Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 26
11. MAÍ 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● landið mitt
Þegar sumarið gengur í garð huga
margir að því að draga fram
gönguskóna. Höfuðborgarbúar
þurfa ekki að leita langt yfir
skammt til að finna áhugaverð fjöll
í grennd við heimahagana sem
kjörin eru til fjallgöngu og hér má
finna nokkur þeirra.
Akrafjall er eitt helsta kennileiti við
innanverðan Faxaflóa. Ganga á
Akrafjall er tiltölulega auðveld og
er oft hafin í austurhlíðunum við
bæinn Stórufellsöxl þótt hægt sé
að keyra lengra upp í brekkurnar.
Fallegt útsýni er af tindum
Akrafjalls og í góðu skyggni blasa
Esjan og Botnssúlur við og í norðri
má sjá Skarðsheiðina, fjöllin á
Mýrunum og Snæfellsnesi og
Snæfellsjökulinn sjálfan.
Móskarðshnúkar kallast austasti
hluti Esju-fjallgarðsins en Svína-
skarð skilur þá frá Skálafelli.
Móskarðshnúkarnir eru fjórir talsins
og er oftast gengið á þá að
sunnanverðu. Uppi á hæsta
tindinum, Móskarðshnúk, er
fallegasta útsýnið til austurs og
vesturs. Á heimleiðinni er hægt að
velja um nokkrar leiðir, til dæmis
má lengja leiðina til baka með því
að ganga á vestari tindana.
Nokkuð auðvelt er að ganga upp
vesturhlíð Arnarfells í Krýsuvík.
Aðrar leiðir eru þó færar en reyna
aðeins meira á. Þegar upp á fellið
er komið kemur Eiríksvarða í ljós
sem séra Eiríkur Magnússon hlóð
svo erlendir vígamenn myndu ekki
ráðast á Krýsuvík og Krýsuvíkur-
kirkju.
Keilir vekur talsverða athygli því
hann stendur einn og sér og skilur
sig frá fjallgarðinum á Reykjanes-
skaganum. Flestir ganga á Keili frá
suðaustri en gangan hefst þó við
Höskuldarvelli og farið er yfir um
þriggja kílómetra langt hraun á
Oddafelli áður en komið er að
fjallinu. Gangan er nokkuð
strembin því á köflum geta verið
lausar skriður sem renna undan
fæti. - mmf
Oft virðist sem sólin skíni á
Móskarðshnúka þótt sú sé ekki raun-
in en ástæðan er að þeir eru gerðir úr
ljósu líparíti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Neðanvert Akrafjallið er ekki síður
áhugavert en efri hluti þess en þar
má finna fjölda minja frá fyrri tíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Menn hafa velt fyrir sér nafni Arnar-
fells og telja sumir að það dragi nafn
sitt af fornu arnarhreiðri í austan-
verðu fellinu. Aðrir telja líklegra að
nafnið sé komið frá lögun fellsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Frá Keili er víðsýnt, sérstaklega yfir
Flóann og Vatnsleysuströndina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJALLGÖNGUR VIÐ BORG
Á sýningunni gefur að líta gögn og muni í eigu fjölskyldu Jóns Björnssonar frá Bæ og
Helgu Maríu Björnsdóttur konu hans.
Sýningin Kaupmannsheimilið
verður opnuð í Safnahúsi Borg-
arfjarðar í Borgarnesi á morgun
en þar gefur að líta gögn og muni
í eigu fjölskyldu Jóns Björnsson-
ar frá Bæ og Helgu Maríu Björns-
dóttur konu hans. Uppistaða sýn-
ingarinnar er rausnargjöf sem
söfnunum barst fyrir nokkru.
Jón frá Bæ stundaði kaup-
mennsku í Borgarnesi á fyrstu
áratugum 20. aldar og var heim-
ili þeirra hjóna mikilvægur horn-
steinn bæjarlífsins á þeim tíma.
Sýningin er sett upp í tilefni af
50 ára afmæli Byggðasafns Borg-
arfjarðar og verður haldið upp á
afmælið samhliða opnuninni. Í
tilefni dagsins mun Sæmundur
Sigmundsson auk þess heiðra af-
mælisbarnið með sýningu á forn-
bílum úr sinni eigu.
Sýningin verður opnuð klukkan
17.30 en stendur síðan opin frá 13
til 18 fram til 15. nóvember.
- ve
Opnun í Borgarnesi
10
12
9
8
7 6
5
2
3 4
13 11
1
Veitingastaðir á öllum hótelum
Alltaf stutt í sund • Vingjarnleg þjónusta
Gistiverð frá 5.000 kr. á mann • Fimmta hver nótt frí
BROSANDI
ALLAN HRINGINN
Pantaðu allan hringinn á www.hoteledda.is eða í síma 444 4000
13 HÓTEL
ALLAN HRINGINN
1 ML Laugarvatn • 2 ÍKÍ Laugarvatn • 3 Skógar • 4 Vík í Mýrdal • 5 Nesjum
6 Neskaupstaður • 7 Egilsstaðir • 8 Eiðar • 9 Stórutjarnir • 10 Akureyri
11 Laugarbakki • 12 Ísafjörður • 13 Laugar í Sælingsdal