Samtíðin - 01.07.1970, Side 12
8
SAMTÍÐIN
Nýjasta Parísargreiðslan
en meðalþroska, hvað andlega hæfileika
snertir.
U. Sálsjúka móðirin. — Hún er óróleg
og vanstillt á geðsmunum og gerir barn
sitt sí-hrætt og angistarfullt. Henni tekst
yfirleitt ekki að vekja æskilegt traust
þess. Henni hættir til að róa og hugga það
með sífelldum matar- og sælgætisgjöfuin.
Að öðru leyti lætur hún það að mestu
sjálfrátt. Sálsjúkar mæður eru venjulega
mjög illa til þess fallnar að ala upp börn
sín. Ágallar þeirra geta oft orðið börn-
unum örlagaríkir,
5. Efnishyggjumóðirin. — Hún dekrar
oft við barn sitt með gjöfum, svo sem
fatnaði, leikföngum og góðgæti, en lætur
það að öðru leyti fremur afskiptalítið.
Börnum þvílíkra mæðra tekst oft að vekja
hrifningu annarra barna vegna allsnægta
sinna, en hæpið er, að andlegur þroski
þeirra sé mikill, því að mæður þeirra hafa
meiri áhuga og skilning á öðru. Efnis-
hyggjan drottnar í sálarlífi þeirra.
'A' Kjörréttur mánaðarins
Borghese-salat. — 1 salathöfuð, 10
hreðkur, 1 rauður laukur, 1 búnt karsi, 1
tsk. sinnep úr túbu, 5 smábrytjaðar an-
sjósur, 1 eggjarauða, ögn af hvítlauks-
dufti, 1 msk. eplaedik, salt, 4 msk. ólífu-
olía, 3 harðsoðin egg. Heilhveitibrauð.
Salathöfuðið er tætt sundur, hreðkurnar
brytjaðar niður ásamt lauknum og karsan-
um og síðan er þessu blandað saman. An-
sjósunum, eggjarauðunni og sinnepinu er
hrært vel saman, en edikið, saltið og hvít-
lauksduftið er sett út í. Síðan er olíunni
bætt út í smátt og smátt, og um leið er
þessu hrært vel saman. Að því loknu er
því hellt yfir og látið samlagast í um það
bil 1 klst., en hreyft við því öðru hverju.
Rétturinn er loks skreyttur með harð-
soðnu eggjunum, skornum í 4 hluta. Heil-
hveitibrauðið er borið með.
EFTIRMATUR: Melóna með osti. —
1 lítil melóna, 2 msk. af gráðaosti og 1
msk. af rjómaosti.
Melónan er skorin í 4 hluta og kjarn-
arnir teknir úr henni. Osturinn er hrærð-
ur saman og honum síðan skipt í melónu-
hlutana. Síðan er þetta látið vera á köld-
um stað í um það bil 1 klst.
Uríttar! hárkollur!
KieöpATKA
*
TÝSGOTU 1.
J(íóL
ilœillet
iu urmu.
ýOtCtf* í ýlœíi-ieffi
ATHUGIÐ VER-Ð □□ GÆÐI
Kjólaverzlunin ELSA
Laugaveg 53 - Sími 13197
í