Fréttablaðið - 19.05.2010, Síða 46
30 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. niður, 6. frá, 8. skordýr, 9. hár, 11.
berist til, 12. spjóta, 14. sauma, 16.
pot, 17. sigti, 18. að, 20. bardagi, 21.
handa.
LÓÐRÉTT
1. ker, 3. tveir eins, 4. land í S.-Evr-
ópu, 5. net, 7. fjölmargir, 10. farfa,
13. fljótfærni, 15. vegur, 16. pota, 19.
950.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofan, 6. af, 8. fló, 9. ull,
11. bt, 12. geira, 14. stang, 16. ot, 17.
sía, 18. til, 20. at, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. laug, 3. ff, 4. albanía, 5.
nót, 7. flestir, 10. lit, 13. ras, 15. gata,
16. ota, 19. lm.
„Við lítum á Hleðslu sem jógúrt-
drykk – hann er súr. Prótíndrykk-
ir eiga ekki að vera súrir,“ segir
fitnessmeistarinn Arnar Grant,
sem er á bak við prótíndrykkinn
Hámark ásamt útvarpsmanninum
Ívari Guðmundssyni.
Um síðustu helgi birtust auglýs-
ingar frá MS um að Hleðsla væri
vinsælasti prótíndrykkur lands-
ins. Arnar og Ívar auglýsa einnig
um þessar mundir að Hámark sé
vinsælasti prótíndrykkur lands-
ins. Arnar er undrandi á auglýs-
ingum MS og segir að Hleðsla
hafi hingað til ekki verið mark-
aðssett sem prótíndrykkur held-
ur íþróttadrykkur. Þá fullyrðir
hann að Hámark hafi selst meira
á árinu, en auglýsingar MS mið-
ast við tímabilið 1. febrúar til 28.
mars.
„Það stendur hvergi utan á
drykknum hjá þeim að hann sé
prótíndrykkur,“ segir Arnar.
„Þannig að mér fannst þetta ágæt-
isauglýsing fyrir okkur, sem aug-
lýsum okkar drykk sem prótín-
drykk. Mínar ráðleggingar til
þeirra væru að skipta um umbúðir
í samræmi við auglýsingarnar.“
Arnar segir þá hefð ríkja að
um 10 prósent prótíndrykkja séu
prótín. „Þegar hlutfall af prót-
íni í drykknum er svona lágt eins
og hjá þeim þá er tæpast hægt að
kalla drykkinn prótíndrykk,“ segir
hann. „Við erum með hærra magn
af prótíni í okkar drykk og getum
þess vegna staðið undir því að
kalla hann prótíndrykk.“
Arnar bætir við að 25 grömm af
prótíni séu í Hámarki eða 10% af
innihaldi drykkjarins.
Guðný Steinsdóttir, markaðs-
stjóri MS, vísar ummælum Arnars
á bug og segir Hleðslu innihalda
22 grömm af mysuprótín. „Við
fórum þá leið að tala um íþrótta-
drykki því að það eru kannski
fleiri sem skilja það hugtak en
prótíndrykk,“ segir hún. „Ef þú
lest utan á umbúðirnar eða ferð
inn á heimasíðuna okkar þá sérðu
að Hleðsla er prótíndrykkur. Það
er alveg á hreinu.“
Hleðsla frá MS kom inn á mark-
ARNAR GRANT: TÆPAST HÆGT AÐ KALLA HLEÐSLU PRÓTÍNDRYKK
Pústrar á prótínmarkaði
HÖRÐ PRÓTÍNBARÁTTA
Arnar Grant og Ívar Guðmundsson eru
á bak við prótíndrykkinn Hámark. Arnar
efast um að MS geti kallað Hleðslu
prótíndrykk. Guðný Steinsdóttir hjá
MS vísar ummælum Arnars á bug
og bendir á næringarupplýsingarnar
máli sínu til stuðnings. Egill Gillzen-
egger er á meðal þeirra sem auglýsa
Hleðslu en Veðurguðinn Ingó hefur
komið fram í auglýsingum Hámarks.
Útvarpsmaðurinn Sveinn H. Guð-
marsson flýgur til Jemens í næstu
viku þar sem hann mun starfa í
hálft ár sem upplýsingafulltrúi
fyrir Unicef, Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna, í gegnum íslensku
friðargæsluna.
„Ég mun bæði safna upplýs-
ingum og miðla þeim af ástand-
inu þarna,“ segir Sveinn. „Þarna
er mikið flóttamannavandamál og
þarna hafa verið átök undanfarin
misseri. Hátt í 200 þúsund manns
hafa verið á vergangi og mjög stór
hluti þeirra er börn og unglingar.
Þess vegna lætur Unicef til sín
taka.“
Spurður segir Sveinn að ástandið
í Jemen sé býsna slæmt. „Ég held
að þetta sé fátækasta ríki Mið-
Austurlanda. Landið er enn þá að
jafna sig eftir áralöng átök. Núna
eru þau á takmörkuðu svæði þar
sem stjórnarherinn hefur verið
að ganga á milli bols og höfuðs á
uppreisnarmönnum,“ segir hann.
„Það er síðan meira áhyggjuefni
að það er Al Kaída-hópur í Jemen
sem stjórnvöld eru að ráðast gegn
og hafa notið aðstoðar Bandaríkja-
manna. Það er klassískt að net
eins og Al Kaída reyni að koma
sér fyrir í löndum sem eru mjög
löskuð.“
Þrátt fyrir ástandið segist
Sveinn ekki hafa neitt að óttast.
„Ég reikna með að það verði séð
ágætlega um okkur. Landið er
hættulegt en hins vegar er ófrið-
urinn staðbundinn,“ segir hann
og býst við að dvelja í höfuðborg-
inni Sana´a sem er bæði friðsöm
og falleg.
Sveinn hlakkar til að takast á
við verkefnið en segist þó yfirgefa
morgunútvarp Rásar 2 með trega
þar sem hann hefur starfað frá
áramótum. Reiknar hann með að
snúa aftur í útvarpið að hálfu ári
liðnu en þangað til mun Guðmund-
ur Gunnarsson leysa hann af. - fb
Dvelur í Jemen í sex mánuði
SVEINN H. GUÐMARSSON Flýgur til
Yemen í næstu viku þar sem hann mun
dvelja í hálft ár.
„Ítalía er sígildur staður, það
er alltaf gott að fara þangað.
Hann klikkar ekki. Hornið er
líka frábært.“
Sigríður Friðriksdóttir, kaffihúsaeigandi í
Hafnarfirði.
aðinn með miklum látum á sínum
tíma og á meðal þeirra sem leika
í auglýsingum fyrir drykkinn eru
hinn tröllvaxni Egill Gillzenegger
og handboltakappinn Snorri Steinn
Guðjónsson. En óttast Arnar
samkeppnina?
„Við erum að auka við okkar
sölu, þannig að þetta er að stækka
markhópinn og við fögnum sam-
keppni,“ segir hann. „Hins vegar
höfum við ekki burði í að fara í
mikla samkeppni. Við erum að
keppa við stórfyrirtæki sem er
ríkisstyrkt. Við eigum rosa lítinn
séns í það.“ atlifannar@frettabladid.is
Sigmar Guðmunds-
son verður kynnir
Ríkissjónvarpsins
þegar flautað verður
til leiks í Eurovision
í næstu viku. Sigmar
heldur af landi brott
á fimmtudaginn
og verður að
treysta á
hagstæða
veðurspá
svo hann komist í tæka tíð til
Noregs. Lítið má útaf bregða enda
þykir það nauðsynlegur upplýs-
ingabrunnur fyrir þuli Eurovision
að horfa á sem flestar æfingar
keppenda. Sem fara einmitt fram
á þeim tíma.
Og meira frá
Ósló. Því eins
og venjan
er býður
sendiherrann í
Eurovisionlandi
yfirleitt til veislu
svo að kepp-
endur geti
kynnt sig og
þjóð sína
almenni-
lega.
Sendiherra Íslands í Noregi er
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
og hún mun að sjálfsögðu opna
sendiherrabústaðinn. Eftir því sem
Fréttablaðið kemst næst verður
sendiherraveislan þó í minna lagi
og hafa fulltrúar Íslands tekið þá
ákvörðun að í stað þess að bjóða
öllum þá verði fáum en útvöldum
leyft að koma.
Gísli Örn Garðarsson uppfyllti
eitt af síðustu skilyrðum þess að
leika í stórmyndinni Prince of
Persia á mánudagskvöldið. Því þá
var myndin forsýnd með mikilli
viðhöfn í Los Angeles. Engar
myndir eru til af Gísla á alþjóð-
legum myndabönkum frá
sýningunni en þær
myndir sem til eru
frá frumsýningunni
bera þess hins vegar
vott að kátt hafi
verið á hjalla hjá
stórstjörnum á borð
við Tom Cruise,
Jon Voight og
Bruce Willis.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýtt sundlaugarsvæði var tekið í gagnið í Vest-
mannaeyjum í byrjun maí og þykir hið glæsi-
legasta. Á svæðinu er meðal annars einstök
trampólínrennibraut, en aðeins tvær slíkar eru
til í heiminum í dag, þreföld hraðrennibraut
og klifurveggur auk nuddpotta og vaðlaugar.
Öskufall frá Eyjafjallajökli um helgina setti þó
strik í reikninginn og hefur svæðið verið lokað
síðustu daga.
Formleg opnun svæðisins fer fram á Fjöl-
skyldudegi Vestmannaeyja næsta laugardag
og segir Arnsteinn Ingi Jóhannesson, forstöðu-
maður Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja,
starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar og ýmsa
sjálfboðaliðar vinna hörðum höndum við að
þrífa öskuna sem féll á svæðið. „Við vorum
með opið í nokkra daga þar til við neyddumst
til að loka vegna öskunnar. Við erum á fullu
að moka upp úr laugunum núna en menn eru
nú ýmsu vanir og taka þessu með stóískri ró,
en auðvitað er þetta mjög svekkjandi. Maður
var auðvitað búinn undir eitthvert öskufall en
þetta var meira en ég hafði gert mér í hugar-
lund. Hugur manns er þó frekar hjá þeim uppi
á landi, þar sem ástandið er mun verra en hér.“
Að sögn Arnsteins voru þeir gestir sem
heimsóttu sundlaugarsvæðið í byrjun mánað-
arins afskaplega hrifnir og þá einkum yngstu
gestirnir. „Krakkarnir voru mjög hrifnir
enda eru þeir búnir að bíða eftir þessu lengi
og hlökkuðu mikið til,“ segir Arnsteinn sem
er þó bjartsýnn fyrir sumarið enda er von á
fjölda ferðamanna til Eyja í kjölfar opnunar
Landeyja hafnar í júní. - sm
Aska ógnar opnun sundlaugar í Eyjum
FLOTT SUNDLAUGARSVÆÐI Arnsteinn Ingi Jóhannesson
segir menn vinna hörðum höndum við að þrífa öskuna
sem féll á svæðið um síðustu helgi. Til hægri má sjá
trampolínrennibrautina. MYND/ÓSKAR