Samtíðin - 01.05.1970, Side 31
SAMTÍÐIN
27
ÚR EINU -
1 FRAKKLANDI fava fram 340.000
giftingar á ári og 37.000 hjónaskilnaðir,
en þar giftast árlega 25.000 íráskilciar
konur í annað sinn. Þrátt fyrir ýmsa örð-
ugleika í sambandi við 2. hjónaband þeirra
segja þær, að það sé gifturíkara en hið
fyrra.
HLJÓÐ hafa meiri áhrif á umhverfi
sitt en menn hafa almennt gert sér grein
fyrir. Margir kannast við kristalglasið,
sem sprakk, þegar tenórsöngvarinn hélt
því fyrir framan sig og söng á háum tón-
um. Fyrir skömmu gerðist það við há-
skólann í Marseille, að prófessor einn og
flestir nemendur hans fengu alltaf ákal'-
nn höfuðverk í kennslustundunum. Athug-
anir leiddu í ljós, að þetta stafaði af því,
að hreinsunarstöð skammt frá háskólan-
nni sendi frá sér hávaða í svo djúpum tón-
uni, að mannseyru heyrðu hann ekki. Nú
telja vísindamenn fært að framleiða hljóð-
bylgjur, er geti velt húsum.
BANDARlSKIR sálfræðingar álíta, að
karlnienn kvænist oft stúlkum, sem eru
líkar mæðrum þeirra. Ef þeir kvænast
oftar en einu sinni, eru konur þeirra oft
amóta líkar og þær væru systur.
UM 80% af tannlæknum í Finnlandi
eru konur. Sú fyrsta þeirra lauk tann-
Ifeknaprófi árið 1892.
YNDISÞOKKI hefur löngum reynzt
kvenþjóðinni happadrjúgur. Dæmi: Fyr-
u' 28 árum gekk 15 ára gömul telpa, Dolor-
es Moran að nafni, um beina í veitinga-
húsi einu í Kaliforníu. Einn af gestunum,
-4nthony Ponce, varð svo hrifinn af elsku-
legheitum telpunnar, ao hann arfleiddi
hana að landi, sem hann átti. Nú er Dolor-
es orðin 43ja ára, og landið, sem hún fékk
í þjórfé, er orðið sem svarar 34.8 millj.
ísl. kr. virði (gengi um síðustu áramót).
En sá böggull fylgir þessu skammrifi, að
ekki er víst, að Dolores eignist allt þetta
fé. Ponce er nú látinn. Hann kvæntist
aldrei. Harin á ættingja og ánafnaði þeim
sem svarar um 800.000 ísl. kr. í reiðufé.
Landið, sem hann ánafnaði Dolores, var
árið 1941 virt á sem svarar 119.000 ísJ.
la\, en nú vill svo til. að á þeim slóðum er
verið að reisa viðhafnarhverfi, svo að lóð-
ir hafa hækkað þar ofboðslega í verði, sbr.
fjárhæðina, sem áður er getið. Erfingjar
Ponces álíta, að hann hafi ekki grunað,
hve mikils virði þessi landsspilda myndi
verða, er hann ánafnaði telpunni hana og
reyna nú að krækja í bróðurhlutann af
andvirði hennar.
STU’TTU pilsin hafa sannarlega revnzt
annað og meira en ánægjuauki öllum þeim
karlmönnum, sem liafa gaman af að horfa
á sem fáklæddast kvenfólk. Enskur lækn-
ir Phyllis Mortimer að nafni, hefur nefni-
lega fullyrt, að ekkert hafi stuðlað jafn-
rnikið að því að verja stúlkur offitu og
stuttpilsatízkan. Hann segir, að enskar
stúlkur fitni oft um tvítugt sér til Iieilsu-
tjóns, en nú varist þær það allt hvað af
tekur til þess að vernda línurnar, sem
blasa við aðdáendum þeirra vegna stuttu
pilsanna.
VITUR maður hefur látið sér um munn
fara, að heppilegast sé: að lilusta, þegja,
hugsa og tala síðan, ef þurfa þykir.
- í ANNAÐ