Fréttablaðið - 09.07.2010, Qupperneq 12
12 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Afleiðingar skjálftans á Haítí
Styrkur: 7,0 á Richter
Dýpt: 13 kílómetrar
Látnir: 230.000
Særðir: 300.000
Heimilislausir: 1.000.000
Skjálftinn 12. janúar, 2010
Fyrir skjálftann mikla sem reið
yfir Haítí, hinn 12. janúar 2010,
náði eitt af hverjum þrettán börn-
um ekki fimm ára aldri og helm-
ingur barna gekk ekki í skóla. Þús-
undir barna voru neydd í vinnu og
kynlífsþrælkun. Dánartíðni barna
er sú hæsta í Vesturheimi.
Samtökin Save the Children
hafa sent frá sér nýja skýrslu
varðandi málefni barna á Haítí,
sex mánuðum eftir jarðskjálftann,
þar sem hátt í 250 þúsund manns
létust, 300 þúsund særðust og yfir
milljón misstu heimili sín.
Hundruð þúsunda barna misstu
heimili sín og fjölskyldur í skjálft-
anum. Höfuðborgin Port-au-
Prince og borgirnar Léogâne og
Jacmel urðu verst úti. Milljón-
ir lifa enn án nægilegs vatns og
matar og við skort á hreinlætis-
aðstöðu og heilbrigðisþjónustu.
Börnin eru sérstaklega berskjöld-
uð fyrir sjúkdómum, misnotkun
og ofbeldi.
Viðbragðsáætlanir eftir skjálft-
ann eru þær umfangsmestu og
flóknustu sem samtökin Save
the Children hafa tekið þátt í. Nú
er rigningartímabil að hefjast á
Haítí og eru íbúar landsins í mik-
illi hættu að verða fyrir alvarleg-
um afleiðingum fellibylja sökum
vöntunar á skjóli og hreinlætis-
aðstöðu.
Fjárhagsáætlanir Save the Chil-
dren ganga ekki eftir. Enn vantar
128,6 milljónir dollara frá alþjóða-
samfélaginu til þess að uppfylla
þær.
sunna@frettabladid.is
Börnin enn í
mikilli hættu
HÁ DÁNARTÍÐNI Eitt af hverjum 13 börnum lætur lífið
fyrir fimm ára aldur sökum skorts á hreinlæti, vatni og
næringu.
PORT-AU-PRINCE Höfuðborg Haítí var rústir einar eftir jarðskjálftann í janúar og yfir milljón manns misstu heimili sín.
Í FLÓTTAMANNABÚÐUM Hundruð þúsunda búa undir tjöldum og
skýlum í borgunum eftir skjálftann.
STANDI VIÐ LOFORÐIN Save the children
segja að það verði að standa við loforð
um langtímafjárveitingar.
Höfuðborg: Port-au-Prince
Íbúafjöldi: 9 milljónir
Tungumál: Kreólamál, franska
Stærð: 27,5 þúsund km²
Trú: Kristni og vúdú
Sjálfstæði frá Frakklandi: 1825
Forseti: René Préval
Ungbarnadauði: 1 af hverjum 13
Aðgangur að heilbrigðisþjónustu: 40%
Skólaganga barna: 50%
Um Haítí
Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri
kynningarmála hjá Barnaheill og Save
the Children á Íslandi, segir ástand-
ið á Haítí enn mjög alvarlegt. Börnin
búi í skýlum og flóttamannabúðum sem
gerir þau afar viðkvæm fyrir heilsu-
farsvandamálum eins og niðurgangi
og malaríu sökum vöntunar á vatni og
hreinlæti.
„Þessir sjúkdómar eru auðlæknanleg-
ir en eru þrátt fyrir það að draga börn
til dauða sökum óviðunandi aðstæðna á
svæðinu,“ segir Björg. Hún segir erfitt
að bregðast við vandamálunum sökum
fjárskorts og mikilvægt sé að alþjóða-
samfélagið standi við skuldbinding-
ar varðandi þær langtímafjármagnan-
ir sem lofað var. Mikil áhersla er lögð
á menntun sem part af neyðaraðstoð-
inni.
„Menntunin er leiðin fyrir börnin úr
fátæktinni,“ segir Björg. „Uppbyggingin
verður að skila árangri til langframa og
byggja upp betra samfélag fyrir börn-
in. Starfið sem er fyrir höndum er bara
rétt að byrja.“
Starfið er bara rétt að byrja
Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri kynningarmála hjá Barnaheill og Save the Children á Íslandi
BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
Afdrifaríkar afleiðingar skjálftans á Haítí eru enn að
koma í ljós. Hundruð þúsunda barna misstu fjölskyldur
sínar og heimili. Eru enn mjög berskjölduð fyrir hættuleg-
um sjúkdómum, mansali og ofbeldi.
SKEMMTISIGLING: AUSTUR-KARÍBAHAF OG FLÓRÍDA
2.–11. OKTÓBER 2010
Miami – Florida, Philipsburg – St. Maarten, San Juan – Puerto Rico, Labadee – Haiti, Miami – Florida
Úrval Útsýn kynnir með stolti, Liberty of the Seas, eitt stærsta og mikilfenglegasta
skemmtiferðaskip heims. Skipið er eitt af nýjustu viðbótum Royal Caribbean skipafélag-
sins en það fór jómfrúarferð sína í maí 2007. Það hefur einstaka eiginleika og aðstöðu,
t.d. vatnagarð með brimbrettaaðstöðu, skautasvell, klifurvegg, verslunargötu og skem-
mtistaði svo fátt eitt sé nefnt. Þetta glæsilega skip er búið nær öllu er hugurinn girnist.
Barir, veitingahús, leiksýningar og skemmtanir eru hvarvetna í boði, ásamt ævintýralegu
sundlaugasvæði. Liberty of the Seas er sannkallað fljótandi 5 stjörnu lúxus hótel sem
undirstrikar að skemmtisiglingar eru ævintýri og upplifun sem seint gleymist.
á mann m.v. 2 fullorðna.*
Eitt stærsta og mikilfenglegasta skemmtiferðaskip heims!
* Innifalið: Flug til og frá Orlando, gisting á Baymont
Inn & Suites í Orlando með morgunverð í eina nótt,
skemmtisigling með fullu fæði og afþreyingu í 7
nætur, þjórfé um borð í skipinu og allar ferðir milli
flugvalla, hótels og skips.
Ferðaskrifstofa