Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 12
12 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
Tengdu þig við
stærsta 3G net
landsins í sumar
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
8
5
0
VERSLUN Velta smásöluverslunar
á Íslandi dróst saman um ellefu
prósent að raunvirði árið 2009, en
frá árinu 2007 hefur veltan dreg-
ist saman um 15,5 prósent. Þetta
kemur fram í Árbók verslunarinn-
ar, sem Rannsóknasetur verslun-
arinnar gefur út í samstarfi við
Kaupmannasamtök Íslands.
Velta smávöruverslunar var
294,5 milljarðar á síðasta ári.
Það er þriggja prósenta vöxtur
frá árinu 2008 á breytilegu verð-
lagi. Í skýrslunni segir að lengi
vel hafi mátt rekja aukna veltu
til vaxandi neyslu – en frá árinu
2007 hefur orsökin að mestu leyti
verið vegna hækkandi verðlags.
Magn neyslunnar hefur því dreg-
ist saman.
Frá árinu 2006 hafa innfluttar
vörur hækkað um rúman helming
að jafnaði. Innflutt matvara hefur
hækkað mest, um 65 prósent. Aðrar
innfluttar vörur hafa hækkað um
rúm 45 prósent. Hlutur verslunar
var 10,5 prósent af landsframleiðslu
í fyrra, sem er svipað og síðustu ár.
Dagvara er veltuhæsti flokkurinn
í smásölu, og veltan í þeim flokki
óx um tæp fimmtán prósent á árinu
2009. Fyrst og fremst er vöxturinn
í stórmörkuðum, en velta smærri
dagvöruverslana minnkar. Versl-
un með járn- og byggingarvörur
kemur á eftir dagvöru og veruleg-
ur samdráttur er í þeirri verslun,
um 28,6 prósent frá fyrra ári.
Verslun með áfengi og tóbak
velti rúmum 25 milljörðum króna
á síðasta ári, tæpum 19 prósentum
meira en árið 2008. Þá hækkun má
að öllu leyti rekja til verðhækkana,
en ekki aukinnar neyslu, að því er
fram kemur í skýrslunni. Versl-
un með húsgögn dróst saman um
fimm prósent að nafnvirði, en ef
tekið er tillit til hækkandi verðlags
er í raun fjörutíu prósenta sam-
dráttur. Svipaða sögu er að segja af
raftækjaverslun sem dróst saman
um tæp tíu prósent að nafnvirði en
32 prósent að raunvirði.
Fyrirtækin sem reka flestar
verslanir á íslenskum smásölu-
markaði eru Hagar, Kaupás, Sam-
kaup og ÁTVR. Þar á eftir koma
Lyf og heilsa, Lyfja, NTC og Penn-
inn. Hagar reka til að mynda 61
dagvöruverslun og 22 fata- og
sportvöruverslanir. Kaupás starf-
rækir 31 verslun undir merkj-
um Krónunnar, Nóatúns, 11-11 og
Kjarvals. Samkaup rekur 48 versl-
anir, meðal annars undir nöfnum
Nettó og Samkaupa. ÁTVR heldur
úti 49 verslunum.
21.200 manns störfuðu við versl-
un á Íslandi í fyrra, 12.600 karlar
og 8.600 konur. Það eru tæp 12,6
prósent heildarvinnuafls þjóðar-
innar. Heildarlaun afgreiðslufólks
í sérvöru- og matvöruverslunum
voru 238 þúsund að miðgildi.
thorunn@frettabladid.is
Velta smásöluverslunar
dregst saman milli ára
Smásöluverslun dróst saman um ellefu prósent á síðasta ári. Innfluttar vörur hafa hækkað um rúman helm-
ing frá árinu 2006 en neysla hefur dregist saman. Smávöruverslun veltir tæpum 300 milljörðum.
SMÁRALIND Smávöruverslun hefur dregist saman milli ára. Veltan var ellefu prósentum minni 2009 en 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÍS OG ÁVEXTIR Starfsfólk dýragarðsins
í Jerúsalem gaf þessum apa ísklump
með ávöxtum að gæða sér á í hitan-
um. NORDICPHOTOS/AFP
FERÐAMÁL Icelandair mun á
næsta sumri fljúga tvisvar á
dag til New York, Boston og
Parísar. Þessi fjölgun verður á
tímabilinu 1. júní til 12. sept-
ember.
Að því er fram kemur í til-
kynningu frá Icelandair verður
flugfélagið á þessu tímabili
það flugfélag sem oftast flýgur
milli New York og Norðurland-
anna. Þegar er það eina flugfé-
lagið sem flýgur á milli Norður-
landanna og Boston og eitt af
sex flugfélögum í heiminum
sem flýgur oftar en einu sinni á
dag milli Evrópu og Boston yfir
sumarið.
Haft er eftir Birki Hólm
Guðnasyni, forstjóra Icelandair,
að félagið sjái tækifæri til að
þétta áætlanir til að styrkja sig
á markaði. - sh
Icelandair eykur flugtíðni:
Fjölgar ferðum
vestur um haf