Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 9

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 9
SAMTlÐIN 5 „Og- fyrir hvað?“ „Fyrir að hann skyldi geta fengið dóin- arana til að trúa því, að hundurinn minn hefði bitið kerlinguna á neðri hæðinni í húsinu — í sjálfsvörn." Fáheyrð undantekning Fulltrúi líftryggingafélagsins: „Því miður getum við ekki líftryggt yður, mað- ur minn.“ „Og hvers vegna ekki?“ „Af því að þér eruð orðinn 96 ára gaml- ir.“ „En vitið þér ekki, að samkvæmt skýrsl- um deyja langfæstir á þeim aldri?“ Fágætur sólbruni PÁLL sagði við kunningja sinn: „Tal- ar konan þín virkilega alltaf svona mik- ið?“ „Já, hún lokar bókstaflega aldrei munn- inum. Þú hefðir bara átt að sjá, hve sól- brennd hún var á tungunni, þegar við komum heim úr sumarleyfisferðinni til Spánar í fyrrahaust!“ Fast og laust Það gerðist eitt sinn á „gömlu dönsun- um“, að stúlka sagði við vinkonu sína: „Þú hefðir bara átt að vita, hve fast hann Sigurður hélt utan um mig í dansinum áðan.“ „Þvi fastara mittistak, því lauslátari tilgangur,“ andvarpaði hin veraldarvana vinkona. Ekkert syfjaður MAÐUR nokkur sat í strætisvagni og hafði augun aftur allan tímann. „Ertu virkilega svona grútsyfjaður?“ spurði sessunautur hans. „Alls ekki,“ anzaði þessi Óli lokbrá, „en ég verð bara að hafa augun aftur, svo ég sjái ekki allt það kvenfólk, sem ég ætti að eftirláta sætið mitt.“ Siðsamir nú, krakkar mínir! ÞEGAR nektartízkan var alveg að gagntaka veröldina, gekk hæna með unga- hóp sinn framhjá eldhúsglugga. Og sem hún kom auga á reyttan hana, sem lá á eldhúsborðinu, sneri hún sér snarlega að ungunum og sagði: „Snúið þið ykkur nú undan, krakkar. Það liggur allsnakinn karlfugl þarna á borðinu." Skotasaga TVEIR Skotar komu labbandi eftir götu. Allt í einu beygði annar sig og tók upp smápening. Þá rauk hinn inn í næstu gleraugnaverzlun til að kaupa sér sterk- ari gleraugu. tlr erfðaskrá . ... og þess vegna tók ég þá ákvörðun, áður en erfingjar mínir létu flytja mig á Klepp, að eyða hverjum eyri, sem ég átti. Hafið þér aldrei — ? SKURÐLÆKNIR var hringdur upp um hánótt. „Getið þér ekki komið undir eins?“ spurði rödd, sem hann kannaðist vel við. „Konan mín er með svo voðalegt botn- langakast." „Það er ómögulegt,“ svaraði læknirinn, „ég sem tók botnlangann úr henni í fyrra. Hafið þér nokkurn tíma vitað til þess, að tveir botnlangar væru í söniu manneskj- unni?“ „Nei, en hafið þér aldrei heyrt, að mað- ur hafi fengið sér nýja konu?“ Frumleg aðferð „Af hverju eruð þér á sífelldu labbi hér í sprengiefnaverksmiðjunni?” spurði verkstjórinn mann nokkurn. „Af því ég er að reyna að venja mig af reykingum," anzaði náunginn.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.