Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 11

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 11
SAMTlÐIN 7 Margir dragtarjakkanna eru með %sídd, sem alltaf er mjög fallegt. Við birtum hér mynd af hvítum ullar- kjól frá Carven, sem vill klæða konur þannig, að þær sýnist unglegar, og fylgir því stuttu tízkunni. Hvíti liturinn er tákn- i’ænn fyrir birtu vorsins, en hlýtt ullarefn- ið er hentugt í vornæðingunum. 'k Fæðingarhjálp í skólum SKÓLANEFNDIR New York borgar hafa nýlega látið öllum kennurum borgar- innar ljósmæðrahandbók í té. Reynslan hefur nefnilega sýnt og sannað, að á því var engin vanþörf, því að árið 1969 voru samtals 2487 ófrískar telpur í skólum borgarinnar, og ólu allmargar þeirra börn sín þar. Til samanburðar má nefna, að í Bayern í Vestur-Þýzkalandi ólu árið 1969 sam- tals 1823 skólatelpur börn — en að vísu utan kennslustunda. k Hætta á ferðum NYLEGA lásum við þetta í erlendu blaði: Það er hættulegt, þegar ungar stúlk- ur taka upp á því að svelta sig fyrir ai- vöru. Það byrjar venjulega með ópinu: »Ég er allt of feit!“ Með því eiga þær einkum við táningafituna á líkama sínum, sem getur orsakazt af því, að melting þeirra verður hægvirkari, þegar þær eru að öðlast kynþroska. Sulturinn getur hins vegar leitt til heilsutjóns og jafnvel dregið stúlkurnar til dauða. Engar aðvaranir eru of róttækar til þess að reyna að fá stúlkurnar ofan af þessari fásinnu. Það er heilsutjón, sem þser baka sér með þessu tiltæki á þroska- aldri sínum, getur nefnilega reynzt óbæt- anlegt. Flestar þeirra svelta sig af ein- tómri vanþekkingu. Hún er af því sprott- ln> að þær halda, að fallegt og eftirsóknar- vert sé að vera í vaxtarlagi eins og hor- kranginn Twiggy cg ao mittismjódd og flöt brjóst gangi í augun á piltunum. En til þess að verða grannar þyrftu þær ein- ungis að verja örlitlu af sveltiáhuga sín- um til þess að kynna sér gildi skynsam- legs viðurværis og hollra næringarefna. Það nær nefnilega engri átt að sötra að- eins svart kaffi að morgni dags og fvlla magann með einhverri gervifæðu á kvöld- in. Þvílíkt þolir enginn til lengdar. Stúlka, sem sveltir sig, verður brátt til einskis nýt og glatar auk þess fegurð sinni. Tánings- stúlka þarfnast holls viðurværis með um það bil 2600 hitaeiningum á dag, og mað- ur, sem vinnur erfiðisvinnu, þarfnast á bezta skeiði ævinnar meir en 6000 hitaein- inga dag hvern. k Ostaneyzla nokkurra þjóða ÞESS hefur verið getið hér í þáttunum, að Frakkar neyttu allra þjóða mest af osti, enda skipta ostategundir þeirra hundruðum, og ýmsir segja raunar, að þær séu óteljandi. Við gátum þess, að árið 1965 hefði ostaneyzlan í Frakklandi num- ið að meðaltali 11,9 kg á hvert mannsbarn. Næstir komu Danir það ár með 9,3 kg ostaneyzlu á mann. Norðmenn voru þá þriðja mesta ostaneyzluþjóð heimsins með 9,0 kg á mann, en sú fjórða var Svisslend- ingar með 8,8 kg. Vekur það nokkra furðu, því að svissnesk ostagerð er ámóta fræg og sú franska. Við Islendingar ættum að taka okkur þessar ostaneyzluþjóðir til fyrirmyndar. Með því myndum við auka starfskrafta okkar og stuðla að heilsuvernd, um leið og við styddum mikilsverða íslenzka fram- leiðslu, sem er þjóðarnauðsyn. k Kjörréttur mánaðarins (handa fjórum) 4 beinlausar kótilettur, 200 g af rjóma, smjör, 75 g af 30% rifnum osti, Vo glas

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.