Samtíðin - 01.05.1970, Side 35

Samtíðin - 01.05.1970, Side 35
SAMTÍÐIN 31 ÞEIR VITRU SÖGÐU HELGI HARALDSSON á Hrafnkelsstöð- Uitt: „Lærður maður getur haldið fram hvaða firru sem er. Hann þarf aldrei að leiðrétta neitt, og stallbræður hans blaka aldrei við neinu. Þegar ólærður maður, sem reynt hefur að brjóta eitthvert efni til mergjar, lætur til sín heyra, er eins og frosið sé fyrir vitin á lærdómsmönnum. En það er reginmunur á þögninni. I fyrra tilfellinu stafar hún af einhvers konarsam- ábjTgð stéttartilfinningarinnar, ef hún er ekki beinlínis samþykkjandi. I hinu síð- ara er hún afneitandi hunzun“. X: „Það er háttur andlegra gamal- wenna að horfa sí og æ um öxl. Þau lifa °S' hrærast í liðinni tíð, ganga aftur á bak, ef svo mætti að orði komast. Margir ffrúskarar eru með því marki brenndir. Ævidútl þeirra er í því fólgið að tína upp rytjur af þeim fróðleiksmolum, sem „rás- in tíða“ leifði. Sumum þeirra veitist stund- uni sú hugsvölun að rölta slóðir látinna niikilmenna og safna þar fróðleiksmolum um afrek þeirra. Takist þeim að raða þessu efni f skipulega heild og fabúlera höndug- iega, eru þeir kallaðir sagnfræðingar. — Jón Sigurðsson forseti, einn af öndvegis- niönnum íslenzkra fræða, beitti söguþekk- lngu sinni fyrst og fremst sem nytsömu 'opni í baráttunni fyrir mannsæmandi framtíð íslenzku þjóðarinnar. Hann var fyrst og fremst maður komandi tíma, studdur traustri þekkingu á veigamestu atriðum fortíðar. Víðsýni hans og einurð, hert í afli þeirrar heimsmenningar, sem barst að honum við Eyrarsund, skópu hon- Uln lífsviðhorf, sem Einar Benediktsson orðaði síðar þannig: „Að fortíð skal Eyggja, ef frumlegt skal byggja, / án fræðslu þess liðna sést ei, hvað er nýtt“. * A BÓKAMARKAÐINUM —_________________________________________ Sigurður H. Þorsteinsson: íslenzk frimerki 1970. Með myndum. Fjórtánda útgáfa. (Catalogue of Icelandic Stamps). 130 bls., ób. kr. 200.00. Anita: Silfurbeltið. Skáldsaga. Stefán Jónsson þýddi. 234 bls., ib. kr. 399.50. Jack London: Hnefaleikarinn. Skáldsaga um heimsmeistara i hnefaleikum. Stefán Jónsson þýddi. 136 bls., ib. kr. 266.50. Kári Tryggvason: Sunnan jökla. Ljóð. 84 bls., ób. kr. 255.50. James A. Pike: Hinum megin grafar. Reynsla mín af dulrænum fyrirbærum. Sveinn Víking- ur þýddi. 242 bls., íb. kr. 444.00. Magnús Sveinsson: Mýramanna þættir. Ymiss konar þjóðlegur fróðleikur, æviskrár, ævin- týri, sögur og sagnir. Með myndum. 252 bls., ib. kr. 455.00. Jack Nicklaus: Má ég gcfa yður ráð. Leiðbein- ingar i golfi eftir einn þekktasta golf-atvinnu- mann Bandaríkjanna. Með 70 litmyndum. Ein- ar Guðnason þýddi. 125 bls., íb. kr. 511.00. Þorstcinn Thorarensen: Móralskir meistarar. Myndir úr lífi og viðhorfum þeirra, sem uppi voru um aldamótin. Með myndum. 544 bls., íb. kr. 1011.50. Vegurinn og dygðin. Valkaflar úr bókinni Zhuang-zi. Skúli Magnússon þýddi. 153 bls., ób. kr. 352.00 Jón Helgason: Vér íslands börn. H. bindi. Frá- sagnir af islenzkum örlögum og eftirminnileg- um atburðum. 222 bls., íb. kr. 599.50. Jónas M. Guðmundsson: Dáið á miðvikudögum. Þrettán smásögur. 112 bls., íb. kr. 344.00 Bókin um Pétur Ottesen. Man ég þann mann. Bókin er skrifuð af vinum hans. Með mynd- um. (Bókaflokkur um mæta menn). Hersteinn Pálsson bjó til prentunar. 207 bls., íb. kr. 610.50. Ivan Fleming: Áhætta eða dauði. James Bond 007. Sakamálasaga. Skúli Jensson þýddi. 204 bls., íb. kr. 222.00. Útvegumi allar fáanlegar bækur. Kaupið bækurniar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest. Sendum gegn póstkröfu um land allt. Bókaverslwn ÍSAJFOL,DA.R Austurstræti 8 — Reykjavík — Sími 1-45-27

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.