Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 4
4 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofnun kynnti í gær átakið ÞOR – Þekking og reynsla, en því er beint gegn afleiðingum langtímaatvinnuleys- is. Markmið átaksins er að virkja þá einstaklinga sem verið hafa án atvinnu í tólf mánuði eða lengur. „Við setjum okkur það metnaðar- fulla verkefni að ná til alls þess fjölda sem verið hefur atvinnulaus í eitt ár eða lengur fyrir 1. nóvem- ber næstkomandi. Við viljum bjóða þeim úrræði við hæfi í samvinnu við fyrirtæki, stofnanir og félaga- samtök,“ sagði Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, á blaðamanna- fundi sem haldinn var af þessu til- efni. Árni Páll sagði það þekkt að eftir langan tíma án vinnu drægi úr virkni fólks. Erfitt gæti verið að brjóta slíkan vítahring og því væri mikilvægt að tryggja daglega virkni þegar atvinnuástandið væri eins og nú. Um 4.000 manns hafa verið án atvinnu í tólf mánuði eða leng- ur og verða allir þessir einstakl- ingar kallaðir til ráðgjafarfund- ar á vegum Vinnumálastofnunar á næstunni. Á fundinum verða tæki- færin og skyldurnar sem í átakinu felast kynnt fyrir þeim. Átakið kemur í kjölfar átaksins Ungt fólk til athafna sem beind- ist að atvinnuleitendum á aldrin- um 16 til 29 ára. Vel þótti takast að virkja þetta fólk í atvinnuleit sinni og verður reynsla og skipulag verk- efnisins nýtt nú þegar horft er til langtímaatvinnulausra. „Við byrjuðum á ungum því það er kannski sá hópur sem er í mestri hættu þegar kemur að áhrifum langtímaatvinnuleysis. Núna ætlum við að setja kraftinn í þann hóp sem eftir situr, fullorðið fólk sem margt hefur unnið lengi og við sníðum vinnumarkaðsúrræðin að þeirra þörfum,“ sagði Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, á blaðamannafundinum í gær. Guðlaug Pétursdóttir, deildar- stjóri ráðgjafadeildar Vinnumála- stofnunar á höfuðborgarsvæðinu, verður verkefnisstjóri átaksins. Hún segir að byrjað verði á þeim hópi sem er ófaglærður og að fólk á aldrinum 60 til 69 ára verði sérstak- lega tekið fyrir. Hópnum verður skipt í fimm flokka eftir námsferli, aldri og einnig eftir upprunalandi, sé íslenskukunnátta einstakling- anna lítil. Spurð um hvers konar úrræði verði að ræða sagði Guðlaug að nefna mætti ýmiss konar starfs- menntunarnámskeið, sjálfboða- starf, starfsþjálfunarúrræði og átaksverkefni. Lögð væri áhersla á að allir gætu fundið eitthvað sem vekti áhuga þeirra. magnusl@frettabladid.is Kynna nýtt átak gegn langtímaatvinnuleysi Átakinu ÞOR - Þekking og reynsla var hrundið af stað í gær. Virkja á þá ein- staklinga sem verið hafa atvinnulausir í eitt ár eða lengur. ÁTAKIÐ KYNNT Gissur Pétursson, Árni Páll Árnason og Guðlaug Pétursdóttir tóku til máls við kynningu átaksins. Þau lögðu öll áherslu á að úrræðin verði sveigjanleg og einstaklingsmiðuð. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 29° 25° 20° 24° 24° 21° 21° 23° 20° 30° 32° 35° 20° 25° 15° 20°Á MORGUN Hægur eða fremur hæg- ur vindur. FÖSTUDAGUR Strekkingur allra vestast annars hægari. 13 13 12 16 1215 14 16 14 14 13 13 12 11 13 11 12 14 17 13 10 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 SKIN OG SKÚRIR Það lítur út fyrir að það skiptist á skin og skúrir á land- inu næstu daga og á það við í öll- um landshlutum. Vindur verður til- tölulega hægur og veður milt þannig að almennt séð verður veður nokk- uð gott. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNSÝSLA Alls sóttu sex um stöðu forstjóra Landspítalans, en umsóknarfrestur rann út 30. júlí. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára. Hulda Gunnlaugsdóttir, sem var ráðin í stöðuna 1. september 2008, fékk ársleyfi frá störfum 1. október 2009 af persónulegum ástæðum. Hún hefur nú sagt starfinu lausu. Björn Zoëga bæklunarskurð- læknir, sem verið hefur starfandi forstjóri í fjarveru Huldu, sækir nú um stöðuna. Aðrir sem sóttu um eru: Birg- ir Jónsson MBA, Guðmundur Björnsson, orku- og endurhæf- ingarlæknir, Jan Triebel, orku- og endurhæfingarlæknir og yfir- læknir Heilsustofnunar NLFÍ, Stefán E. Matthíasson æðaskurð- læknir og Þorsteinn Örn Guð- mundsson, verkfræðingur og ráð- gjafi. - kóp Ráðið hjá Landspítalanum: Sex sóttu um stöðu forstjóra VIÐSKIPTI Heildarvelta hlutabréfa- viðskipta á landinu í júlí nam rúmri 661 milljón og er það um helmingi minna heldur en í júní, þegar veltan var 1.221 milljón. Mest voru viðskipti í júlí með bréf Marels, 456 milljónir, og með bréf Össurar, 153 milljónir. Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,9 prósent á milli mánaða og vísi- tala orkuvinnslu hækkaði mest af atvinnugreinavísitölum, um 10 pró- sent. Íslandsbanki var með hæstu hlutdeild af kauphallaraðilum á skuldabréfamarkaði, eða 27,7 pró- sent. - sv Heildarvelta hlutabréfa í júlí: Helmingi lægri heldur en í júní CONNECTICUT, AP Maður hóf skot- hríð í bjórverksmiðju í Connectic- ut í Bandaríkjunum á þriðjudags- morgun og varð átta manns að bana. Hann skaut síðan sjálfan sig. Talið er að hann hafi framið morðin í kjölfar þess að vera sagt upp frá verksmiðjunni, en hann vann þar sem bílstjóri. Um 70 manns voru á staðnum þegar maðurinn hóf skothríðina klukkan sjö um morguninn. Um leið kviknaði í vöruskemmu fyrir- tækisins um 15 mílum frá. Ekki er vitað hvort skotárásirnar og brun- inn tengdust. - sv Felldi átta í Connecticut: Hóf skothríð eftir uppsgögn UMHVERFISMÁL Veiðimálastofnun segir rannsóknum á flundru í Andakílsá í Borgarfirði nú í júní hafa leitt í ljós að flundruseiði éti laxaseiði. Flundran sem nýlega hefur numið land í mörgum ferskvatnsvistkerfum hérlend- is hrygnir í sjó en vaxtarskeið fisksins fer að sögn Veiðimála- stofnunar fram á ósasvæðum og í ferskvatni. Hafnar eru rann- sóknir á flundru víða um land til að afla grunnupplýsinga um lífshætti og fæðuval flundrunn- ar. „Hugsanlegt er að hún sé í samkeppni við laxfiskana um búsvæði og fæðu og einnig virð- ist flundra geta verið afræningi á laxfiskaseiðum,“ segir á veidi- mal.is. - gar Nýr landnemi til vandræða: Flundra sögð éta laxaseiði Fá búnað en ekki veislu Vegna þátttöku Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu og keppni í Evrópudeild karla styrkir Kópavogsbær félagið um 100 þúsund krónur. Ósk um að bærinn borgi máls- verð fyrir um þrjátíu manns í tilefni af forkeppni kvennanna og annan máls- verð að loknu mótinu var hafnað. KÓPAVOGUR STJÓRNSÝSLA Runólfur Ágústsson sagði í gær af sér sem umboðs- maður skuldara eftir einn dag í starfi. Hann segir Árna Pál Árna- son félagsmálaráðherra hafa hringt í sig í gærmorgun og beðið sig að hætta. Hann tilkynnti ráð- herra um afsögn sína bréfleiðis síðar um daginn. Styr hefur staðið um skipan Runólfs eftir að DV greindi frá því að félag sem hann stofnaði væri í dag eignalaust og skuldaði Sparisjóði Keflavíkur yfir hálfan milljarð króna sem yrðu afskrif- aðar. Ásta Sig- rún Helgadótt- ir, sem stýrt hefur Ráðgjaf- arstofu um fjár- mál heimilanna og var metin næsthæfasti umsækjandinn, hefur sagst ætla að skoða réttar- stöðu sína. Hún sagðist í gær þurfa að endurskoða afstöðu sína í ljósi tíðindanna. Runólfur vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. „Það liggur alveg ljóst fyrir hver skoðun mín er á mál- inu. Ég held að þjóni engu að ég fari eitthvað pirrast við ráðherra um þessi mál. Ég er að fara norð- ur á Mývatn að veiða bleikju í net. Þú mátt hafa það eftir mér,“ sagði hann. Málinu væri lokið af hans hálfu. Að öðru leyti vísaði hann á afsagnarbréf sitt til ráðherra, sem hann sendi fjölmiðlum. Þar kveður hann ráðherra hafa valdið sér vonbrigðum með því að óska eftir afsögn hans, því þannig taki hann undir þau sjónarmið að það valdi vanhæfi í opinberu starfi að hafa tekið þátt í viðskiptum. Í Kastljósi í gær sagði hann að honum þætti ekki mikill manns- bragur að ósk ráðherrans. Að sögn Runólfs átti símtalið sér stað áður en Árni Páll sendi honum bréf þar sem óskað var eftir frekari skýringum á fjár- málum hans. Runólfur sagðist í gær myndu svara því erindi á næstunni. - sh Runólfur Ágústsson er farinn á bleikjuveiðar og segir félagsmálaráðherra hafa valdið sér vonbrigðum: Umboðsmaður skuldara hætti á fyrsta starfsdegi RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 03.08.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 211,3234 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,26 118,82 188,64 189,56 156,62 157,50 21,019 21,141 19,853 19,969 16,739 16,837 1,3764 1,3844 181,25 182,33 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.