í íþróttasal Árbæjarskóla, þar sem farið er í íþróttir eins og fótbolta, handbolta og bandí. Þeir hittast einnig í félagsmiðstöðinni Tíunni eitt kvöld í viku og spila borðtenn- is, pool og fleira. Þá er stefnt að því að bjóða upp á tíma á Fylkis- vellinum í sumar og heimsækja svipaða hópa á landsbyggðinni. „Svo hittumst við líka alveg slatta utan hefðbundins æfingatíma og spilum þá fótbolta, handbolta, körfubolta og skemmtum okkur bara,“ segir Davíð. Þrátt fyrir annir kvartar hann ekki og segist hafa nægan tíma til að sinna öðrum áhugamálum. Þar er leiklist efst á dagskrá. „Ég er á leiklistarnámskeiði hjá Borg- arbörnum, sem kallast Unglist tvö,“ nefnir Davíð og getur þess að það sé í samræmi við fram- tíðarplönin. „Já, ég er nefnilega að klára Árbæjarskóla og ætla næsta vetur í listnám í FB,“ segir hann glaðbeittur og mælir með því að krakkar kynni sér það sem íþróttafélögin og frístundamið- stöðvarnar bjóði upp á í sumar. „Oft eru alls konar skemmtilegir hlutir í gangi.“ roald@frettabladid.is Allir fá að spreyta sig Davíð Örn Ingimarsson, nemi í tíunda bekk við Árbæjarskóla, ver stórum hluta frítíma síns í íþróttir og hefur síðastliðin tvö ár tekið þátt í starfi Sportklúbbs Árbæjar af fullum krafti. MINNINGARSJÓÐUR Margrétar Oddsdóttur var stofnaður nýlega. Margrét var skurðlæknir á Landspít- alanum en lést úr krabbameini árið 2009 langt fyrir aldur fram. Sjóðnum er ætlað að styrkja skurðlækningar við brjóstakrabbameini á Landspítala. www.lsh.is Davíð og vinir hans hafa tekið þátt í starfi Sportklúbbsins í vetur. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /R Ó SA Patti húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Láttu þér líða vel í sófa frá Patta Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 269.90 0 kr Verð á ður 319.90 0 kr sws - 8922 horntunga Tímapantanir 534 9600Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA Nýju ReSound heyrnartækin endurvekja tilfinningu fyrir hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er á svipaðan hátt og þegar skipt er úr einföldum steríótækjum með tveimur hátölurum í kringóma (surround) heimabíó með hátalara til allra átta. Ný tækni . Betra verð . Fagleg þjónusta Frí ráðgjöf í maí ReSound heyrnartækin setja mann í miðpunkt hljóðheimsins sem maður hrærist í. Þegar maður getur fylgst betur með hljóðum sem berast úr öllum áttum nýtur maður góðs hljóms mun betur. Auðveldara er að átta sig á hvaðan hljóðið berst og maður getur notið þess að tala við fólk þó hávaði sé í umhverfinu. SURROUND KRINGÓMA Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.