Fréttablaðið - 19.05.2010, Side 20
HÁLENDISHANDBÓKIN , ökuleiðir,
gönguleiðir og áfangastaðir á hálendi Íslands er
komin út í þriðja sinn. www.fi.is
„Þetta eru 25 gönguleiðir á þessu
svokallaða höfuðborgarsvæði,“
segir Reynir Ingibjartsson, höf-
undur bókarinnar 25 gönguleiðir
á höfuðborgarsvæðinu, sem kom
út fyrir skömmu hjá Sölku. „Það
má eiginlega segja að uppistaðan í
bókinni séu gönguferðir fjölskyld-
unnar. Þegar krakkarnir voru litl-
ir þá fórum við hjónin mikið um
þetta svæði. Þannig kynntist ég
höfuðborgarsvæðinu.“
Reynir segir að
ekki þurfi að fara í
löng ferðalög til þess
að upplifa náttúruna.
„Við fórum í gönguferð-
ir, kannski ekki síst til
að láta krakkana komast
í snertingu við hafölduna,
vötn eða skóg til að upplifa nátt-
úruna. Þetta er raunar það sem
allir geta gert,“ útskýrir Reynir
sem valdi leiðir í kringum höfuð-
borgarsvæðið sem hann þekkti af
eigin raun.
Reynir segir að fyrsta göngu-
leiðin í bókinni byrji fyrir utan
álverið í Straumsvík. „Svo er
ströndinni bara fylgt upp í Mos-
fellsbæ og er leitast við að tengja
leiðirnar við sjó, vatn eða læk.
Síðan er vötnunum fyrir ofan
byggðina frá Hafra-
vatni og suður
að
Hvaleyrarvatni fyrir ofan Hafnar-
fjörð fylgt,“ segir Reynir. „Þetta
eru hringleiðir þannig að fólk
gengur aldrei sömu leiðina tvisv-
ar. Ég miðaði við það að göngurn-
ar tækju frá einum og upp í tvo
klukkutíma.“
Bókin er byggð upp þannig að
kort og leiðbeiningar fylgja hverj-
um göngutúr, ásamt leiðarlýsingu
og umfjöllun um það sem fyrir
augu ber. „Á þessum leiðum rakst
ég víða á útilistaverk, skúlptúra
og minnismerki. Einn þátturinn
er að fólk horfi ekki bara niður
fyrir fæturna á sér heldur að það
horfi til hliðanna og upplifi það
umhverfi sem það fer um.“
Reynir tók flestar myndir bók-
arinnar. „Þær eru myndir venju-
legs göngumanns sem tekur
myndir af því sem hann sér.“
martaf@frettabladid.is
Í snertingu við náttúruna
Bók um gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu er komin út. Reynir Ingibjartsson segir að hugsunin að baki
bókinni sé sú að finna gönguleiðir í jaðri þéttbýlisins sem eru samt í náttúrutengdu umhverfi.
Ein af hinum 25 gönguleiðum er um Öskjuhlíðina að sögn Reynis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Það hefur mikið verið spurt um
aðgengilegt gönguefni fyrir útlendinga,“
segir Reynir en bókin er gefin út bæði á
íslensku og ensku.
Ísland er meðal
öruggustu staða í
heimi fyrir ferðamenn
að heimsækja, segir á
vefnum tourisim-reviw.
com. Lág glæpatíðni og
lögregla sem ekki ber
vopn eru meðal atriða
sem talin eru landinu
til tekna.
www.ferdamala-
stofa.is
KRASSANDI
INNRÉTTINGATILBOÐ
30% afsláttur
Á VERKSTÆÐI OKKAR
ÞAR AÐ AUKI
FRÍ SAMSETNING!
30%
ELDHÚS - BAÐ - ÞVOTTAHÚS - FATASKÁPAR
friform.is
VEITINGASTAÐUR - VERSLUN - TAKEAWAY
Suðurlandsbraut 12 - Sími 557 5880 - www.kruska.is
Opið alla virka daga frá 11:00 til 20:00
Nú býðst þér 2 fyrir 1 alla daga eftir kl. 14 í maí.
Við bjóðum daglega upp á ljúffenga grænmetis-,
kjúklinga- og fiskrétti til að taka með sér eða njóta á
staðnum. Matseðill okkar er endurnýjaður vikulega
og er aðgengilegur á heimasíðu okkar, www.kruska.is
Opið frá
11-20
VORDAGAR HJÁ KRÚSKU