Samtíðin - 01.05.1970, Side 17

Samtíðin - 01.05.1970, Side 17
SAMTÍÐIN 13 Allan daginn eftir var ég að hugsa um ör- lög rottunnar. Ég þóttist vita, að hún hefði lifað góðu lífi, áður en mig bar þarna að garði, að hún hefði verið mesta sómakvik- indi, ef til vill iðjusamur heimilisfaðir, elsk- aður og virtur af fjölskyldu sinni. Hver vissi, nema kona hans og börn biðu hans núna nieð óþreyju einhvers staðar í grjótgarðinum niðri undir sjó? Ég setla ekki að reyna að lýsa því, hvern- ig mér leið. En eitt var víst: Þarna gat ég ekki verið lengur. Ég gat ekki hugsað til að vera þarna aora nótt og hlusta á alla þessa voðalegu, ásakandi þögn — eða ef til vill naghljóð annarrar rottu! Ég tók því saman pjönkur mínar seinni hluta dagsins og hélt heimleiðis. SÍÐAN þetta gerðist eru liðin nokkur ár, en ég hef aldrei getað gleymt því, sem ég hef reynt að segja hér frá. Fólk, sem ég hef sagt þessa sögu, hefur litið undrandi á mig, og ég hef séð á svip þess, að það hefur haídið, að ég væri eitthvað smáskrítinn eða að niinnsta kosti dæmalaus heybrók. Ég álit hins vegar, að þetta ágæta fólk sé því miður gersneytt því, sem ég á mér í ríkum mæli, en það er: skáldlegt ímyndunarafl. Lesari góður, reyndu að setja þig í mín spor. Það er nótt og dimmt í svefnherberg- mu, og ég ligg einn í rúmi mínu. Allt er kyrrt °g hljótt. En allt í einu berst mér að eyrum dauft hljóð, sem ég veit ekki, hvort nokkur annar mundi geta greint. Þá heyri ég þetta gamalkunna, viðurstyggilega: Krrrrrnsj ... krrrrrnsj! A hverri nótttu, þegar allt er orðið hljótt, berst það að eyrum mér, því að við erum oi'ðin óaðskiljanleg, rottan mín og ég. Hann: ,,HvaÖ álítur þú góða samvizku.?“ Hún: „Á hún ekki citthvað skylt við minnisleysi ?“ ♦ SEGIÐ vinum yðar frá SAMTÍÐINNI. GuIIsmiðir STEINÞÓR og JÓHANNES Laugavegi 30. Sími 19209. Austurstræti 17. Sími 19170. Demantar, perlur, silfur og gull. Einkunnarorð frægra manna PARÍSARBLAÐIÐ ,,L’Express“ hefur á undanförnum árum haft þann hátt á að birta myndir af fjölmörgum frægum mönn- um, en undir myndunum hafa verið prent- uð einkunnarorð, sem blaðinu hefur þótt hæfa lífsviðhorfi þessara manna. Hér fara á eftir nöfn nokkurra manna úr ,,L’Express“ ásamt einkunnarorðunum, sem fylgja þeim, en þau hefur blaðið valið ur ritum kunnra höfunda, og eru nöfn höfund- anna tilfærð innan sviga. A Charles de Gaulle: „Vanþakklæti gagn- vart stórmennum er einkenni þróttmikilla þjóða“. (Plútark). A Georges Pompidou: „Gerum okkur ljóst, að forsjónin veit betur en við, hvað gera þarf“. (Jean de la Fontaine). A Giscard d’Estaing: „Sannleikurinn á sér eins og trúarbrögðin tvo óvini, of eða van“. (Samuel Butler). A Michel Debré: „Það er gott að eiga sér trausta skapgerð og sveigjanlega hugsun“. (Vauvenargues). A Olivier Guichard: „Ungt blóð hlýðir ekki gömlum kreddum". (Shakespeare). A Chaban-Delmas: „Raunveruleikinn er það, sem mestu máli skiptir“. (Jean-Paul Sartre). A Edward Kennedy: „Þeir voru vanir að horfa upp á börn sín deyja, en ekki því að gefa upp alla von“. (Graham Greene). A Pierre Cardin: „Stíll er ekki dans, heldur spor áfram“. (Jean Cocteau). A Le R. P. Boulogne: „Líf okkar er jafn- virði þess erfiðis, sem það hefur valdið okk- ur“. (F. Mauriac). A Mao Tse-tung: „Það er vegna hræðslu þinnar, sem ég er hræddur“. (Shakespeare). A Leonid Brezhnev: „Kjarni valdsins er íhaldssemin". (Pascal). Hreinsum og pressum hvers konar fatnað fljótt og vel. Fatapressa A. KIJLD Vesturgata 23, Sími 14749

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.