Fréttablaðið - 07.07.2010, Qupperneq 46
30 7. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Fréttablaðið greindi frá því á dög-
unum að leikkonan Anita Briem
hefði fengið hlutverk í kvikmynd-
inni Escape to Donegal, sem ku
vera væntanleg á þessu ári. Anita
hefur augljóslega í nægu að snúast
þessa dagana, en hún og Dean Par-
askevopoulos, unnusti hennar, ætla
að gifta sig seinna í sumar og sam-
kvæmt kvikmyndabiblíunni IMDB
hefur hún fengið hlutverk í annarri
mynd. Sú heitir You, Me & the
Circus, en leikkonan Melonie Diaz
fer einnig með hlutverk
í myndinni. Hún hefur
meðal annars leikið í
Nip/Tuck-þáttunum
ásamt því að hafa
verið í stóru hlutverki
í gamanmyndinni Be
Kind Rewind ásamt
Jack Black og Danny
Glover.
Enn bætast við leikarar í Buddy
Holly-söngleikinn sem verður
frumsýndur í Austurbæ í október.
Fréttablaðið hefur fylgst náið með
og þegar sagt frá hlutverkum Ingós
Veðurguðs, Ólöfu Jöru, Heiðu
Ólafs og fleiri góðum. Nú
hefur Sigurjón Brink
verið ráðinn til að leika
goðsögnina Ritchie
Valens, en kvikmyndin La
Bamba frá árinu 1987
fjallaði um líf hans
og leikarinn Lou
Diamond Phillips
fór þá með hlut-
verk Valens.
Borgarstjórinn Jón Gnarr sat fund
á dögunum þar sem risataflborðið
við Lækjargötu var meðal annars
rætt. Honum var tjáð að taflmenn-
irnir stóru væru í pússun og
væru væntanlegir á borðið
innan skamms. Jón
lagði til að haldið yrði
skákmót á taflinu í tilefni
af endurkomu taflmann-
anna og stakk strax
upp á skotheldu
nafni á mótið
sem á afar vel við
í dag: Fischer
Open. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2. ofstopi, 6. í röð, 8. laus greinir,
9. stefna, 11. mun, 12. töng, 14.
yfirstéttar, 16. tveir eins, 17. hlaup,
18. skammstöfun, 20. tveir eins, 21.
kvenflík.
LÓÐRÉTT
1. fituskán, 3. íþróttafélag, 4. eyja, 5.
svelg, 7. stífkrampi, 10. saur, 13. iðn,
15. óhapp, 16. fuglahljóð, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofsi, 6. rs, 8. hið, 9. átt, 11.
ku, 12. kjafi, 14. aðals, 16. rr, 17. gel,
18. ofl, 20. yy, 21. pils.
LÓÐRÉTT: 1. brák, 3. fh, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. stjarfi, 10. tað, 13. fag, 15. slys,
16. rop, 19. ll.
GOTT Á GRILLIÐ
„Kryddlegið hvalkjöt er klárlega
best á grillið í sumar.“
Sindri Birgisson, leikari í Gerplu.
Útvarpsstöðin Nálin fer í loftið
á tíðninni 101,5 á næstu dögum.
Stöðin er í eigu Útvarps Sögu
og verður megináherslan lögð á
klassískt rokk.
„Þetta verða lög sem eru
kannski ekki mikið í daglegri spil-
un annars staðar heldur reynum
við frekar að velja gæðin umfram
þessa hefðbundnu smelli,“ segir
Einar Karl Gunnarsson, dag-
skrárstjóri Nálarinnar og sonur
Arnþrúðar Karlsdóttur, útvarps-
stjóra Útvarps Sögu. Spurður
segir hann að skortur hafi verið á
útvarpsstöð sem þessari á öldum
ljósvakans. „Eins og þetta hefur
verið er alltaf sama tónlistin á
öllum stöðvunum, kannski með
smá breytingum hér og þar. Þegar
þú ferð síðan frá eldri stöðvum
yfir í unglingastöðvar eru þær
bara með teknó.“
Á meðal dagskrárgerðarmanna
á Nálinni verða Raggi Palli, Gunn-
ar Ásgeirsson og Gunnar Gunn-
arsson. Aðrir sem munu að öllum
líkindum starfa þar eru tónlistar-
bloggarinn Jens Guð og Karl Sig-
urðsson, fyrrverandi útvarpsmað-
ur á Rás 2. Auk klassíska rokksins
verða ýmiss konar sérþættir í
boði, þar á meðal um djass, blús
og kvikmyndir.
Einar Karl viðurkennir að stofn-
un Nálarinnar sé töluverð áhætta,
sérstaklega á þessum síðustu og
verstu tímum. „Öll þessi tæki og
tól eru auðvitað frekar kostnaðar-
söm en maður vonar bara að þetta
gangi vel.“ - fb
Útvarpsstöðin Nálin í loftið
NÁLIN NÁLGAST Einar Karl Gunnarsson
(til vinstri) ásamt hluta af dagskrárgerð-
armönnum Nálarinnar, þeim Sigurði
Páli, Jóni Rafni, Ragga Palla og Svavari
Skúla.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Plötusnúðurinn Benedikt Stef-
ánsson, betur þekktur sem DJ
BenSol, vann fyrstu verðlaun í
alþjóðlegu plötusnúðakeppninni
Let‘s Mix fyrir skemmstu. Í verð-
laun fær Benedikt tækifæri til að
þeyta skífum á einum vinsælasta
skemmtistað heims, Space á Ibiza,
fyrstur Íslendinga.
„Ég er búinn að starfa sem
plötusnúður frá árinu 2009 og hef
verið að spila á hinum og þessum
skemmtistöðum í Reykjavík. Þess
á milli hef ég tekið þátt í ýmsum
erlendum plötusnúðakeppnum
sem vinum mínum hefur þótt svo-
lítið hlægilegt, þar til núna,“ segir
Benedikt kampakátur, en hann
starfar sem kerfisfræðingur hjá
Orkuveitu Reykjavíkur á daginn.
Benedikt sendi inn tónlistarmix
í keppnina þar sem almenning-
ur greiddi sínum uppáhaldsplötu-
snúð atkvæði. Þeir plötusnúðar
sem hlutu flest atkvæði fengu því
næst áheyrn hjá sérstakri dóm-
nefnd sem valdi að lokum sigur-
vegara.
Space er einn stærsti og vinsæl-
asti skemmtistaður heims og þar
spila aðeins þeir allra færustu og
bestu. Benedikt segir þetta einstakt
tækifæri enda fái hann að spila
með mönnum á borð við Groove
Armada, James Zabiela, Carl Craig,
Joris Voorn ásamt öðrum. „Nú verð-
ur maður að standa sig, maður fær
bara eitt svona tækifæri á ævinni.
Óskastaðan er að maður kynnist í
kjölfarið fólki í bransanum og komi
sér upp góðum samböndum fyrir
framtíðina. Það eru sex eða sjö
dansgólf á Space og þar er spilað í
fjórtán klukkustundir samfleytt og
ég held að hver plötusnúður fái tvo
til þrjá tíma í senn.“
Aðspurður segist Benedikt ekki
vera búinn að undirbúa sig fyrir
Ibiza-ferðina enn þá þar sem hann
viti ekki á hvaða tíma hann spili.
„Ég veit ekki hvenær ég spila eða á
hvaða dansgólfi og þess vegna er ég
ekki búinn að ákveða prógrammið
enn þá. En ég er byrjaður að æfa
mig og eyddi síðustu helgi uppi í
bústað með græjunum mínum,“
segir Benedikt að lokum.
sara@frettabladid.is
BENEDIKT STEFÁNSSON: MAÐUR FÆR BARA EITT SVONA TÆKIFÆRI
Þeytir skífum á stærsta
skemmtistað í heimi
ÁNÆGÐUR VINNINGSHAFI Benedikt Stefánsson sigraði í alþjóðlegri plötusnúða-
keppni og fær í verðlaun að spila á stærsta skemmtistað í heimi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Helgi Björnsson, söngvari og leikari,
er nú að undirbúa sig fyrir upptökur
á nýrri kvikmynd, en þær fara fram í
Ungverjalandi í haust.
Um er að ræða finnska mynd um
þjóðhetjuna Mannerheim og ber hún
einfaldlega nafnið Mannerheim. Leik-
stjóri myndarinnar er Renny Harlin
sem er þekktur fyrir myndir á borð
við Exorcist: The Beginning, The Long
Kiss Goodnight, Cliffhanger, Die Hard
2 og A Nightmare on Elm Street 4.
Renny þessi var einnig giftur leikkon-
unni Geenu Davis á árunum 1992 til
1998. Einn framleiðenda myndarinn-
ar er Ingvar Þórðarson sem Helgi vann
einnig með í Reykjavik Whale Watching
Massacre.
„Upprunalega var hlutverk mitt gall-
eríisti á rívíerunni en mér skilst að það
sé eitthvað verið að breyta því og jafn-
vel stækka það. Ég hreinlega er ekki
viss hvar ég enda en það kemur í ljós
bráðlega,“ segir Helgi.
Helgi verður þarna með þekktum
nöfnum á borð við Stellan Skarsgård
sem leikið hefur í myndum á borð við
Angels & Demons, Mamma Mia!, Pirat-
es of the Caribbean, Exorcist: The Beg-
inning, Dogville, Good Will Hunting og
Dancer in the Dark þar sem hann lék
með Björk Guðmundsdóttur.
Á döfinni hjá leikaranum Helga eru
upptökur í Austurríki á næsta ári þar
sem hann fer með hlutverk í mynd sem
heitir Cross Your Heart. - ls
Helgi Björns í kvikmynd Renny Harlin
HELGI BJÖRNS Leikarinn undirbýr sig fyrir tökur sem hefjast í haust
á nýrri kvikmynd.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Strandblak.
2. 97 manns.
3. Armadilla.
Leiksýning í Borgarnesi
á sunnudaginn kl 14:00
Leikbrúðusafn - Brúðuleikhús
Veitingar - Gjafavara
www.bruduheimar.is
Sími 530 5000
Auglýsingasími