Fréttablaðið - 11.05.2010, Page 24
11. MAÍ 2010 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● landið mitt
● VESTUR UM HAF Í VÍKINGA-
SKIPI Einleikurinn Ferðasaga Guðríð-
ar verður frumsýndur í Víkingaheimum
næstkomandi föstudag.
Ferð Guðríðar Þorbjarnardóttur,
sem var uppi í kringum árið 1000, frá
Íslandi vestur um haf og sem lauk
í Rómarborg er til umfjöllunar
í leikritinu. Það fer fram um
borð í víkingaskipinu Íslend-
ingi þar sem áhorfendum er
skipað til sætis. Guðríður
var í hópi fyrstu Evrópu-
manna sem náðu um
skeið bólfestu í Ameríku
en hún telst vera ein
víðförlasta kona síns tíma.
Verkið er í nýrri uppsetningu og
leikstjórn Maríu Ellingsen en með hlut-
verk Guðríðar fer leikkonan Þórunn Erna
Clausen. Allar nánar upplýsingar í síma 422
2000.
Víðs vegar um landið eru
bátaferðir í boði þar sem hægt
er að skoða eyjar, fuglalíf og
hvali og svo meginlandið frá
sjó. Ferð á bát gefur öllum
fjölskyldumeðlimum kost á
að njóta þar sem enginn situr
undir stýri. Hér er örfárra af
fjölmörgum ferðum getið.
Breiðafjörðurinn er með vinsæl-
ustu áfangastöðum sjóferðalanga
en Sæferðir sigla allt árið yfir
Breiðafjörð, frá Stykkishólmi til
Brjánslækjar, með viðkomu í Flat-
ey. Hægt er að ferja bílinn sinn
með en mikilvægt er að bóka fyr-
irfram fyrir bíla. Þeir sem vilja
stoppa milli ferða í Flatey geta
engu að síður tekið bílinn með yfir
fjörðinn og hann er þá bara send-
ur áfram á meðan stoppað er í eyj-
unni. Ýmsar aðrar sérferðir eru
í boði hjá Sæferðum og má þar
nefna Ævintýraferð, sjóstöng og
frá maí til júlí er boðið upp á sér-
staka miðnætursiglingu.
Í Vestmannaeyjum má nefna
til sögunnar bátaferðaþjónustuna
Viking Tours en fuglalífið í Eyjum,
með lundum, súlu, svartfuglum
og tugi annarra varpfugla er ein-
stakt. Oft má einnig sjá háhyrn-
inga, hnísur og höfrunga í ferðun-
um en siglt er á ferðamannabátn-
um Víkingi sem tekur um fimmtíu
farþega og eru nokkrar tegundir af
ferðum í boði. Með vinsælli ferðum
má nefna svokallaða hringsiglingu
sem er þá farin kringum Heimaey
og víðar við Eyjar og er leiðsögu-
maður með í för sem segir frá því
sem fyrir ber á íslensku, ensku og
þýsku. Endað er inni í Klettshelli
þar sem spilað er á hljóðfæri. Vik-
ing Tours bjóða einnig upp á hella-
skoðunarferð á bát og Surtseyjar-
ferð.
Hvalaskoðunarferðir má finna
víðs vegar um landið og af stöðum
þar sem hvalaskoðunarbátar eru
gerðir út má nefna Dalvík, Húsa-
vík, Keflavík, Sandgerði, Ólafsvík
og Drangsnes.
Fyrir þá sem komast ekki út úr
bænum og langar í bátsferð þarf þó
ekki að leita langt því frá Reykja-
víkurhöfn eru líka gerðir út hvala-
skoðunarbátar og má þar nefna
Eldingu sem er skemmtisiglinga-
skip og hægt er að fá kuldagalla
lánaða um borð endurgjaldslaust.
Elding býður líka upp á
meiri háttar ferðir í
Hvalfjörðinn þar
sem hann er
skoðað-
ur af
sjó á
björtum
sumarkvöldum.
- jma
Fuglar, hvalir, ferskt
sjávarfang og sjávargola
Sjóstangveiði er hægt að fara í víðs vegar um landið og bjóða meðal annars Sæferðir
upp á slíkar ferðir.
Hvalaskoðunarbáturinn Elding fer meðal annars í ferðir í Hvalfjörðinn þar sem hægt er að skoða fjörðinn í sumarkvöldsól.
Lundi, súla, svartfugl og aðrir varpfuglar
verða gjarnan á vegi þeirra sem ferðast
með Viking Tours.
Bátaferðalöngum er stundum
boðið upp á ferskt sjávar-
fang.
„Ég byrjaði sem hjúkka en er orðin
fyrsti kvendoktorinn í hjólavið-
gerðum,“ segir Sesselja Trausta-
dóttir hjá Doktor Bæk en staf-
irnir standa fyrir búnað, æfingu
og kjark. Með henni starfa aðrir
„heimilislæknar“ í hjólaviðgerð-
um, allt reynsluboltar.
„Doktor Bæk tók formlega til
starfa 20. apríl þegar hann skoðaði
og vottaði ástand rúmlega fjörutíu
reiðhjóla kennara og nemenda við
Norðlingaskóla. Allir fengu lím-
miða eftir skoðun og ástandsvott-
orð. „Þarna var pumpað í dekk og
keðjan smurð, skoðaðir gírar og
yfirfarnar bremsur, auk þess sem
bent var á það sem var í góðu lagi
og annað sem betur mátti fara,“
segir Sesselja. „Síðan hefur dokt-
orinn heimsótt fleiri skóla en einn-
ig fyrirtæki. Eftirspurnin er mikil
enda fólk meðvitaðra um gildi
menntunar, sem á líka við um
hjólið okkar,“ segir Sesselja sem
fer fyrir Hjólafærni á Íslandi sem
er ávöxtur samvinnu Landssam-
taka hjólreiðamanna og Íslenska
fjallahjólaklúbbsins (sjá hjolafa-
erni.is).
„Doktor Bæk getur farið yfir
ástand hjólsins, séð hvort það sé
í góðu lagi eða þarfnist viðgerð-
ar,“ segir Sesselja sem hvetur
til hjólreiða enda fínn ferðamáti
yfir sumarið. Áhugasamir geta
sent línu á hjolafaerni@lhm.is eða
hringi í s. 864 2776. - þlg
Hjólandi hjólalæknir
Sesselja Traustadóttir hjá Doktor Bæk er fyrsti kvendoktorinn í hjólaviðgerðum. Hér
er hún að leggja lokahönd á verk sitt og á bara eftir að setja ástandsskoðunarmiða
Doktors Bæk á hjólið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kemur út miðvikudaginn 12. maí
Sérblaðið
Baðherbergið
Auglýsendur vinsamlegast hafi ð samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 512 5439