Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 24
„Við byrjuðum að leggja braut- ina á mánudaginn í síðustu viku og það gengur bara rosalega vel,“ segir Ormur Arnarson sem undir- býr opnun fyrsta fjallahjólreiða- vangs Íslands á skíðasvæðinu í Skálafelli. Hjólreiðavangurinn verður formlega opnaður á sunnu- daginn. „Þetta er tilraunaverkefni af hálfu ÍTR og borgarinnar en ef þetta gengur vel geri ég ráð fyrir að það verði haldið áfram að bæta við aðstöðuna,“ segir Ormur en ein braut hefur verið gerð sem er hátt í þrír kíló- metrar að lengd með 350 metra fallhæð. „Hugmyndin er að gera Skálafellið að hjólamiðstöð,“ segir Ormur og bætir við að lag- færa eigi gamla stíga og leiðir sem þegar séu til á svæðinu í kring. „Opnun brunbrautarinn- ar er fyrsti liðurinn í þessu verk- efni. Við reynum að hafa brautina þannig að hún henti sem flestum. Við gerum ráð fyrir að menn með mismunandi hæfileika eða tækni geti farið þarna niður og þar sem eru erfiðari staðir verður alls staðar hægt að sveigja fram hjá þeim.“ Að sögn Orms er töluvert um svokallaða hjólreiðavanga erlend- is. „Þetta eru hjólreiðavangar sem eru sérhannaðir fyrir fjallahjól. Oft er þetta á skíðasvæðunum því skíðalyfturnar standa óhreyfðar yfir sumartímann. Hugmyndin er að nota þennan útbúnað og fara með hjólreiðamenn upp á topp og leyfa þeim svo að renna sér niður fjallið á þar til gerðum brautum.“ Eru margir sem munu nýta sér þessa braut? „Ég held að það sé alveg lygilega stór hópur sem er í fjallahjólreiðum. Hjólreið- ar eru alltaf að aukast,“ útskýrir Ormur og heldur áfram: „Og þegar aðstaða er til staðar þá fer fólk af stað til að nýta sér hana. Góð aðstaða hvetur til hjólreiða.“ Ormur segir hjólreiðavanginn góða viðbót við ferðaþjónustu í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. „Allt í einu er kominn grundvöll- ur fyrir hjólaleigur og hjólaferð- ir með leiðsögn eða að menn bara fari í fjallið og leiki sér þar.“ Dagspassi í lyfturnar mun vera á svipuðu verði og í skíðalyftur yfir vetrartímann. Nánari upp- lýsingar má finna á www.tinyurl. com/skalafell. martaf@frettabladid.is Lygilega stór hjólahópur Skref í þá átt að gera Skálafell að hjólreiðamiðstöð verður stigið um næstu helgi þegar þar verður opnuð þriggja kílómetra fjallahjólreiðabraut á fyrsta hjólreiðavangi Íslands. Brautarlagningin hófst í síðustu viku. Hönnuður brautarinnar, Magne Kvam, stýrir gerð brautarinnar í Skálafelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ormur segir allt í einu kominn grundvöll fyrir hjólaleigur og hjólaferðir með leiðsögn í nágrenni Reykjavíkur. Ormur segir hugmyndina þá að gera Skálafell að hjólamiðstöð. Sara Riel myndlistarmaður mun annað kvöld svipta hulunni af huldum listaverkum í borginni í göngu sem helguð er „urban art“ eða götulist. Í skúmaskotum borgarinnar leynast listaverk af ýmsum toga. Myndlistarmaðurinn Sara Riel, sem hefur verið áberandi fulltrúi götulistar í Reykja- vík, leiðir annað kvöld göngu sem helguð er götu- listinni. Sara mun segja gestum frá þróun listgreinarinnar og þeim áhrifum sem hún hefur haft meðal annars á menningu ungs fólks og grafíska hönnun. Sara býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist úr Kunsthochschule Berlin-Weissensee árið 2006. Hún hefur verið virk í sýningarhaldi, bæði í hvít- um kössum sem og á götum ýmissa borga víða um heim. Verk Söru eiga sér rætur í og vísa til götu- listar, popplistar, teiknimyndahefðar, hugmynda-og minimalisma auk (grafískrar) hönnunar. Gangan hefst klukkan 20 á morgun við Hjartatorg milli Hverfisgötu, Klapparstígs og Laugavegar og tekur um klukkustund. Ef tími vinnst til verður kíkt inn á klúbba og bari, þangað sem götulistin hefur teygt anga sína. Listaverk í skúmaskotum Götulistin getur oft verið áhrifamikil og dramatísk. FIMMVÖRÐUHÁLS er vinsæl gönguleið. Búið er að merkja nýja gönguleið í gegnum eldstöðvarnar. www.utivist.is. Lín Design - gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 - Sími 533 2220 - www.lindesign.is ÚTSALAN ER HAFIN 10-50% afsláttur Útsalan er einnig í vefverslun www.lindesign.is 3000 kr. DAGUR Í FLASH • Kjólar • Gallakvartbuxur • Gallabuxur • Mussur • Toppar • Skyrtur • Og margt fl eira FimmtudagaJóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.