Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 16
16 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Hvernig eru reglur um erfðabreytt matvæli? Ísland er eina landið á Evrópska efnahagssvæð- inu þar sem erfðabreytt matvæli og fóður eru ekki merkt sérstaklega. Ýmsir segja brýna þörf á löggjöf um slíkt en landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið hyggst bíða eftir því að lög- gjöf ESB um málið verði tengd EES-samningnum. Hávær umræða hefur undanfar- ið geisað um hvort merkja skuli erfðabreytt matvæli og fóður sérstaklega. Neytendasamtök- in hafa til að mynda lengi kraf- ist slíkra merkinga og fært fyrir þeim þau rök að þær tryggi val- frelsi neytenda. Í apríl síðastliðn- um sendu samtökin fyrirspurn til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um málið. Í svari sem barst frá ráðu- neytinu í lok júní kemur fram að ástæða þess að löggjöf ESB um erfðabreytt matvæli hafi ekki verið tekin upp hér á landi sé sú að Norðmenn hafi átt í samn- ingaviðræðum við framkvæmda- stjórn ESB um ákveðnar aðlagan- ir frá löggjöfinni og því falli hún enn ekki undir EES-samninginn. Þar kemur enn fremur fram að torvelt gæti reynst að taka fram- angreinda löggjöf upp án sam- starfs við ESB og því sé ráðlegra að bíða. Neytendasamtökin voru ekki ánægð með þetta svar ráðuneytis- ins. Í pistli á vefsíðu þeirra segjast þau ekki skilja fullyrðingar ráðu- neytisins í ljósi þess að einungis sé farið fram á að sömu reglur gildi hér og innan ESB og einn- ig í ljósi þess að hin EFTA-löndin; Noregur, Sviss og Liechtenstein, hafa öll sett reglur um merking- ar á erfðabreyttum matvörum. Þá hafa Neytendasamtökin bent á skoðanakönnun frá árinu 2005 þar sem 91 prósent aðspurðra taldi mjög eða frekar þarft að merkja erfðabreytt matvæli. ESB hefur verið í fararbroddi þeirra sem merkja erfðabreytt matvæli. Innan ESB þarf að merkja öll erfðabreytt matvæli sérstaklega en sambærilegar reglur eru meðal annars í Rúss- landi, Kína, Japan, Brasilíu, Ástr- alíu og á Nýja-Sjálandi. Í Banda- ríkjunum og Kanada eru hins vegar engar reglur um merking- ar erfðabreyttra matvæla. Í þeim löndum sem sett hafa reglur um merkingar erfða- breyttra matvæla hefur það yfirleitt verið rökstutt með því að reglurnar veiti neytendum sjálfsagt val. Þeir sem lagst hafa gegn slíkum merkingum segja aftur á móti engan mun vera á erfðabreyttum og matvælum sem ekki eru erfðabreytt og því sé engin þörf á sérstökum merki- miðum sem þjóni ekki öðru hlut- verki en að hræða neytendur. Ef marka má svar sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðu- neytisins við fyrirspurn Neyt- endasamtakanna er einungis tímaspursmál hvenær reglur verða settar hér á landi um merk- ingar erfðabreyttra matvæla en ljóst er að margir eru orðnir heldur óþolinmóðir eftir því. Erfðabreytt matvæli ekki merkt sérstaklega á Íslandi VÍÐA UMDEILD Erfðabreytt matvæli hafa víða verið á milli tannanna á fólki en margir óttast áhrif þeirra á heilsu fólks og umhverfið. NORDICPHOTOS/GETTY Matvæli sem framleidd eru úr lífverum sem breytt hefur verið með utan- aðkomandi erfðaefni teljast erfðabreytt matvæli. Stærstur hluti þeirra eru nytjaplöntur og afurðir þeirra og er erfðabreytingunum oftast ætlað að láta plönturnar gefa meira af sér eða gera þær ónæmar fyrir skordýraeitri. Margir óttast að erfðabreytt matvæli geti haft slæm áhrif á heilsu fólks og raskað jafnvægi í náttúrunni. Flestar rannsóknir benda til þess að þau hafi ekki slæm áhrif á heilsu fólks en þrátt fyrir það er ekki hægt að úti- loka skaðsemi þeirra til lengri tíma. Að sama skapi ríkir óvissa um hvaða áhrif þau geti haft á umhverfið. Hvað eru erfðabreytt matvæli? HÖFUÐSTÖÐVAR ESB Evrópusambandið hefur verið í fararbroddi í að láta merkja erfðabreytt matvæli. Aðildarlönd sambandsins þurfa að láta sérmerkja öll erfðabreytt matvæli. Slíkar reglur er til dæmis hvorki að finna í Bandaríkj- unum né Kanada. ERTU AÐ FARA Í SUMARFRÍ? Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins, nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman. Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst á netfangið dreifing@posthusid.is HEILBRIGÐISMÁL Stækkun lyfjaverk- smiðju Actavis í Hafnarfirði geng- ur samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir því að hefja framleiðslu í nýja hlutanum um áramót. Framleiðslugeta fyrirtækis- ins á Íslandi eykst um helming við stækkun verksmiðjunnar, og verður um einn og hálfur millj- arður taflna á ári. Stækkunin er mjög mikilvæg fyrir starfsem- ina á Íslandi, að sögn Jóns Gunn- ars Jónssonar framkvæmdastjóra. Bæði verði hægt að sinna betur eftirspurn eftir vörum frá fyrir- tækinu og styrkja stöðu fyrirtæk- isins með möguleika á að sinna enn fjölbreyttari framleiðslu. Um 15 til 25 iðnaðarmenn hafa unnið að stækkuninni að staðaldri og fimm arkitekta- og verkfræði- stofur koma að hönnun hússins. Þá hefur verið gengið frá kaupum á öllum tækjabúnaði, en gert er ráð fyrir að uppsetning á honum taki um tvo til þrjá mánuði. Actavis ráðgerir að fjölga starfs- fólki á næstu mánuðum, meðal annars í tengslum við stækkun- ina. - þeb Stækkuð lyfjaverksmiðja Actavis opnuð um áramót: Framleiðslan getur aukist um helming ACTAVIS Unnt verður að framleiða um einn og hálfan milljarð lyfjataflna eftir stækkun. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.