Fréttablaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI14. júní 2010 — 137. tölublað — 10. árgangur
MÁNUDAGUR
skoðun 14
veðrið í dag
FASTEIGNIR.IS14. JÚNÍ 201024. TBL.
Valhöll fasteignasala er með á skrá tveggja hæða raðhús í austurhluta Setberghverfis í Hafnarfirði.
H úsið er staðsett við Vörðuberg 16 í Hafnar-firði, samtals 169 fermetrar ásamt 25 fer-metra bílskúr. Anddyri er flísalagt á gólfi og hita undir. Til hliðar við það er gestasnyrting með flísum á gólfi. Eldhús er búið sérsmíðaðri innréttingu, vönduðum tækum og granít borðplötu. Efri skápainn-rétting flæðir inn að borðstofu og stofu, en parket er á gólfum. Útgengt er á skjólgóðan og stóran suðurpall með áhaldageymslu, lýsingu og kassa fyrir blóma-potta. Lítil tjörn með sjávargrjóti umhverfis hefur verið útbúin við enda pallsins.
Parketlagður stigi liggur upp á efri hæð, en gólf
á efri hæð er sömuleiðis parketlagt. Svefnherbergi
eru þrjú á efri hæð, þar á meðal hjónaherbergi sem
hefur sérinngang að snyrtingu. Frá tveimur svefn-
herbergjum er aðgangur að geymslulofti. Snyrt-
ing er flísalögð, með hornbaðkari, innréttingu og
góðri lýsingu. Á hæðinni er flísalagt þvottahús
og sjónvarpshol, þaðan sem útgengt er á stórar
suðursvalir.
Þetta er eign sem nostrað hefur verið við og vel
viðhaldið í hvívetna. Ásett söluverð eignarinnar er
39,9 millj. Eigendur eru tilbúnir að skoða mögu-
leika á að taka minni eign upp í. Nánari upplýs-
ingar veitir Jón Rafn eða Sigþór hjá Valhöll fast-
eignasölu.
Raðhús, sólpallur og tjörn með sjávargrjóti
Húsinu fylgir skjólgóður og stór suðurpallur.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Ingólfur Gissurarson lgf.
Valhöll fasteignasala • Síðumúla 27 • Sími:588-4477.
INDRIÐASTAÐIR - SKORRADALURVandað 64 fm heilsárshús ofarlega í landi Indriða-
staða Skorradal með útsýni yfi r vatnið. Eignin er
með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum ásamt
stóru svefnlofti. Eldhús borðstofa og stofa eru í
opnu rými með stórum útsýnisgluggum. Rúmgóð
snyrting með sturtu og útgengt á pall þar sem er
heitur pottur á skjólsælum stað. Heitt og kalt vatn í
húsi. V. 19,5 millj.
SUMARHÚS TIL SÖLU
Mikil Sala.Vantar allar stærðir af sumarhúsum á skrá.
Höfum m.a. kaupendur að vönduðu heilsárshúsi í Grímsnesi með
a.m.k. þremur svefnherb. Einnig vantar 70-100 fm heilsárshús á eignarlandi í a.m.k. klst fjarlægð frá Rvk. Sumarhúsið þitt selst hjá okkur – Frí skoðun og verðmat
LÆKJARHVAMMUR V. LAUGARVATN
Notalegur 73 fm bústaður með útigeymslu á rúmlega 1,1 ha eignarlandi í grennd við Laugarvatn.
Stofa m. fallegri kamínu. Svefnherbergi er rúmgott
og stórt svefnloft hefur verið skipt í tvö rými. Eignin
hefur að mestu verið endurklædd með harðviði
að utan. Stór pallur umhverfi s hús. Kalt vatn og
rafmagn í húsi. Klárt til inntöku heits vatns. V.
18,5 millj.
ASPARSKÓGAR – Í LANDI SVARFHÓLS
Nýtt og glæsilegt 86 fm heilsárhús á steyptri gólfplötu.Stór stofa með borðstofu og eldhúsi til
hliðar, fallegir franskir gluggar á þrjá vegu. Vönduð
innrétting í eldhúsi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og
snyrting með sturtu og skápainnréttingu. Heitur
pottur á verönd. Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni
tengt Eignin er á leigulóð. V. 19,9 millj.
Sigþór
Bragason
s: 899-9787
Lögg.fast.Sali.
Jón Rafn Valdimarsson s: 695-5520Lögg.fast.Sali.
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís H rmannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ÚTSAUMAÐIR PÚÐAR geta verið til mikillar
prýði. Ekki er verra ef þeir eru saumaðir af einhverjum
sem manni þykir vænt um.
- Gefðu íslenska hönnun
Lín Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Sængurfatnaðurinn frá Lín Design er ofinn úr bómullardamask.Yfir 30 tegundir af íslenskum sængurfatnaði til brúðargjafa. Íslensk hönnun á góðu verði.
Dúnmjúkar brúðargjafir
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
STURTUSTANGASETT
TVÆR STILLINGAR
TILBOÐ VIKUNNAR
4900.-
Tilboðsverð Fjölskylduhátíð
10. – 16. júní
»Frábær tilboð!
»Tívolítæki »Hoppukastalar
»Andlitsmálun »Blöðrur
Sumarið er yndislegt!
www.isafold.is - Sími 595 0300
Vinnur fyrir aldraða
Pétur Magnússon er nýr
formaður Öldrunarráðs
Íslands.
tímamót 18
HEILBRIGÐISMÁL „Niðurstöður úr
nýrri rannsókn í Bretlandi benda
til þess að mögulegt sé að lækka
nýgengi krabbameins í ristli og
endaþarmi um helming. Það er
ótrúlegt en satt,“ segir Tryggvi
Björn Stefánsson, sérfræðingur í
almennum skurðlækningum.
Krabbamein í ristli og enda-
þarmi er þriðja algengasta krabba-
mein hér á landi.
„Á Landspítalanum gerum við
um og yfir 100 aðgerðir á ári. Ef
við lækkum nýgengið um helming
yrði um hreina byltingu að ræða,
því helmingur þeirra sem grein-
ist á hverju ári er með ólæknan-
legan sjúkdóm í dag og deyr innan
fimm ára.“
Árið 2005 var stofnaður fjölþjóð-
legur félagsskapur sem kallar sig
NordICC um að rannsaka gildi
ristilspeglunarskimunar til þess að
finna krabbamein í ristli og enda-
þarmi. Takmarkið er að lækka
nýgengi og dánartíðni vegna þessa
sjúkdóms. Rannsóknin er hafin í
Póllandi og Hollandi. Henni verð-
ur hleypt af stokkunum í Noregi
á næstunni. Niðurstöður frá fyrr-
nefndu löndunum lofa afar góðu.
Af þeim tvö þúsund sem rann-
sakaðir hafa verið hefðu hundrað
fengið krabbamein án skimunar,
ef miðað er við þekktar tölulegar
staðreyndir um sjúkdóminn.
Tryggvi Björn hvetur til þess að
Íslendingar taki þátt í rannsókn
NordICC. „Mikilvægið við þessa
rannsókn er að sýna fram á að það
sé raunverulega hægt að lækka
tíðni þessa illvíga krabbameins,
eins og margt bendir til. Það er
nauðsynlegt að sýnt verði fram á
hvort skimunin sé nægilega örugg
til að ráðleggja hana sem aðferð til
lækninga.“ Vitnar Tryggvi Björn
þar til annarra rannsókna sem
nýttar eru í forvarnaskyni, eins
og leit að brjóstakrabbameini hjá
konum, þar sem stór hluti mann-
fjöldans fer til læknis til staðbund-
innar krabbameinsleitar.
Gert er ráð fyrir að eitt til tvö
þúsund Íslendingar taki þátt í
rannsókninni en NordICC stefn-
ir að því að um 20 þúsund manns
verði rannsakaðir í allt. Framlag
Íslands myndi kosta um 60 millj-
ónir króna. Tryggvi Björn hefur
sjálfur safnað tíu milljónum í
gegnum ýmsa sjúkra- og lífeyris-
sjóði.
Árlegur kostnaður heilbrigðis-
kerfisins af meðferð vegna
ristilkrabbameins er yfir millj-
arður króna. - shá
Áhrifarík meðferð við
ristilkrabba í augsýn
Rannsóknir benda til að hægt sé að draga mjög úr nýgengi krabbameins í ristli
og endaþarmi. Fjölþjóðleg rannsókn er hafin. Bylting ef hægt verður að lækka
nýgengið um helming, segir skurðlæknir sem vill fjármagna þátttöku Íslands.
■ Í ristilslímhúðinni myndast separ hjá 30-40 prósentum einstaklinga.
Hjá 80 prósentum þeirra sem fá krabbamein í ristil eða endaþarm verða
krabbameinin til í þessum sepum.
■ Það er mjög sérstakt að hægt sé að fjarlægja góðkynja forstig að krabba-
meini og þannig koma í veg fyrir að krabbameinið myndist. Ef krabbameinið
hefur myndast og finnst nógu snemma er hægt að lækna það með því
að fjarlægja sepann í ristilspeglun með einföldum hætti eða æxlið með
skurðaðgerð.
Staðreyndir um sjúkdóminn og meðferð
STREKKINGUR SV-LANDS Í dag
verða sunnan 10-15 m/s SV- og
V-lands, annars hægari. Bjartviðri
NA-lands en fer að rigna upp úr
hádegi V-lands í fyrstu. Hiti 10-20
stig, hlýjast NA-lands.
veður 4
12
12
13
17
17
20
UNGIR VÍKINGAR Sólstöðuhátíð víkinga fer þessa dagana fram í Hafnarfirði á vegum Fjörukráarinnar. Á Sólstöðuhátíðinni er menning víkinga-
aldar í hávegum höfð og allt frá handverki til blóðugra bardaga til sýnis. Víkingar koma í mörgum stærðum og þessir ungu drengir sýndu svo ekki verður um
villst að víkingablóð rennur enn í æðum Íslendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÉLAGSMÁL Eftirlitsstofnun EFTA
hefur gefið út álit um að Hæsti-
réttur hafi fellt rangan dóm árið
2004. Málið snerist um launa-
kröfur sem skildar voru eftir
þegar nýtt fyrirtæki tók yfir
eignir eldra fyrirtækis. Verði
ekki brugðist við álitinu má búast
við að málið fari fyrir EFTA-
dómstólinn. - kóp /sjá síðu 4
Eftirlitsstofnun EFTA:
Rangur dómur
Hæstaréttar
Enginn getur átt það
Guðmundur Andri Thorsson
skrifar um verðmæti og
nýtingu vatns.
í dag 15
Þýskaland á flugi á HM
Þýskaland er lið mótsins til
þessa á HM eftir 4-0 sigur á
Ástralíu.
íþróttir 26