Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 6
6 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
FERÐAÞJÓNUSTA „Þetta var með því
flottara sem ég hef séð og hef þó
oft farið í góðu veðri,“ segir Harald-
ur Örn Ólafsson fjallaleiðsögumað-
ur sem gekk á Hvannadalshnúk á
laugardag ásamt vel á annað hundr-
að manns. Einstök veðurblíða var
á Öræfajökli og útsýnið stórbrotið.
„Loftið var óvenjutært. Það er sjald-
gæft að það sé fullkomið útsýni í 360
gráður,“ segir Haraldur.
Einar Rúnar Sigurðsson, fjallaleið-
sögumaður í Hofsnesi í Öræfum, var
líka á Hnúknum á laugardag og tekur
undir með Haraldi. „Það er sjaldan
sem Snæfell, Herðubreið og Hekla
sjáist allt í senn,“ segir Einar sem
var aftur kominn á Hnúkinn í gær
– þá í 254. skiptið.
Haraldur segir snjólagið á Öræfa-
jökli áberandi þunnt miðað við árs-
tíma. Þar ráði helst snjóléttur vetur.
Sólardagar að undanförnu og örþunnt
öskulag úr eldgosinu í Eyjafjallajökli
flýti fyrir bráðnun. „Menn verða að
fara mjög varlega í kringum sprung-
urnar,“ segir Haraldur. „Þetta verður
erfiðara eftir því sem líður á sumar-
ið og það kemur að því að menn velti
því fyrir sér hvort leiðin sé fær. Það
þarf þó ekki að hafa áhyggjur í maí
en það gætu skapast vandræði í júní.
Í fyrra mátu menn það um miðjan
júlí að ekki væri lengur hættandi á
að fara með hópa en það gæti færst
töluvert framar í árið núna.“
Laugardagurinn síðasti var fyrsti
stóri dagurinn á Hnúknum í ár. Eins
og áður sagði er talið að hátt í tvö
hundruð manns hafi gengið upp.
Áætlað er að um 1.500 manns hafi
gengið á Hnúkinn í fyrra og var það
metár. Er jafnvel búist við að enn
fleiri leggi á toppinn í ár.
bjorn@frettabladid.is
Fágæt sýn til allra
átta af Hnúknum
Stórbrotið útsýni blasti við göngufólki af Hvannadalshnúki á laugardag. Vel
sást til Heklu, Herðubreiðar og Snæfells. Sjaldgæft er að sýn sé til allra átta.
Snjólagið á Öræfajökli er óvenjuþunnt og vandræði kunna að skapast í júní.
TOPPNUM NÁÐ Loftið var óvenjutært á toppi Hvannadalshnúks á laugardag og
útsýnið stórbrotið eftir því. FRÉTTABLAÐIÐ/ BÞS
VIÐ RÆTUR HNÚKSINS Fjallgöngufólk býr sig undir síðasta áfanga ferðarinnar, að
ganga á sjálfan Hvannadalshnúk. Hátt í tvö hundruð manns gengu á hæsta tind
landsins á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ BS
Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift
Hafðu samband við
ráðgjafa okkar í
síma 460 4700 eða
kynntu þér málið
á www.iv.is
@
TÆKNI Bandaríska tæknifyrir tæk-
ið HP hefur hætt við að keyra
nýja spjaldtölvu fyrirtækisins
á stýrikerfinu Windows 7 frá
Micro soft. Þess í stað mun tölv-
an, sem fengið hefur vinnu heit-
ið HP Hurricane, nýta WebOS-
stýrikerfið, sem fylgdi með í
kaupum HP á lófatölvufyrirtæk-
inu Palm í lok apríl.
Netmiðillinn Mobiledia segir
að tölva HP, sem væntanleg er á
þriðja ársfjórðungi, hafi þótt of
þung og ýmis önnur vandamál
komið upp. Því hafi verið breytt
um stefnu. - jab
Væntanleg spjaldtölva HP:
Windows skipt
út fyrir PalmOs
FRUMGERÐIN Það var enginn annar en
Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, sem
kynnti frumgerð spjaldtölvunnar frá HP
í janúar. Þá stóð til að hún byggði á
stýrikerfi frá Microsoft. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ORKUMÁL HS Orka og Orku-
stofn un eru enn að skiptast á upp-
lýs ingum vegna umsóknar um
leyfi fyrir stækkun Reykja nes-
virkjunar. Sótt var um stækkun
í október, en orkan á að fara til
álvers í Helguvík. Guðni Jóhann-
esson orkumála stjóri vill ekkert
segja um hve nær umsóknin verði
afgreidd eða hvað tefur. Sótt er
um leyfi fyrir framleiðslu á 50
MW með aukinni háhitanýtingu
auk þess sem framleiða á allt að
35 MW með betri nýtingu jarð-
hitavökva. - pg
Stækkun Reykjanesvirkjunar:
Umsóknin enn
til meðferðar
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
handtók snemma á laugardag
mann sem hafði reynt að brjót-
ast inn til fyrrverandi eiginkonu
sinnar á Selfossi. Hann reyndist
ölvaður og bar á sér flökunarhníf
sem hann kastaði frá sér er hann
varð lögreglu var.
Maðurinn hafði um nóttina
ítrekað hringt í konuna og valdið
henni ónæði. Líkur eru á að lög-
reglustjóri fari fram á að mann-
inum verði gert að sæta nálgunar-
banni gagnvart konunni.
Ofsótti fyrrverandi eiginkonu:
Reyndi innbrot
vopnaður hnífi
STANGVEIÐI Ísland kemst ekki
á blað í umfjöllun tímaritsins
Forbes yfir álitlegustu áfanga-
staði stangveiðimanna í heimin-
um. Umfjöllunarefnið er veiði-
húsin sem gist er í, að því er
kemur fram á vef Stangveiðifé-
lags Reykjavíkur. Forbes fjallar
um veiðihús í Rússlandi, Kanada,
á Nýja-Sjálandi og víðar. Á þess-
um stöðum eru menn ýmist að
veiða Atlantshafslax, silung eða
stálhausa. „Þó svo að íslensku
árnar séu með háa meðalveiði og
álitnar meðal bestu laxveiðiáa
veraldar þá er aðbúnaður veiði-
manna mörgum áratugum á eftir
í gæðum að mati ferðamanna,
sérstaklega þegar litið er til verð-
lagningar á veiðileyfum,“ segir á
svfr.is. - gar
Ísland ekki með á topplista:
Keppa ekki við
erlend veiðihús
VEITT Á STÖNG Þótt íslensk stangveiði-
svæði séu á heimsmælikvarða þykja
veiðihúsin það ekki.
Á að fækka ráðuneytum?
JÁ 85,4%
NEI 14,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að taka sumarleyfi
á meðan HM í knattspyrnu
stendur yfir?
Segðu skoðun þína á visir.is
Hljóð berast frá flugrita
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakk-
landi telur sig hafa heyrt merki frá
flugrita Air France-þotunnar sem fórst
á leiðinni frá Rio de Janeiro til Parísar
á síðasta ári. Alls létust 228 manns í
slysinu.
FRAKKLAND
BRETLAND, AP Gordon Brown,
forsætisráðherra Bretlands,
tilkynnti í gær að hann myndi
segja af sér sem leiðtogi Verka -
mannaflokksins í haust. Hann
sagðist myndu stíga til hliðar
strax samþykki Frjálslyndir
demó kratar að mynda stjórn með
Verkamannaflokknum.
„Sem formaður míns flokks
verð ég að taka niðurstöðunni
[úr kosningunum] sem dómi
yfir mínum störfum,“ sagði
Brown. Hann hyggst víkja fyrir
septemberbyrjun í síðasta lagi.
Allt virðist nú stefna í að
Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndir
demókratar nái að mynda
samsteypustjórn, í kjölfar þess
að Verkamannaflokkurinn missti
meirihluta sinn í þingkosningum
síðastliðinn fimmtudag.
Forystumenn Íhaldsflokksins
hafa boðið Frjálslyndum demó-
krötum að haldin verði þjóðarat-
kvæðagreiðsla um hvort breyta
eigi breska kosningakerfinu.
Breytt kosningakerfi var eitt af
stærstu kosningamálum Frjáls-
lyndra demókrata. - bj
Flest stefnir í samsteypustjórn íhaldsmanna og frjálslyndra demókrata í Bretlandi:
Gordon Brown ætlar að víkja
HÆTTIR Gordon Brown tilkynnti að
hann ætlaði að segja af sér á fundi með
fjölmiðlafólki fyrir utan Downingstræti
10 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN