Fréttablaðið - 11.05.2010, Síða 18
18 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
BOB MARLEY (1945-1981)
LÉST Á ÞESSUM DEGI.
„Sérhver maður hefur rétt á því
að ákvarða sín eigin örlög.“
Bob Marley frá Jamaíku er einn
þekktasti tónlistarmaður sam-
tímans og var meðal þeirra fyrstu
til að kynna reggí-tónlistina fyrir
umheiminum. Meðal þekktra laga
hans eru No Woman No Cry, Could
You Be Loved og Three Little Birds.
„Maxí poppið vekur upp skemmtilega nostalgíu hjá mörgum
Íslendingum og við vitum af mörgum aðdáendum vörumerk-
isins. Á meðan poppið fékkst einungis á örfáum stöðum heyrð-
um við af fólki sem keyrði langar vegalengdir gagngert til að
ná sér í einn poka. Ég held að þetta sé mikið í undirmeðvitund
fólks,“ segir Ingimar Ingimarsson, sem ásamt Sæþóri Matthí-
assyni er eigandi Maxí popps. Fyrirtækið fagnar fjörutíu ára
afmæli sínu í ár og hefur gengist undir viðamiklar breyting-
ar undanfarið.
Maxí popp var stofnað árið 1970 af Rafni Benediktssyni
og var fyrirtækið í eigu og umsjá fjölskyldu hans í áratugi.
Lengi vel tengdu viðskiptavinir Maxí popps fyrst og fremst
við poppið sem fékkst í bíó, en þegar flest kvikmyndahús hófu
að framleiða sitt eigið popp færðist Maxí poppið í pökkum í
búðir. Rafn lést fyrir tæpu ári en nokkru áður, eða í september
2008, festu þeir Ingimar og Sæþór kaup á fyrirtækinu.
Ingimar segist ekki sjá eftir að hafa keypt reksturinn mán-
uði fyrir hrunið mikla. „Eftir á að hyggja var þetta mjög góð
tímasetning. Við erum að byggja þetta smátt og smátt upp á
eigin fé, skuldir eru mjög litlar og svo framvegis. Þetta er
mikið álag, til að mynda vorum við að framleiða hvert einasta
kvöld í heilt ár, en það gengur ekkert öðruvísi í dag. Við viss-
um það þegar við réðumst í þetta, enda höfum við báðir verið
lengi í bransanum,“ segir Ingimar.
Þegar Ingimar og Sæþór keyptu Maxí popp vann einn
starfsmaður í fyrirtækinu. Þeir hafa nú útvíkkað starfsemina
til muna og í dag hafa um fjörutíu manns atvinnu í tengslum
við fyrirtækið. Fjöldi nýjunga hefur litið dagsins ljós á mark-
aðnum undir merkjum Maxí popps eða koma á markað á næst-
unni og má þar nefna súkkulaðipopp, hvítlauks- og chili-olíu,
chili-sultu, kleinur, ástarpunga, soðið brauð og fleira. Maxí
er einnig í samstarfi við IGS, Flugeldhús Flugþjónustunnar
á Keflavíkurflugvelli og sér um sölu og dreifingu á Nordic
Deli-samlokum og einnig Viðbót á Húsavík sem framleiðir
mest vörur úr hreindýrakjöti, paté og fleira. „Við erum með
fleira fyrir framtíðina,“ segir Ingimar. kjartan@frettabladid.is
MAXÍ POPP: 40 ÁRA
Starfsmenn úr
einum í fjörutíu
POPPMENNING Þeir Ingimar og Sæþór festu kaup á Maxí poppi í
september 2008, mánuði fyrir hrunið mikla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigfríður Theódórsdóttir
Bjarnar,
áður til heimilis að Fannborg 8,
Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn
9. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Theódór Skúli Halldórsson Ólöf Helga Pálmadóttir
Sigfríður Guðný Theódórsdóttir
Pálmi Ólafur Theódórsson Birgitta Strange
Gunnlaugur Halldórsson Cécile Gaillot
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Vilhjálmsdóttir,
Hjallatúni, Vík í Mýrdal,
andaðist á Hjallatúni fimmtudaginn 6. maí. Útför
hennar fer fram frá Víkurkirkju föstudaginn 14. maí
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Dvalarheimilið Hjallatún.
Finnur Bjarnason
Gréta Bjarnadóttir
Oddný Bjarnadóttir Stefán Á. Stefánsson
Valborg Bjarnadóttir
Egill Bjarnason Sigurlín Tómasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurbjörg Hjálmarsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, áður
Gullsmára 8, Kópavogi,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi laugardaginn 1. maí, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju þriðjudaginn 11. maí kl. 15.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á FAAS, Félag áhuga-
fólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga.
Hjálmar Viggósson Ragnheiður Hermannsdóttir
Magnea Viggósdóttir Kenneth Morgan
Erna Margrét Viggósdóttir Kristján Þ. Guðmundsson
Helen Viggósdóttir Þórarinn Þórarinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir og
tengdamóðir,
Guðrún Sigríður
Eggertsdóttir,
áður til heimilis að Gnoðarvogi 32,
lést á Sunnuhlíð föstudaginn 7. maí.
Sigdór Helgason
Björk Sigdórsdóttir
Birgir Sigdórsson Sigrún Ólafsdóttir
Helga Helgadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Ingi Einarsson,
lést á líknardeild Landspítalans 7. maí.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 14. maí
kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á
Krabbameinsfélagið.
Karen Karlsdóttir
Viðar Ingason
Dagur Freyr Ingason
Karl B. Örvarsson
Grétar Örvarsson
tengdadætur og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Jakob Bragi Björnsson
frá Neðri-Þverá, Vesturhópi,
síðast til heimilis að Rauðarárstíg 36,
lést á líknardeild LSH, Landakoti þann 6. maí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 14. maí kl. 13.00.
Íris Kolbrún Bragadóttir Hannes Eðvarð Ívarsson
Jón Þorbergur Jakobsson Virgie Garcia
Ragnar Bragason
Björn Gísli Bragason
Haukur Davíð Grímsson Brynja Hrönn Bjarnadóttir
Jóhannes Hauksson Hildur Rut Sigurbjartsdóttir
afabörn og langafabörn.
Maðurinn minn og faðir okkar,
Jóhann Ágúst
Guðlaugsson,
frá Kolsstöðum í Dölum,
lést á heimili sínu laugardaginn 8. maí. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Steinunn Erla Magnúsdóttir
synir hins látna og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Helgi
Frímannsson
bankamaður, Hagamel 37, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudaginn
29. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
11. maí kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir
sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast láti líknar-
félög njóta þess.
Guðlaug Kristín Runólfsdóttir
Frímann Ólafsson Margrét Þórarinsdóttir
Kristín Ólafsdóttir Karl Óskar Hjaltason
Runólfur Ólafsson Anna Dagný Smith
Ólafur Haukur Ólafsson Guðbjörg Erlendsdóttir
Kjartan Ólafsson Ragnheiður Guðjónsdóttir
afa- og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Hinrik Karl Aðalsteinsson,
Lindargötu 9, Siglufirði,
sem lést miðvikudaginn 5. maí á Heilbrigðisstofnun
Fjallabyggðar á Siglufirði, verður jarðsunginn
frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 13. maí,
uppstigningardag, kl. 15.00.
Jón Aðalsteinn Hinriksson Anna Viðarsdóttir
Auður Helena Hinriksdóttir
Hinrik Karl Hinriksson Bylgja Rúna Aradóttir
Ástkær systir mín og mágkona,
Valgerður Þóra
Guðmundsdóttir Deak,
andaðist á heimili sínu í Calgary í Canada mánudaginn
3. maí sl. Útför hennar fer fram í kyrrþey.
Guðmunda Guðmundsdóttir Þórhallur Jónsson