Samtíðin - 01.05.1970, Side 33
SAMTÍÐIN
29
SAMTÍÐIN óskar afmælisbörnum mánaðarins allra heilla
^tjörMApá ffijrir MAÍ 1970
&☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆'!
VATNSBERINN: 21. janúar—19. febrúar
Vertu viðbúin(n) að íakast á hendur ábyrgð
1 einkamálum þínum 5. maí og hafa leyst þann
vanda fyrir 17. maí. Ástamálin skýrast eftir 9.
roaí, en geta farið í liönk seinast í mánuðinum.
Einbeittu þér að störfum 15. maí, og hugsaðu
þitt ráð eftir 30. mai.
FISKARNIR: 20. febrúar—20. marz
Ofreyndu þig ekki í byrjun maí, þvi að þú
ert þreytt(ur) eftir strangan vetur. Viðskiptin
glæðast hjá þér 20. og 28. mai. Flæktu þig ekki
1 ástamál 9. maí, og taktu ekki mikilvæga á-
kvörðun 20. maí. Varastu fjölskyldudeilur 25.
maí og farðu gætilega í áformum þínum 30. maí.
HRÚTURINN: 21. marz—20. apríl
Einbeittu þér að fyrirtæki þínu eða áformi
2. maí. Hugsaðu um framtíðaráform þin eftir 14.
niaí. Varastu deilur á, vinnustað 25. maí. Sam-
starf við aðra mun verða þér hagkvæmast 20.
°g 28. maí.
NAUTIÐ: 21. apríl—21. maí
Reyndu að vinna þér álit með samvizkusemi
2- maí. Hagur þinn getur vænkazt eftir 9. mai.
Astamálin ganga upp og ofan hjá fólki undir
þessu stjörnumerki. Griptu ábatavænleg tæki-
fseri, sem þér kunna að bjóðast 20. og 28. mai.
TVÍBURARNIR: 22. maí—21. júní
Einbeittu þér að virkum störfum 9. maí.
Gættu heilsunnar 2., 17. og 30. maí, en þú liress-
ist eftir 23. maí. Frestaðu meiri háttar ákvörð-
unum 20. maí, og farðu þér liægt í viðskiptum
til 28. maí. Ástamálin munu leika i lyndi 20. og
26. mai.
KRABBINN: 22. júní—23. júlí
Hraðaðu einkaáformi þínu 2. mai. Taktu fjör-
efnatöflur, og neyttu hollrar fæðu, ef þú ert
slakur eftir veturinn. Varastu slys 9. maí.
I^iggðu lieimboð áhrifamanns, ef þú átt þess
kost, því að hann getur hjálpað þér. Frestaðu
fjármálaákvörðun 20. mai. Útlitið er gott.
LJÓNIÐ: 24. júlí—23. ágúst
Skipuleggðu hvíldarstundir þínar snemma í
mai, ef þú ert þreytt(ur). Reyndu að liagnast 15.
mai, en gættu þín fjárhagslega 18 maí. Var-
astu vini þína, sem vilja tæla þig til skemmtana-
svalls 25. maí. Dagarnir 2. og 26. mai eru góðir
til samstarfs. Gerðu þér framtíðaráætlanir.
MEYJAN: 24. ágúst—23. september
Viðskiptaútlitið er gott i þessum mánuði.
Beztir verða dagarnir 2., 20. og 28. maí, en farðu
varlega 25. mai. Gríptu hagkvæm tækifæri varð-
andi fjölskyldumálin 15. maí. Varastu biislys
20. maí. Gættu heilsunnar 2., 17. og 30. maí. 01-
reyndu þig ekki.
VOGIN: 24. september—23. október
Einbeittu þér að framtíðaráformum þínum
2., 20. og 28. maí Útlit er fyrir ágóða 15. mai,
en gættu ráðdeildar 18. og 25. maí. Frestaðu fjár-
málagerðum 20. maí, þvi að útlitið verður ekki
tryggt. Taktu fjörefni vegna vorslensins.
SPORÐDREKINN: 24. október—22. nóv.
Léttu áhyggjum af meðeiganda þínum 2., 17.
og 30. maí. Hafðu gott samstarf við viðskipta-
vini 15. maí. Gríptu heppilegt tækifæri 19. mai.
Frestaðu fjármálaaðgerðum 20. maí. Þú átt
ýmsra góðra kosta völ.
BOGMAÐURINN: 23. nóv.—21. desember
Ábata er von af starfi 2. og 4. mai. Gríptu
tækifæri til endurbóta 9. maí, en varastu rót-
tækar breytingar. Haltu þig heima 20. mai.
Gættu varúðar i viðskiptum 17. og 30. mai.
STEINGEITIN: 22. desember—20. janúar
Þin bíða glæsileg tækifæri i viðskiptum og
öðrum störfum 2. maí og heiilavænleg þróun i
samstarfi 5. maí. Gættu varúðar gegn slysum
á vinnustað, einkum 7. og 25. mai. Ofþreytíu
þig ekki 17. og 30. maí. Varastu smit af næm-
um sjúkdómi 20. maí. Gríptu gott tækifæri 28.
maí.
★ Skófatnaður í fjölbreyttu úrvali.
★ Kaupið skóna þar, sem úrvalið er mest.
SKÓVERZLUN PÉTURS ANDRÉSS0NAR
Laugavegi 17 — Laugavegi 96 — Framnesvegi 2