Fréttablaðið - 19.05.2010, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2010 27
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
hefur átt í viðræðum við Port-
smouth um nýjan samning sem
félagið hefur boðið honum. Þetta
kom fram í enskum fjölmiðlum í
gær en Hermann er nú að glíma
við erfið meiðsli. Hann sleit hásin
í leik með Portsmouth fyrr í
vetur og verður frá vegna meiðsl-
anna langt fram á þetta ár.
Ekki allir fá nýjan samning við
félagið sem hefur átt í miklum
fjárhagserfiðleikum og er nú
í greiðslustöðvun. „Við höfum
þó rætt við Hermann um nýjan
samning. Við ræddum saman
á föstudaginn en hann fór í frí
í gær. Hann vill vera áfram og
þurfum við á fólki eins og honum
að halda,“ sagði Andrew Andron-
ikou, skiptastjóri Portsmouth.
„Hann hefur mikinn eldmóð og
drifkraft auk þess að honum
þykir afar vænt um félagið,“
bætti hann við. - esá
Hermann Hreiðarsson:
Boðinn nýr
samningur
HERMANN Leikur líklega með Port-
smouth í ensku B-deildinni á næstu
leiktíð. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI José Mourinho, stjóri
Inter á Ítalíu, er engum líkur og
sló á létta strengi á blaðamanna-
fundi á æfingasvæði Inter í Míl-
anó í gær. Mourinho var spurður
hvort hann hefði áhyggjur fyrir
leikinn gegn Bayern München í
úrslitum Meistaradeildar Evrópu
um helgina.
„Ég hef áhyggjur af Guðjohn-
sen,“ sagði hann, blaðamönnum
til mikillar furðu. „Ég veit ekki
hvað eldfjallið heitir. Það er
of erfitt. Þannig að það heitir
Guðjohnsen.“
José Mourinho og Eiður Smári
Guðjohnsen þekkjast vel enda lék
sá síðarnefndi undir stjórn Mour-
inho hjá Chelsea og urðu þeir til
að mynda tvöfaldir Englands-
meistarar saman hjá félaginu.
„Ég hef áhyggjur af eldfjall-
inu. Ég vildi helst fara [til Madr-
ídar] á föstudaginn en það gæti
farið svo að við þyrftum að fara
á morgun. Ég vildi helst halda
áfram að vinna hér og er það mitt
eina áhyggjuefni.“ - esá
José Mourinho:
Eyjafjallajökull
er Guðjohnsen
JOSÉ MOURINHO Þekktur fyrir litrík
ummæli í fjölmiðlum. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Enskir og spænskir fjöl-
miðlar greindu frá því í gær að
Cesc Fabregas hefði tilkynnt Ars-
ene Wenger, knattspyrnustjóra
Arsenal, að hann vildi yfirgefa
félagið og ganga til liðs við Bar-
celona. Fundurinn var sagður hafa
verið tilfinningaþrunginn en ekk-
ert hefur þó fengist staðfest í þess-
um efnum.
Fabregas sagði í síðustu viku að
ef hann færi frá Arsenal myndi
einungis koma til greina að ganga
til liðs við Barcelona.
„Það er athyglisvert að leikmað-
urinn hafi látið hafa þetta eftir sér.
Ef við teljum að við þurfum að láta
til skarar skríða munum við gera
við það og ræða við Arsenal,“ sagði
Joan Laporta, forseti Barcelona.
„Ég held ég vilji fara til Barce-
lona,“ sagði Fabregas. „En hvort
félagið vill fá mig er annað mál.“
Fabregas fór frá Barcelona til
Arsenal árið 2003, þá sextán ára
gamall. Hann á að baki alls 267
leiki með félaginu á sjö tímabilum
og hefur skorað í þeim 46 mörk.
Hann átti við meiðsli að stríða á
nýliðnu tímabili og spilaði síðast
með Arsenal í mars síðastliðnum.
- esá
Cesc Fabregas líklega á leið frá Arsenal og til Barcelona nú í sumar:
Tilkynnti Wenger ákvörðun sína
CESC FABREGAS Fjölmiðlar á Englandi
og Spáni segja líklegt að hann hafi
spilað í síðasta sinn með Arsenal.
NORDIC PHOTOS/AFP
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín