Fréttablaðið - 14.06.2010, Síða 8
8 14. júní 2010 MÁNUDAGUR
15,9%
Kynntu þér skuldabréfasjóð
Byrs á byr.is, hafðu samband í
síma 575 4000 eða komdu við í
næsta útibúi. Við erum ávallt til
þjónustu reiðubúin.
BYR | Sími 575 4000 | www.byr.is
Hæsta 12 mánaða ávöxtun verðbréfasjóða
sem fjárfesta eingöngu í ríkisskuldabréfum*
*Heimild: www.sjodir.is
Sjóðurinn er starfræktur í samræmi við lög nr. 30/2003 og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Fjárfestingu í sjóðum fylgir alltaf áhætta þar sem
gengi þeirra getur bæði lækkað og hækkað. Ávöxtun í fortíð endurspeglar ekki framtíðarávöxtun, heldur er hún einungis vísbending. Nánari
upplýsingar má finna í útboðslýsingum og útdráttum úr þeim á heimasíðu Rekstrarfélagsins, rfb.is og á heimasíðu Byrs, byr.is. Fjárfestum er
bent á að kynna sér vel útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim. Ekki er tekin ábyrgð á villum sem geta komið fram t.d. prentvillum í
upplýsingaveitum, þó ávallt sé unnið að því að lágmarka möguleika á slíku.
SKULDABRÉFASJÓÐUR BYRS
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
UMHVERFISMÁL Náttúrustofa Vestur-
lands og Háskólasetur Snæfells-
ness standa fyrir fjölbreyttum
náttúrurannsóknum á Vestur-
landi í sumar. Alls koma rúmlega
tuttugu sérfræðingar og áhuga-
menn að starfseminni.
Á Náttúrustofunni eru fjórir
fastráðnir starfsmenn í fullu
starfi, sem meðal annars sinna
rannsóknum á spendýrum, fugl-
um og plöntum og vinna að
umhverfis málum, auk þess sem
danskur sérfræðingur Norrænu
eldfjallastöðvarinnar hefur þar
starfsaðstöðu.
Þrír verkefnaráðnir starfmenn
vinna að afmörkuðum verkefnum
um mink, glókoll og tófu í sumar
auk doktorsnema á styrk frá
Rannís vegna minkarannsókna.
Á Háskólasetri Snæfellsness
eru tveir fastráðnir starfsmenn.
Í sumar fjölgar verulega þegar
tveir doktorsnemar koma til rann-
sókna á kríu og æðarfugli ásamt
sjálfboðaliðum á þeirra vegum.
Þá dvelja á setrinu bandarískur
sérfræðingur í veirusjúkdómum
í fuglum og kanadískur sjófugla-
sérfræðingur.
Þrír sumarstarfsmenn verða við
Háskólasetrið; tveir líffræðinem-
ar úr Stykkishólmi vinna verkefni
um lunda og kríu.
Annar kannar veiðiaðferðir á
marhnút, marflóm, sprettfiski og
kræklingi, með það að markmiði
að geta vaktað þessar tegundir í
framtíðinni. - shá
Kraftur í rannsóknum hjá Náttúrustofu Vesturlands:
Á þriðja tug skoðar
lífríkið á Vesturlandi
BANDARÍKIN, AP Nú er talið að allt
frá einni milljón tunna og upp í 2,4
milljónir tunna af olíu hafi lekið
út í Mexíkóflóa frá því sprenging
varð í borpallinum Deepwater Hor-
izon þann 20. apríl síðastliðinn.
Til samanburðar má nefna að þá
tíu mánuði sem olía lak út í Mex-
íkóflóa í versta olíuslysi sögunnar
til þessa árið 1979 streymdu alls
um þrjár milljónir tunna út í hafið,
en lekinn í ár hefur aðeins staðið í
tvo mánuði.
Eftir því sem vísindamenn skoða
lekann betur versnar mat þeirra
á ástandinu. Svo virðist sem allt
að 500 þúsund tunnur af olíu hafi
lekið út í hafið á degi hverjum, en
þetta er tvöfalt meira magn en
versta mat manna hingað til hafði
miðast við.
Þegar olíuskipið Exxon Valdes
strandaði við Alaska árið 1989 bár-
ust „aðeins“ 261 þúsund tunnur út
í hafið, eða álíka magn og nú hefur
borist út í hafið á hverju fimm til
þrettán daga tímabili.
Þessar nýju tölur eiga ekki við
um það magn sem borist hefur út
í hafið síðan starfsmönnum BP
tókst að setja eins konar tappa á
olíubrunninn og dæla þaðan hluta
olíunnar upp á yfirborð sjávar. - gb
Olíulekinn í Mexíkóflóa reynist hafa verið meiri en áður var talið:
Milljónir tunna borist í hafið
FJARAN HREINSUÐ Verkamenn tína upp
olíuklepra. NORDICPHOTOS/AFP
SLYS Riffill sprakk framan í skot-
mann á æfingasvæði Skotfélags
Keflavíkur og nágrennis á
laugardag.
Var hann fluttur með sjúkra-
bifreið á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja og síðan áfram á Land-
spítalann í Reykjavík.
Skotmaðurinn fékk skurð fyrir
ofan augað en augun sluppu.
Ekki er búist við öðru en að
hann nái sér að fullu, sagði Árni
Pálsson, gjaldkeri í stjórn Skot-
félags Keflavíkur og nágrennis, í
samtali við Fréttablaðið. - mþl
Slys í Reykjanesbæ:
Riffill sprakk í
andlit manns
1. Hver er forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur?
2. Hvar var Páll S. Brynjarsson
endurráðinn sveitarstjóri í
vikunni?
3. Hver skoraði opnunarmark
HM í Suður-Afríku?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
LÖGREGLUMÁL Tveir lögreglumenn
á mótorhjólum veittu ökumanni
eftirför á Reykjanesbrautinni á
föstudag.
Lögreglumennirnir ákváðu að
skoða bílinn nánar þar sem þeir
komu auga á hann í Hafnarfirði
en eigandi bílsins hafði nýlega
verið sviptur ökuleyfi. Þegar
ökumaðurinn. sem hafði feng-
ið bílinn lánaðan, varð þess var
gaf hann í og úr varð eftirför á
200 kílómetra hraða.
Lauk eftirförinni þegar vél
bílsins bræddi úr sér við Voga-
afleggjara Reykjanesbrautarinn-
ar. Mikil hætta skapaðist við eft-
irförina en umferð var töluverð á
þessum tíma.
Maðurinn var handtekinn og
sviptur ökuleyfi. Hann er grun-
aður um að hafa verið undir
áhrifum fíkniefna. - mþl
Eftirför á 200 km hraða:
Bræddi úr sér á
Reykjanesbraut
KIRGISISTAN, AP Um 100 manns
hafa látið lífið og að minnsta
kosti þúsund hafa særst í átökum
í Kirgisistan undanfarna daga. Þá
hafa um 75 þúsund Úsbeka þurft að
flýja yfir landamærin til Úsbekist-
an, mest eldra fólk, konur og börn.
Átökin, sem hófust á fimmtudag,
voru upphaflega tilraun til að grafa
undan bráðabirgðastjórn landsins.
Stjórnin hefur setið við völd síðan
Kurmanbek Bakiyev, forseti lands-
ins, var gerður útlægur í apríl.
Úsbekar, sem eru minnihlutahópur
í landinu, hafa stutt bráðabirgða-
stjórnina en margir Kirgisar í suð-
urhluta landsins hafa stutt forset-
ann útlæga. Stjórnin hefur sakað
forsetann um að standa að baki
óeirðunum, en hann hefur neitað
því.
Átökin hafa verið mest í borg-
inni Osh og nálægum þorpum, en
dreifðust til borgarinnar Jalal-
Abad í gær. Sjónarvottar segja
vopnaða hópa Kirgisa fara um í
Osh og skjóta á Úsbeka af handa-
hófi. Þá hefur stór hluti borgar-
innar verið lagður í rúst í elds-
voðum. Kveikt hefur verið í heilu
þorpunum í nágrenni borgarinnar.
Þá hefur hópur Úsbeka eyðilagt
fjölda bíla og tekið fjölmarga
Kirgisa í gíslingu, auk þess sem
lögreglustjóri var drepinn í einu
þorpinu. Stjórnvöld hafa gefið
öryggissveitum leyfi til að skjóta
á vopnuðu hópana.
Sameinuðu þjóðirnar auk Banda-
ríkjamanna og Rússa hafa lýst yfir
áhyggjum sínum vegna ástands-
ins í landinu. Bæði Bandaríkja-
menn og Rússar hafa herstöðvar í
norðurhluta landsins en hafa ekki
skipt sér af átökunum.
Rússar hafa neitað beiðnum
stjórnarinnar um aðstoð en sendu
í gær liðsauka til þess að verja her-
stöð sína. Bandaríkjamenn hafa
ekki verið beðnir um aðstoð vegna
óeirðanna en hafa hjálpað til við að
koma matvælum til flóttamanna.
thorunn@frettabladid.is
Tugþúsundir
flýja átök
í Kirgisistan
Yfir hundrað eru látnir í verstu þjóðernisátökum í
Kirgisistan í tuttugu ár. Minnst 75 þúsund Úsbekar
hafa þurft að flýja til Úsbekistans.
VIÐ LANDAMÆRIN Úsbeskar konur og börn við landamæri Kirgisistans og Úsbekist-
ans. 75 þúsund Úsbekar hafa flúið yfir til Úsbekistans og þar hafa verið settar upp
tímabundnar flóttamannabúðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
5,5 milljónir manna búa í Kirgis-
istan, sem var hluti af Sovétríkj-
unum. Um 70 prósent þeirra eru
Kirgisar, en Úsbekar eru um 15
prósent. Kirgisistan á landamæri
að Úsbekistan.
Nánast allir Úsbekarnir í Kirgis-
istan eru í suðurhluta landsins
og þar hefur verið spenna milli
þjóðarbrotanna lengi.
Fyrir tuttugu árum létu hundruð
manna lífið í blóðugum átökum
milli Kirgisa og Úsbeka í borginni
Osh.
Spenna milli þjóðarbrota
VEISTU SVARIÐ?