Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 12
12 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Sjálfstæðismenn hafa haft
hreinan meirihluta í bæj-
arstjórn undanfarin átta
ár. Undir forystu Árna Sig-
fússonar bæjarstjóra unnu
þeir stóran sigur í síðustu
kosningum og hlutu sjö
bæjarfulltrúa af ellefu.
A-listi samfylkingar- og
framsóknarmanna fékk
fjóra. Við kosningarnar nú
bjóða fjórir stærstu flokkar
landsins fram undir eigin
merkjum.
Við síðustu sveitarstjórnarkosn-
ingar vorið 2006 var mikil upp-
sveifla í efnahagslífinu. Þau
umskipti sem orðið hafa síðan
í þjóðlífinu eru ekki síst greini-
leg á Suðurnesjum. Snemma á
kjörtímabilinu hætti bandaríski
herinn endanlega starfsemi á
Keflavíkurflugvelli. Þar sáu Suð-
urnesjamenn á bak burðarási í
sínu atvinnulífi í meira en hálfa
öld. Leit að nýjum atvinnutæki-
færum hefur staðið undanfarin ár
og ekki er vanþörf á. Atvinnuleysi
er nú hvergi meira, 1.754 íbúar
Suðurnesja eru skráðir án atvinnu,
rúmlega ellefu prósent af fullorðnu
fólki á svæðinu.
Bjartsýnisleg áætlun
Sú fjárhagsáætlun sem meiri-
hluti sjálfstæðismanna sam-
þykkti fyrir bæjarstjórnina í upp-
hafi þessa kosningaárs byggðist á
því að bjartari tímar væru fram
undan, strax á þessu ári. Lagt var
til grundvallar að 2.700 til 2.900
ný störf mundu skapast í sveit-
arfélaginu í ár og útsvarstekjur
aukast um rúm sextán prósent.
Þar var litið til álvers Norðuráls
í Helguvík, Reykjanesvirkjunar
og gagnavers Verne Holding, nýs
sjúkrahúss og fjölmargra annarra
áforma. Þess er enn beðið að þessi
áform verði að veruleika.
Líkt og minnihluti bæjarstjórn-
ar lýsti Eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaga (EFS) efa-
semdum með þær forsendur sem
lagðar voru til grundvallar og
gerðu að verkum að sveitarstjórn-
in gat uppfyllt þá lagaskyldu að
afgreiða fjárhagsáætlun með
tekjuafgangi. EFS aðhafðist ekki
frekar í málum Reykjanesbæj-
ar en kallaði eftir því að bæjar-
stjórnin skilaði ársfjórðungsleg-
um upplýsingum um gang mála í
rekstrinum.
Umdeild orkumál
Málefni Hitaveitu Suðurnesja
(HS) hafa verið umdeild undan-
farin ár. Hvorki hefur verið sátt
innan bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar né við nágrannasveitarfé-
lögin um þá stefnu sem meirihlut-
inn hefur fylgt. Á síðasta ári seldi
bæjarstjórnin mestallan hlut sinn
í orkuframleiðsluhluta HS. Salan
bætti eiginfjárstöðu bæjarsjóðs
um milljarða króna samkvæmt
síðasta ársreikningi.
Fasteignir á leigu
Eitt þeirra atriða sem mest hefur
verið gagnrýnt snýr að Eignar-
haldsfélaginu Fasteign. Reykja-
nesbær er eigandi um 10 pró-
senta hlutafjár í félaginu sem er
eigandi langflestra fasteigna sem
bærinn notar til þess að halda úti
sinni þjónustu. Grunnskólar, leik-
skólar, íþróttahús, bæjarskrif-
stofur og skólpdælustöð bæjarins
eru í eigu Fasteignar og bærinn
greiðir um einn milljarð króna á
ári í leigu fyrir aðgang að eignun-
um samkvæmt samningum sem
fela í sér um það bil 12 milljarða
króna skuldbindingu næsta aldar-
fjórðung. Þessar skuldbindingar
hafa ekki komið fram í efnahags-
reikningi bæjarins og hefur verið
gagnrýnt að þar með gefi reikn-
ingar þess ekki raunsanna mynd
af raunverulegri stöðu sveitarfé-
lagsins.
Á því kjörtímabili sem nú er
að líða hefur stjórnarandstaðan í
bæjarstjórn starfað undir merkj-
um A-listans. Því samstarfi hefur
nú verið slitið. Stóru flokkarn-
ir fjórir bjóða allir fram undir
eigin merkjum til kosninganna í
Reykjanesbæ 29. þessa mánaðar.
Í Fréttablaðinu í dag eru birt-
ar niðurstöður skoðanakönnunar
sem gerð var meðal 800 bæjar-
búa í gær. Þar kemur fram hvaða
augum bæjarbúar líta flokkana
þegar lokasprettur kosningabar-
áttunnar er fram undan.
Atvinnu- og fjármál eru efst á baugi
„Við viljum efla íbúalýðræði og lýðræðislega stjórnar-
hætti,“ segir Kristinn Örn Jakobsson, nýr oddviti fram-
sóknarmanna í Reykjanesbæ. „Við höfnum því foringja-
einræði sem núverandi meirihluti hefur stundað.“
Auk atvinnumála og úrbóta í fjármálum bæjarins leggja
framsóknarmenn áherslu á að efla skoðanaskipti og
hefja gagnrýna umræðu til vegs og virðingar í sveitar-
stjórninni. Þeir vilja bera mikilvæg mál undir atkvæði
íbúa. Kristinn gagnrýnir harkalega að ákvarðanir um
stórmál á borð við sölu Hitaveitu Suðurnesja hafi verið
teknar án teljandi umræðu. Meirihlutinn hafi reynt að
fegra bókhaldið eftir 1.200 milljóna króna taprekstur með því að selja eign
bæjarbúa í Hitaveitu Suðurnesja til þess að bæta eiginfjárstöðuna. Enginn
verði hins vegar ríkari á því að selja eignir. „Árni Sigfússon talar um að það
vanti tekjur en það er eyðslan sem er vandamálið, ekki skortur á tekjum,“
segir Kristinn. Engin umræða hafi heldur farið fram meðal bæjarbúa um
þátttöku bæjarins í Fasteign, félaginu sem nú á flestar fasteignir sem bærinn
notar og fær um milljarð króna á ári í leigutekjur.
Viljum efla lýðræðislega stjórnarhætti
„Fyrsta verkefnið eftir kosningar verður að taka til í fjár-
málum sveitarfélagsins og koma á jafnvægi eftir óstjórn
Sjálfstæðisflokksins. „Tekjuhliðin hefur verið sniðin að
gjaldahliðinni,“ segir Friðjón Einarsson, nýr oddviti Sam-
fylkingarinnar í Reykjanesbæ. Allir sem reki heimili viti að
það gangi ekki að ákveða fyrst hvað maður ætli að eyða
miklu og áætla sér síðan tekjur í samræmi við eyðsluna.
Þetta hafi meirihluti sjálfstæðismanna þó gert á hverju
ári frá 2002. Uppsafnað tap skipti nú milljörðum. Fjár-
hagur sveitarfélagsins standi á brauðfótum.
„Við erum með mesta atvinnuleysi á Íslandi og stærstu fyrirtækin okkar
hafa farið halloka. Eini aðilinn sem sinnir atvinnuþróun er ríkið í gegnum Kad-
eco [Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar],“ segir Friðjón. „Við stefnum að því að
verja skólana, leikskólana og velferðarkerfið. Vonandi verður hægt að ná jöfn-
uði í fjármálum bæjarins á næsta kjörtímabili.” Friðjón leggur einnig áherslu
á að bæta samstarf við nágrannasveitarfélögin. Það hafi beðið skipbrot vegna
yfirgangs sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í deilum um orkunýtingu og eignar-
hald Hitaveitu Suðurnesja.
Fyrsta verkefnið verður að taka tilFyrst og fremst
þurfa fjármál
bæjarins mikill-
ar endurskoð-
unar við,“ segir
Gunnar Marel
Eggertsson,
nýr oddviti
Vinstri grænna í
Reykjanesbæ.
Einnig þurfi að vinna eins vel og
hægt er að atvinnumálum og vel-
ferðarmálum almennt. VG leggi til
dæmis áherslu á ókeypis skólamál-
tíðir fyrir börn.
„Hér eru 1.750 manns atvinnu-
lausir,“ segir Gunnar Marel. „Það
stendur til að reisa álver en það
geta aldrei nema 150 manns af
atvinnuleysisskránni fengið vinnu í
álverinu.“
Gunnar telur álversáformin í
Helguvík illa ígrunduð. Aðeins brot
af þeirri orku sem álverið þarf sé
til reiðu. Þá séu störf í álveri þau
dýrustu sem hægt er að skapa,
hvert og eitt kosti 200 milljónir
króna. Gagnaverið sé hins vegar
jákvætt verkefni en skoða þurfi að
nýju öll áform um nýtingu Vallar-
svæðisins. „Manni hefur sýnst að
það séu helst einhverjir vildarvinir
sem hafa fengið þar góða bita,“
segir Gunnar Marel. „Það er ekki
svona sem á að gera hlutina í dag.“
Þá segir hann að fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir þetta ár einkennist af
óskhyggju og gagnrýnir að meiri-
hlutinn hagi sér eins og enn sé árið
2007 meðan ábyrgir aðilar í landinu
sjái nauðsyn þess að taka til og rifa
seglin.
Þarf að taka til
Árni Sigfússon, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna,
segir að atvinnumál, fjölskyldumál og umhverfismál
séu helstu mál bæjarstjórnarkosninganna í Reykjanes-
bæ. Hann segist bjartsýnn á að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi hreinum meirihluta að loknum kosningum. „Ég
hef lýst því að ég er tilbúinn til að leiða þetta starf
áfram og óska eftir stuðningi til þess,“ segir Árni. „Ég
hef góða tilfinningu fyrir að íbúar vilji halda þessari
stjórn áfram.
Það skiptir mestu máli að við náum að vinna okkur
í gegnum atvinnuvandann. Þar eru mörg stór verkefni í
undirbúningi.“ Árni segir þúsundir vellaunaðra starfa í undirbúningi í álveri,
kísilveri, nýju sjúkrahúsi, gagnaveri og fleiri verkefnum. „Það er mín ætlan
að okkur takist að skapa þessi störf og gera þau raunveruleg upp úr miðju
þessu ári. Til þess þurfum við öflugan stuðning bæjarbúa.“ Einnig leggur
hann áherslu á að halda áfram frumkvöðulsstarfi í fjölskyldu- og forvarna-
og umhverfismálum sem unnið hafi verið í Reykjanesbæ undanfarin ár.
Er tilbúinn til að leiða þetta starf áfram
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR 2010
REYKJANESBÆR Fjórir stærstu flokkar landsins bjóða fram undir eigin merkjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Atvinnumál-
in eru áberandi í umræðunni fyrir kosningar enda atvinnuleysi mikið í sveitarfélaginu, en um 11 prósent íbúa eru án atvinnu.
PÉTUR GUNNARSSON
peturg@frettabladid.is
Sótt að hreinum meirihluta sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ
BS nám í viðskiptafræði með
vinnu í Háskóla Íslands
Haldinn verður kynningarfundur um námið
miðvikudaginn 12. maí kl. 12-13 í stofu 102 í Gimli.
Nánari upplýsingar má finna á www.bsv.hi.is
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ