Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI4. ágúst 2010 — 180. tölublað — 10. árgangur
MIÐVIKUDAGUR
skoðun 18
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FJÖLSKYLDUFERÐ verður farin í Þórsmörk á vegum Ferðafélags Íslands um helgina. Boðið er upp á
gönguferðir, ratleiki og grillveislu, varðeld og kvöldvöku.
www.fi.is
Erla Guðbjörnsdóttir, skrifstofu-stjóri Ölduselsskóla, datt í lukku-pottinn þegar hún tók þátt í leik ítilefni þess ð þ
var því ekki um annað að ræðaen að beita útilok bö
Upplifun með ömmuErla Guðbjörnsdóttir fór í ógleymanlega ferð í Playmobil Fun Park í Nuremberg í Þýskalandi með fjórum
barnabörnum sínum fyrr í sumar. Þó þau séu öll komin vel á legg skemmtu þau sér sem aldrei fyrr.
Erla ásamt barnabörnum sínum þeim Kristrósu Erlu Baldursdóttur, Guðrúnu Erlu Bragadóttur, Hlöðveri Smára Oddssyni og
Helenu Helgu Baldursdóttur.
Pils 12.900 kr.
Toppur 5.500 kr.
Bolur 2.900 kr.
Bæjarlind 6 - Eddufelli 2Sími 554-7030 Sími 557-1730www.rita.is
Nýjar vörurí Bæjarlind
Mikil verðlækkun á útsölunni í báðum búðum.
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
Pantaðu allan hringinn á
www.hoteledda.is eða í síma 444 4000
1 ML Laugarvatn • 2 ÍKÍ Laugarvatn • 3 Skógar
4 Vík í Mýrdal • 5 Nesjum • 6 Neskaupstaður
7 Egilsstaðir • 8 Eiðar • 9 Stóru tjarnir
10 Akureyri • 11 Laugar bakki • 12 Ísafjörður
13 Laugar í Sælingsdal
10
12
9
8
7 6
5
2
3 4
13 11
1
BROSANDI
ALLAN HRINGINN
Skemmtilegur ferðafélagi
Kraftur í Dalvík
Fiskidagurinn mikli
haldinn í tíunda sinn.
tímamót 24
FERÐIR Skref í þá átt að gera
Skálafell að hjólreiðamiðstöð
verður stigið um næstu helgi
þegar þar
verður opnuð
þriggja kíló-
metra löng
hjólreiðabraut
á fyrsta hjól-
reiðavangi
Íslands.
„Við byrjuð-
um að leggja
brautina í síð-
ustu viku og
það gengur bara rosalega vel,“
segir Ormur Arnarson einn
skipuleggjenda.
Ormur segir hjólreiðavanginn
góða viðbót við ferðaþjónustu í
nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
„Allt í einu er kominn grundvöll-
ur fyrir hjólaleigur eða hjólaferð-
ir með leiðsögn eða að menn fari í
fjallið og leiki sér þar.“
- mmf / sjá Allt
Fyrsti hjólreiðavangur Íslands:
Skálafell verður
hjólamiðstöð
ORMUR ARNARSON
13
12
17
12
13
LÉTTIR TIL SUNNANLANDS en
norðan og austan til verður lítils-
háttar úrkoma sem fer minnkandi
þegar á daginn líður. Hiti verður á
bilinu 10 til 20 stig.
VEÐUR 4
Pólitískt stúdentablað
Auður Alfífa, nýr ritstjóri
Stúdentablaðsins, ætlar að
gera pólitískt blað.
fólk 42
NEYTENDAMÁL Heimsmarkaðsverð
á hveiti hefur hækkað um fimm-
tíu prósent á rúmum mánuði
vegna uppskerubrests í Evrópu
og gríðarlegra þurrka og skóg-
arelda í Rússlandi. Útlit er fyrir
að hækkunarinnar muni sjá stað
í matvælaverði hérlendis innan
mánaðar.
Hækkunin á hveitiverðinu er sú
örasta síðan í ágúst 1973, þegar
Bandaríkjamenn seldu Rússum
440 milljónir skeppa af hveiti, en
í rúmmálseiningunni skeppu eru
tæp þrjátíu kíló af hveitikorni.
Helsta ástæða hækkunarinn-
ar er miklir þurrkar og skógar-
eldar í Rússlandi, sem er fjórði
mesti hveitiútflytjandi veraldar
á eftir Bandaríkjunum, Evrópu-
sambandinu og Kanada. Yfir-
völd höfðu búist við tólf prósenta
samdrætti í framleiðslunni þar
ytra frá síðasta ári, en nú stefn-
ir í að samdrátturinn verði allt
upp undir 30 prósent. Uppskeran
er jafnframt í lakara lagi ann-
ars staðar í Evrópu vegna óhag-
stæðra skilyrða.
„Þetta er afskaplega óheppi-
legt ofan í kreppuna,“ segir Berg-
þóra Þorkelsdóttir, framkvæmda-
stjóri Kornax og Líflands, helstu
innflytjenda ómalaðs hveitis á
Íslandi. Hækkunin orsakist af því
að væntingarnar til uppskerunn-
ar hafi verið mjög slæmar, en
nú hefjist uppskerutíminn innan
skamms og þá komi í ljós hversu
alvarleg staðan er.
„Það eru allir búnir að gera
sér grein fyrir því að það verð-
ur áfall en spurningin er bara
hversu mikið áfall,“ segir hún.
„Við erum að vona að markað-
irnir hafi ofhitnað og eigi eitt-
hvað eftir að jafna sig. En það er
óhjákvæmilegt að verð á hveiti
fari að hækka hérna seinni part-
inn í ágúst þegar þessir farmar
fara að berast landinu.“ Bergþóra
segist þegar hafa fengið bréf frá
erlendum birgja þar sem boðað-
ar eru verðhækkanir um miðj-
an mánuðinn. „Þetta er bara að
dembast í hausinn á okkur þess-
ar vikurnar.“
Bergþóra segir að verðhækk-
anir á hveiti og öðru korni valdi
hækkunum á stórum hluta mat-
væla. Segja megi að korn sé
grunnurinn í fæðukeðjunni enda
séu mörg dýr að miklu leyti
alin á korni. „Það er misjafnt
hversu mikil áhrif þetta hefur
á matvælaverð, en þetta kemur
alls staðar niður og matarkarf-
an hækkar í verði. Það er bara
þannig,“ segir hún.
Samkvæmt Hagstofunni flytja
Íslendingar inn yfir 40 þúsund
tonn af hveiti árlega. - sh
Hveiti hækkar matvælaverð
Mikil hækkun á heimsmarkaðsverði á hveiti mun fljótlega skila sér í íslensku matarkörfuna. Hækkunin er
sú örasta í 37 ár og hefur áhrif á verð flestra matvæla. „Óheppilegt ofan í kreppuna,“ segir korninnflytjandi.
SÍÐUSTU FORVÖÐ Síðasta strandveiðitímabil sumarsins hófst í gærmorgun og voru hundruð báta
við veiðar. Í Hafnarfjarðarhöfn voru menn uppgefnir eftir annasaman dag á miðunum.
Ótrúlegur sigurvegari
Tryggvi Guðmundsson
hefur tekið þátt í 104
sigurleikjum síðustu níu
tímabil á Íslandi.
sport 36
Tiger vill byrja upp á nýtt
Tiger Woods vill gifta sig að
nýju og nú fyrrum hjákonu
sinni.
fólk 32
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
STJÓRNSÝSLA Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra
upplifði samtal sitt við Runólf Ágústsson í gærmorgun
ekki þannig að í því fælist ósk um að Runólfur viki úr
starfi umboðsmanns skuldara. Þetta segir heimildar-
maður Fréttablaðsins úr ráðuneytinu sem ekki vill
láta nafns síns getið.
Samkvæmt því telur ráðherra sig einungis hafa lýst
þeirri skoðun í samtalinu að ef eitthvað í þeim upplýs-
ingum sem óskað var eftir um fjármál Runólfs þyldi
ekki dagsljósið þyrfti hann að víkja úr starfi.
Runólfur lýsti því yfir í gær að hann væri hættur
með þeim orðum að það væri að ósk ráðherrans.
Ekki náðist í Árna Pál í gærkvöldi og Anna Sigrún
Baldursdóttir, aðstoðarmaður hans, sagði að hann
vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
„Við erum bara upptekin við að bregðast við þeim
afleiðingum sem afsögn hans hefur og tryggja að
stofnunin verði opin í fyrramálið,“ sagði Anna Sigrún
í gærkvöldi.
Að hennar sögn var verið að leita að manneskju til
að stýra stofnuninni tímabundið. Síðan þyrfti að leggj-
ast yfir það hvort eðlilegt væri að auglýsa starfið á
nýjan leik, ráða þá manneskju sem metin var næsthæf-
ust eða boða umsækjendur aftur í viðtal. - sh / sjá síðu 4
Umboðsmaður skuldara segir ráðherra hafa farið fram á afsögn hans:
Ráðherra ósammála Runólfi