Fréttablaðið - 16.07.2010, Qupperneq 24
4 föstudagur 16. júlí
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n Uppáhaldsleikarinn?
Það eru meðal annars Philip Seym-
our Hoffman, Mads Mikkelsen og
Kyle MacLachlan.
Uppáhaldsbókin?
Gauragangur og Um skáld-
skaparlistina.
Besti tími dags?
Nóttin.
Stjörnumerki?
Vatnsberi.
Uppáhalds borgin?
París, New York,
London eða Bar-
celona, það fer eftir
ferðafélögum.
Alexander Briem
fer með hlutverk Orms í
nýrri kvikmynd byggðri á
skáldsögu Ólafs Hauks
Símonarsonar, Gaura-
gangi. Alexander útskrif-
aðist af leiklistarbraut
Kvikmyndaskóla Íslands
í vor og þetta er fyrsta
kvikmyndin í fullri lengd
sem hann leikur í.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Anton Brink
A
lexander Briem leik-
ur sjálfan Orm Óð-
insson í væntan-
legri kvikmynd sem
byggð er á skáldsögu
Ólafs Hauks Símonarsonar, Gaura-
gangi. Þátt fyrir ungan aldur er Al-
exander Briem enginn nýgræðing-
ur á sviði leiklistarinnar því sem
barn lék hann tvisvar á sviði Þjóð-
leikhússins auk þess sem hann
fór með hlutverk í stuttmyndinni
Góðir gestir.
Gauragangur fjallar í stuttu máli
um ævintýri Orms Óðinssonar,
sextán ára gamals pilts, sem glím-
ir við ástina og hin erfiðu ungl-
ingsár. Um sjö hundruð ungmenni
mættu í áheyrnarprufur sem
haldnar voru um allt land síðast-
liðið sumar og hrepptu þau Alex-
ander og Hildur Berglind Arndal
hlutverk Orms og Lindu. Alexand-
er fékk góðu fréttirnar sama dag
og hann komst að því að honum
hafði verið synjað um inngöngu
í leiklistardeild Listaháskóla Ís-
lands, en hann hafði þá komist
alla leið í tuttugu manna lokahóp.
„Þetta var magnaður dagur, fyrst
rigning og svo sól. Svolítið eins og
íslensk veðrátta,“ segir Alexand-
er og hlær.
ER SVOLÍTILL ORMUR
Þegar Alexander er inntur eftir því
hvort hann samsami sig persón-
unni Ormi segist hann hafa und-
irbúið sig vel undir þá spurningu.
„Þetta er sú spurning sem ég hef
hvað oftast fengið. Það ótrúlega er
að ég las bókina í 8. bekk og man
eftir því að ég lá uppi í rúmi með
bókina og sá fyrir mér kvikmynda-
plakat þar sem ég var í hlutverki
Orms Óðinssonar og lá út af í
rúminu, með sígarettu í munnin-
um og með fæturna upp á vegg.
Þetta var „móment“ sem ég man
mjög vel og mun alveg ábyggilega
aldrei gleyma héðan í frá,“ segir
Alexander. Hann er þó ekki viss
um að þeim Ormi myndi verða vel
til vina skyldu þeir hittast einn
daginn. „Það er að sjálfsögðu smá
Ormur í mér, en ég held að hann
myndi ekki líta mikið upp til mín
ef hann hitti mig. Hann er á sex-
tánda ári þegar þessi saga er sögð,
ég er á því tuttugasta og fyrsta, en
hann er ábyggilega þrisvar sinn-
VEIT EKKI HVORT VIÐ ORMUR
um gáfaðri og betur máli farinn en
ég. Það er í raun magnað að Ólafi
Hauki hafi tekist að koma þessari
manneskju niður á blað og á þann
hátt að lesandanum finnst hann
trúverðugur. Hann er sextán ára
en samt ótrúlega hnyttinn, gáfað-
ur og góður með sig. Þrátt fyrir það
samsamar fólk sig honum. Það er
magnað afrek.“
KRÖFUHART SAMSTARFS-
FÓLK
Tökur á myndinni ganga að sögn
Alexanders vel og eru samstarfs-
félagarnir kröfuhart en yndis-
legt fólk. Hann segir tökudagana
langa en honum þyki þægilegt að
vera stöðugt að vinna. „Mér finnst
mjög þægilegt að vera stanslaust
í tökum. Maður vinnur allan dag-
inn, fer heim að undirbúa sig
fyrir næsta dag og svo í háttinn
og mætir ferskur til leiks daginn
Svolítill Ormur Alexander Briem fer með hlutverk Orms Óðinssonar í nýrri kvikmynd sem byggð er á skáldsögunni Gauragangi eftir
Ólaf Hauk Símonarson.
Þetta var magnaður dagur,
fyrst rigning og svo sól. Svolítið
eins og íslensk veðrátta.