Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 14

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 14
10 SAMTÍÐIN klst. svefns á sólarhring, en fleygir sér í þess stað við og við endilöngum á púða á gólfinu í vinnustofu sinni til að láta mestu þreyt- una líða úr sér. Það eina, sem hann óttast, er, að hann kunni að hrapa úr efsta sæti tízku- kónganna. AF Bouquin fara fyrst sögur, er hann rak skranbúð suður í St. Tropez við Miðjarðar- hafið. Þar seldi hann einkum silkiklúta. Þa gerðist það dag einn, að inn til hans vatt sér Brigitte Bardót á einni af sigurgöngum sín- um um bæinn, sem hún breytti á árunum úr ókunnu fiskiþorpi í heimsfrægan glaumbæ handa alþjóða milljónerum — og jók við það árlegar gjaldeyristekjur Frakklands að mun. Leikkonunni gazt undir eins ágætlega að bítlinum í skranbúðinni og bauð honum heim til sín. Þar voru örlög Bouquins ráðin. Hann á sér fullar hendur viðfangsefna, og augu hans leiftra af nýstárlegum hugmynd- um. Auk saumastofunnar í 11. hverfi Parísar rekur hann verzlun í listamannahverfinu, sem kennt er við breiðstrætið St. Germain-des- Prés á vinstri bakka Signu. Sú búð er opin til kl. 2 á nóttunni. Þangað flykkist frægt fólk, svo sem Serge Gainsbourg ásamt Jane Birkin, Johnny Halliday, Richard Burton, Martinelli, Deneuve, auk bítlanna. Þar skap- ar Bouquin búninga handa leikurum, óperu- söngvurum og listdönsurum. Þarna snýst auð- vitað allt um tízkukónginn sjálfan með hné- síða silkiklútinn um hálsinn, en þann klút skilur hann aldrei við sig, hvorki í vöku né svefni, því hann trúir á hann. Jean Bouquin er fulltrúi hraðans í orð- um og athöfnum. Tízkunýjungarnar skapast í huga hans, knúnar fram með óþrotlegri um- hugsun. Hann mælir viðskiptamenn sína sjón- hendingu og sníður síðan flíkurnar á þá í snatri. Og verðlag hans er enn sem komið er miklu lægra en hjá öðrum frægum tízku- meisturum Parísar, Glæsilegur módelkjóll hjá þeim kostar á sýningum naumast minna en sem svarar 120.000 ísl. kr. (miðað við gengi 1. apríl sl.). Bouquin hefur hingað til látið sér nægja að taka tíunda hluta þessa verðs fyrir kjól, sem ekki er talið að eigi sinn líka, hvað sem seinna verður, þegar auð- legð hans fer að auka honum ágirnd eins og gengur. Gott dæmi um vinnubrögð hans sjást af eftirfarandi frásögn: Þýzku leikkonunni, Helgu Anders, hug- kvæmdist nýlega að bregða sér til Parísar til að fá sér kjól hjá Bouquin. Hún skundaði upp í flugvél í Berlín kl. 10 og var komin til Parísar kl. 11,45. Klukkan 12 var hún kom- in til fundar við Bouquin. Hann vafði hana örmum og minntist við hana, eins og hans er vandi, þegar aufúsugesti hins fagra kyns ber að garði. Síðan var ráðslagað og hlegið stundarkorn. Því næst var tekin ákvörðun um, að saumaður skyldi í snatri viðhafnar- kjóll í keisarastíl á leikkonuna; annað kænn alls ekki til mála. Kjóllinn var því næst snið- inn og efninu fleygt til einnar af hinum frá- bæru saumakonum meistarans. Og enn var skellihlegið af starfsgleði þarna á loftinu. Að því búnu var setzt að snæðingi og mik- ið talað, en síðan stjáklað um fræga götu, sem nefnist Rue Royale, til að eyða tíman- um, þangað til kjóllinn væri tilbúinn. Það dróst ekki lengi, því að kl. 17 flaug leikkon- an með hann frá París og var komin til Ber- línar laust fyrir kl. 19. Um kvöldið skartaði hún svo í nýja kjólnum í veizlu, þar sem hann vakti almenna aðdáun; hann kostaði aðeins 700 þýzk mörk. Kynnin við Brigitte Bardot, átrúnaðargoð Frakka, urðu aldan, sem hóf þennan kjarn- orkumann upp úr ókynninu og skóp honum skilyrði til afreka, auðsöfnunar og frægðar. Síðan hefur hann brotizt áfram af sjálfsdáð- um. Hann er bænrækinn trúmaður. Að öðru leyti trúir hann á mátt sinn og megin og efast ekki andartak um, að hann eigi sér snilligáfu tízkusköpuðarins í ríkum mæli. Ör- lagastjarna hans upphófst undir Ljónsmerk- inu. Þar af leiðandi telur hann sig borinn til einræðis. Hann gerir ekki víðreist, þekk- ir vart aðrar borgir en Lyon og París, auk Blástrandarbæjarins St. Tropez. Og hann seg- ist ekki eiga neina vini, enda kveðst hann vera sjálfum sér nógur. Einhver sagði okkur, að Brigitte Bardot myndi eiga hluta af fyrr- nefndum tízkuverzlunum hans. Henni væri trúandi til þess, því í sál hennar ríkja leik- listin og hagsýnin í góðri sambúð, en ekki vitum við sönnur á þessum orðrómi. Jratnkclluh - Hcpíemy AMATÖRVERZLUNIN LAUGAVEGI 55 - REYKJAVÍK - SÍMI 2271B

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.