Fréttablaðið - 19.05.2010, Qupperneq 22
19. MAÍ 2010 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● heilsa
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
Ísland hefur upp á margt að bjóða. Yfir sumarið opnast ýmsir möguleikar um land allt sem er um að
gera að nýta sér. Allt frá heitfenginni líkamsrækt yfir í fjölskyldustundir á róló – þá er eitthvað fyrir
alla til að njóta landsins til hins ýtrasta. Hér eru sjö hugmyndir til að prófa í sumar. - sv
Sjö hugmyndir að
heilsusamlegu sumri
Hot-Yoga Hægt er að stunda Hot-yoga í
mörgum líkamsræktarstöðvum á landinu, til
dæmis í Hress Hafnarfirði og Sporthúsinu.
Æfingar fara fram í 40° heitum sal þar sem
rakastigið er 40%. Hot-yoga samanstendur
af 26 æfingum, og kemur hita- og rakastigið
í veg fyrir meiðsl og veita dýpri og meiri
liðleika í líkamann.
Sjósund Það er bara málið að skella sér út í. Þetta verður kalt fyrstu fimmtán sund-
tökin, en svo byggir líkaminn upp þol við kuldanum. Eftir sundið er um að gera að
skella sér í heitan pott í góðra vina hópi. Átak – Heilsurækt á Akureyri tekur á móti
sjósundfólki með góðri þjónustu og heitum potti sem er uppi á þaki hússins og er
útsýnið gott yfir Pollinn.
Náttúrulaug Víða um land er hægt að
skella sér í náttúrulaug eða því sem
næst. Volg laug er í Heydal við Mjóafjörð
í Djúpi. Þá er ölkeldulaugin á Snæfells-
nesi vinsæl en um er að ræða sundlaug
með náttúrulegu ölkelduvatni við
Lýsuhól 6. Einstaklega gott fyrir húðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jurtate Náttúra landsins
býður upp á heilsusamlega
og bragðgóða læknis-
meðferð allt sumarið. Best
er að tína jurtirnar í móum
og heiðum fyrir utan bæi en þær
eru algengar um allt land.
Grænmetismarkaðir Íslenska sumarið býður upp á ótrúlegt
úrval af grænmeti. Gulrætur, klettasalat, spergilkál, rófur, rad-
ísur, rauðkál. Möguleikarnir eru margir, meinhollir, skemmti-
legir og gefandi. Hægt er að kaupa lífrænt ræktað grænmeti í
flestum stórmörkuðum á landinu en einnig er hægt að kaupa
beint frá býli, meðal annars í Vallanesi á Fljótdalshéraði, Akri á
Selfossi, Auðsholti á Flúðum og Reykjum í Fnjóskadal. Nánari
upplýsingar er að finna á www.beintfrabyli.is.
Að róla sér Vanmetin skemmtun sem fullorðnir fara oft á mis
við. Það hressir, bætir og kætir – og getur orðið að skemmti-
legri fjölskyldustund þar sem foreldrar fá að verða börn í smá
tíma. Aðgangseyrir á róluvelli landsins er enginn og þá er að
finna í flestum hverfum.
● BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI Um síðustu áramót
komu á markað hérlendis heyrnartæki sem búin eru kringóma hljóð-
vinnslu sem þykja marka tímamót í heyrnartækjum.
Mikið hefur verið fjallað um það í vísindatímaritum að heilahvelin
gegna ólíkum hlutverkum í heyrninni. Heyrnartækin nýju vinna þannig
að annað tækið greinir hljóð og hitt tækið er á vakt en hér áður fyrr voru
heyrnartækin alltaf að vinna sama hlutverk og gáfu því röng skilaboð
áfram. Tilfinningin fyrir umhverfinu batnar því þegar hljóðheimurinn er
skynjaður á óbjagaðan hátt og tækin gefa því réttari og eðlilegri heyrn
sem fær notendur heyrnartækjanna til að gleyma því frekar að þeir séu
með hjálpartæki.
Heyrnartæki sem þessi fást til dæmis hjá Heyrn en hægt að fá nokkrar
gerðir af tækjunum. Misjafnt er hvernig tæki fólk þarf og fer það eftir því
hvort mikill erill er í kringum það
dagslega. - jma
Súkkulaðinudd Laugar Spa bjóða upp á
nýjung í líkamsnuddi þar sem nuddað er
með súkkulaði, salti og ilmkjarnaolíum.
Súkkulaði er ríkt af andoxunarefnum,
örvar blóðrásina og nudd með súkkulaði
ætti að krydda sumarið á skemmtilegan
hátt.
● Jurtablanda við
kvefi
Jurtirnar vaxa
um allt land yfir
sumartímann og
eru bragðgóðar í
te og seyði
● Blóðberg
● Vallhumall
● Gleym-mér-ei
● Fjallagrös