Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 7

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 7
4. blað 37. árg, Nr. 362 Maí 1970 SAMTÍÐIN HEIMILISBLAÐ TIL SKEMMTUNAR OG FRÓÐLEIKS SAMTfÐIN kemur út mánaðarlega nema í janúar og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason, Reykjavík, sími 12526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Árgjaldið 200 kr. (erlendis 250 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskr^ftum og áskriftargjöldum veitt móttaka í Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf. Þar virða menn ráðdeild og traust gengi ÓBRIGÐUL reynsla hefur sannað mönnum, að fjármagn er „afl þeirra hluta, sem gera skal“, eins og það er orðað. Traust almennings á stöð- ugu gengi gjaldmiðilsins er talin forsenda þess, að fólk fáist til að spara af fúsum vilja og styrki Weð því starfsemi bankanna, sem veita sparifé þjóðanna út í atvinnulífið. Vestur-Þjóðverjar eiga, eins og sakir standa, einhvern traustasta og mest virta gjaldmiðil heimsins, enda er atvinnulífið í landi þeirra í Wiklum blóma, og þjóðin telur sér mikinn ávinn- mg að því að eiga sparifé. Er hún og óspar* orvuð til þess með jákvæðum áróðri. Meðal ann- ars rákumst við nýlega á eftirfarandi spakmæli 1 þýzku blaði undir fyrirsögninni LOF ItÁÐ- ÓEILDARINNAR, sem náði yfir heila síðu: .,Sá, sem virðir ekki penninginn (þ. e. 1/100 úr þýzku marki) á ekki skilið að eignast dal- inn“ (þ. e. 3 mörk). — O r ð t a k. „Heldur vil ég, að þjóð mín hlæi að sparsemi uiinni en að hún gráti yfir bruðlunarsemi minni“. — Óskar 2. Svíakonungur. „Það er glæpsamlegt að fara gálauslega með fé og eld“. — Adalbert Stifter. „Ráðdeildin er dóttir forsjálninnar, systir hóf- seminnar og móðir frelsisins“. — S a m u e 1 S m i 1 e s. „Fyrir alla muni sparaðu og haltu groskum (Groschen = 1/10 úr marki) þínum til haga; bað skiptir mestu máli í heimi hér“. — N i c o- 1 a i G o g o 1. „Sparscmin er hinn gullni meðalvegur milli nízku og eyðslusemi“. — Theodor Heuss. „Ó, þið ódauðlegu guðir! Þeir skilja það ekki, mennirnir, hvílík tekjulind sparsemin er!“' — C i c e r o. „Ef þú eyðir minna en þú aflar — þegar þess er nokkur kostur — þá hefurðu fundið vizku- steininn". — Benjamín Franklín. Þannig rekur ein ráðdeildarsamasta og mesta iðnaðarþjóð heimsins, Þjóðverjar, sem tekizt hefur að afla gjaldmiðli sínum alþjóðatrausts, styrkan áróður fyrir hinni fornu dygð: spar- seminni. En hún hefur fyrir nokkru hækkað gengi þýzka marksins og aukið þannig trú barna sinna á þau mikilvægu sannindi, sem forsjármenn sumra þjóða hafa í bili gert mark- laus, að „sparnaður sé upphaf auðs“ og að „græddur sé geymdur eyrir“. Spakmæli þýzka blaðsins minntu okkur á eft- irfarandi ummæli fransks fjárniálamanns, sem við lásum í Parísardagblaði, skömmu eftir að Frakkar felldu gengi sitt um 12,5% sl. sumar. Hann sagði: „Gengislækkanir skapa óhjá- kvæmilega mjög varhugaverða ringulreið á fjármálakerfi þjóða. Þær eru því miður lög- verndað rán á sparifé ráðdeildarfólks og eru líklegar til að valda örvinglun og jafnvel sjálfs- morðum meðal þeirra, sem sárast eru leiknir. Þær eru eins og olíugusur, sem skvett er í hinn eyðandi eld verðbólgunnar og magna hana um allan helming. Þeir, sem að þeim standa, virðast ekki muna, að til e: u hagsmunasambönd vinnandi fólks, sem láta ekki bjóða sér allt, heldur krefjast hærra kai ps. En gamla fólkið stendur berskjaldað fyrii eignanáminu.“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.