Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 34
30 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Íslenski Dansflokkurinn hefur staðið fyrir sérstök-
um Strákanámskeiðum síðustu fimm ár. Á nám-
skeiðunum kynna dansarar frá flokknum nútíma-
dans fyrir unglingsstrákum. Námskeiðin hafa vakið
mikla lukku meðal unglingspilta hér á landi og nú
hefur flokkurinn ákveðið að fara í útrás með nám-
skeiðin.
Peter Anderson hefur stýrt námskeiðunum fyrir
hönd Dansflokksins undanfarin ár og heldur hann
nú út fyrir landssteinana til að kenna unglingspilt-
um í Svíþjóð og Póllandi grunninn að nútímadansi.
„Undanfarið ár hef ég ferðast nokkrum sinnum til
norðurhluta Svíþjóðar til að kenna dans. Ég heim-
sótti einnig Pólland í júní í sömu erindagjörðum,“
segir Peter og bætir við að piltunum þyki yfirleitt
gaman að takast á við ný og krefjandi verkefni.
„Margir hafa ekki hugmynd um út á hvað nám-
skeiðið gengur en kjósa hreyfinguna fram yfir það
að sitja inni í kennslustofu. Flestir skemmta sér
vel, þó það fari auðvitað mikið eftir stemningunni
í hópnum, og strákarnir verða afskaplega stoltir
þegar þeir fara fram úr eigin væntingum.“ Peter
hættir að kenna námskeiðið í lok sumars til að geta
einbeitt sér að námi sínu í listum og kennslufræði.
„ÍD mun taka við námskeiðinu og halda áfram að
þróa það og efla.“ -sm
Kennir sænskum piltum dans
KENNIR DANS Peter Anderson kennir unglingspiltum í Svíþjóð
og Póllandi nútímadans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
> NÝ PLATA Í OKTÓBER
Samkvæmt vefsíðunni DirectCurrent-
Music.com er ný plata frá hljóm-
sveitinni Kings of Leon vænt-
anleg 19. október. Hljómsveit-
in hefur ekki staðfest það, en
söngvarinn Caleb Followill lét
nýlega hafa eftir sér að hann
myndi flytja alla nýju plötuna
á tónleikum ef útgáfufyrirtæk-
ið leyfði honum það.
Rokkaradóttirin Peaches Geldof og
Íslandsvinurinn og leikstjórinn Eli
Roth hafa ákveðið að ganga í það
heilaga í haust. Hún er sérstaklega
þekkt fyrir að vera dóttir tónlistar-
mannsins Bob Geldof en Roth hefur
gert myndir á borð við Inglorious
Basterds. Parið hefur verið saman
í fjóra mánuði en það er 17 ára ald-
ursmunur á skötuhjúunum.
Þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs
verður þetta í annað sinn sem Geld-
of gengur upp að altarinu en fyrir
tveimur árum giftist hún rokkar-
anum Max Drummey við leynilega
athöfn í Las Vegas. Faðir henn-
ar var mjög á móti þeimráðahag.
Hjónabandið entist í 189 daga.
Bob Geldof mun vera sáttari við
leikstjórann Eli Roth en dóttirin
þorir samt sem áður ekki að segja
honum frá fyrirhuguðum brúð-
kaupsplönum. Brúðkaupið á að vera
að gyðingasið og eiga sé stað á þaki
byggingar í New York.
Peaches þorir ekki
að segja pabba
Í HJÓNABAND Peaches Geldof og Eli
Roth ætla að ganga í það heilaga á
næstunni en þau hafa verið par síðan í
mars á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Sá orðrómur er á sveimi að fyrir-
sætan Miranda Kerr og leikarinn
Orlando Bloom eigi von á barni.
Parið, sem gifti sig á laun fyrir
stuttu síðan, hefur þó ekki stað-
fest þessar fregnir en vinnufélagi
Kerr fullyrti þetta við fjölmiðla
vestanhafs. Jessica White fyrir-
sæta sagði að Kerr væri ólétt og
að nýgiftu hjónin væru í skýjun-
um yfir fréttunum. Einnig hefur
hótelstarfsmaður á karabísku
eyjunni Anquilla, þar sem parið
eyddi hveitibrauðsdögunum, sagt
að Bloom hafi alltaf verið að
afsaka hvað eiginkona sín væri
pirruð á meðan á dvöl þeirra
stóð. Kerr mun hafa verið óvenju
niðurdregin og því hafi leikar-
inn fundið sig knúinn til að segja
starfsfólkinu að Kerr liði ekki vel
því hún væri ólétt.
Ólétt fyrirsæta
VÆNTANLEGIR FORELDRAR Nýgiftu
hjónin Orlando Bloom og Miranda Kerr
eiga von á barni samkvæmt erlendum
fjölmiðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Strandvarðagellan fyrr-
verandi, Pamela Ander-
son, hefur ættleitt tvo
hunda sem voru yfir-
gefnir í kjölfar olíu-
lekans við Mexíkóflóa.
Anderson er heiðurs-
formaður dýravernd-
unarsamtakanna
PETA og komst
í mikið uppnám
þegar hún frétti
af því að fimm-
tíu hundar hefðu
verið yfirgefn-
ir eftir lekann.
Hún ákvað að
ættleiða tvo
þeirra en synir
hennar Brand-
on og Dylan
vildu ættleiða alla fimmtíu.
„Fólk hefur ekki efni á að
kaupa mat handa fjöl-
skyldum sínum og þess
vegna eru gæludýrin
skilin út undan,“ sagði
hún. Hundarnir tveir
hafa verið nefndir í
höfuðið á leikkonunum
Ginu Lollobrigidu og
Brigitte Bardot, sem
eru í miklum metum
hjá Anderson.
Ættleiðir tvo hunda
PAMELA ANDERSON
Leikkonan hefur
ættleitt tvo hunda
sem voru yfirgefnir
vegna olíkulekans við
Mexíkóflóa.
„Singalong“-sýningin Mario
Bros verður sett upp um
miðjan ágúst af danshópn-
um Dans á rósum. Hér er
um að ræða sýningu þar
sem gestir eru hitaðir upp
fyrir sýningu til að taka
þátt í völdum atriðum.
„Þetta er mesta geðveiki í heim-
inum. Ég er að leika, syngja og
dansa og ég hef aldrei gert neitt
af þessu áður. Sem betur fer er ég
með mjög liprar hreyfingar, tæra
söngrödd og þá er ég að tala um að
ég næ hinum hreina tóni. Svo er ég
náttúrulega svaðalegur leikari,“
segir Halldór Halldórsson, betur
þekkur sem Dóri DNA.
Dóri leikur aðalhlutverkið í
sýningu listhópsins Dans á rósum
sem setur upp sýninguna Mario
Bros í ágúst í leikstjórn Írisar
Stefaníu Skúladóttur. Mario Bros,
sem byggt er á tölvuleiknum Super
Mario Bros, er svokallað „singa-
long“-gamanleikhús og verður
sýnt á Norðurpólnum á sviðslista-
hátíðinni artFart 2010 um miðjan
ágúst.
Verkið hefst þegar Mario vakn-
ar og uppgötvar að búið er að ræna
prinsessunni hans enn og aftur.
Hann biður bróður sinn Luigi um
aðstoð við að finna prinsessuna
og tjá þeir bræður baráttu sína
með dansi og söng. Hugmynda-
smíð eiga Íris Stefanía Skúladótt-
ir, Búi Bjarmar Aðalsteinsson og
Rósa Rún Aðalsteinsdóttir, en hún
sér einnig um að semja dansana.
Auk Dóra eru þátttakendur í sýn-
ingunni Saga Garðarsdóttir, Díana
Rut Kristinsdóttir, Axel Diego,
Sindri Steinn Diego, Jóakim Mey-
vant Kvaran, Arndís Benedikts-
dóttir og Særós Mist Hrannar-
dóttir. Þess má geta að hér er um
að ræða sirkusþjálfað fólk og er
Sindri Diego núverandi Íslands-
meistari í fimleikum.
„Ég leikstýrði verki í Norð-
urpólnum í vor og ég þekki Írisi
síðan í MH. Hún hringdi í mig og
spurði hvort ég vildi taka þátt í
öðruvísi dansleikhúsi. Það vildi
svo skemmtilega til að ég var að
flytja til Þýskalands í haust og
ætlaði í raun að slaka á í sumar
þannig að það var tilvalið að koma
þarna inn,“ segir Dóri.
Formið á sýningunni er nýtt að
því leytinu til að áhorfendur verða
hitaðir upp fyrir sýningu og verða
við öllu búnir þegar haldið er inn
í salinn þar sem fjörið tekur við.
Tónlist verksins er frumsamin að
hluta en einnig er hún byggð á tón-
listinni úr tölvuleiknum sjálfum.
„Tónlistin er melódísk en notast
er við þessi Mario Bros-hljóð úr
tölvuleiknum. Halldór [Eldjárn]
er slíkur meistari drengurinn og
ég sem svo einn eða tvo texta með.
Þetta kemur ofsalega vel út,“ segir
Dóri.
Á dagskrá eru einungis þrjár
sýningar, 12., 13. og 15. ágúst en
Dóri hefur fulla trú á því að meira
verði úr sýningunni. „Þetta verða
þessar þrjár sýningar nema þetta
verði ógeðslega vinsælt þá sýnum
við þetta áfram. Ég held þetta
verði Broadwayklassík,“ segir
Dóri að lokum.
linda@frettabladid.is
Dóri DNA leikur Mario í
leit að týndu prinsessunni
Fyrsti myndhlutinn af fimm úr kvik-
myndinni Draumurinn um veginn,
sem fjallar um 800 km pílagrímsgöngu
skáldsins Thors Vilhjálmssonar til Sant-
iago de Compostela á Spáni, var frum-
sýndur í Santiago-borg á dögunum við
mjög góðar undirtektir.
„Skipuleggjandinn hjá Santiago-kvik-
myndamiðstöðinni, Dimas Gonzáles,
sagði að sýningin hefði verið „success“
og gat þess að fjöldi manns hefði komið
að máli við sig eftir sýningu til að lýsa
yfir ánægju sinni og forvitnast um næstu
myndhluta,“ segir Erlendur Sveinsson,
leikstjóri myndarinnar. „Við Thor gátum
ekki verið viðstaddir og því flutti Dimas
ávarp fyrir okkar hönd í upphafi sýning-
ar.“
Erlendur ræddi einnig við annan
mann, Englendinginn David Francis, sem
kemur við sögu í myndinni og hann var
gríðarlega sáttur við frumsýninguna.
„Hann sagðist hafa gleymt að segja mér
frá því að hann starfaði sem pródúsent á
BBC í 20 ár við að framleiða alls konar
heimildarmyndir. Hann naut þess að
horfa í 106 mínútur og vildi hefja mynd-
ina á stall sem eitt af því albesta sem
hann hefði séð.“
Þessi fyrsti myndhluti af Drauminum
um veginn heitir Inngangan og fjallar um
inngönguna í heim fólksins sem gengur
eftir pílagrímsveginum í leit að sjálfu
sér. Erlendur vonast til að sýna myndina
hér á landi í haust og vonast einnig til að
sýna hina myndhlutana erlendis síðar
meir. Hann er þegar búinn að gera enska
útgáfu af fyrsta hlutanum og vonast til
að koma henni að á kvikmyndahátíðum
erlendis. - fb
Draumurinn vakti lukku í Santiago
VEL HEPPNUÐ FRUMSÝNING Leikstjórinn Erlend-
ur Sveinsson ásamt skáldinu Thor Vilhjálmssyni.
Frumsýningin í Santiago heppnaðist sérlega vel.
MARIO BROS
Dóri DNA fer með hlutverk Marios í
söngleik sem byggður er á tölvuleiknum
Super Mario Bros.