Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 30
26 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Til eru mörg athyglisverð úrræði fyrir þá sem búa við hvers konar kvilla á líkama og sál í Granadahéraði á Suður- Spáni. TIL dæmis býr kynlegur kvistur í borg- inni Baza sem kallaður er Santon og seg- ist hann geta, með aðstoð Maríu meyjar, komið hvaða kvilla sem er fyrir kattar- nef. Heimamenn hafa þó ekki mikla trú á honum og gera að honum gys. Hins vegar kemur fólk víðs vegar að af Spáni og losar sig við vanda og veikindi. Hann segir þjónustu sína vera fría en fólk lætur þó eitthvað af hendi rakna. Allavega hefur hann haft efni á því að reisa bænahús mikið við heimili sitt. EN ÞÓTT bænahúsið sé veglegt getur honum þó orðið á í messunni því einhverju sinni fór hann fylktu liði upp á hæð eina þar sem María átti að birtast. Bað hann hópinn að horfa til sólar sem fólkið og gerði og varð vitanlega meint af. María mætti hins vegar ekki til þessa meinlega fundar sem endaði á bráðamót- tökunni. Í ÞORPINU Zújar, þar sem ég hef alið manninn, býr gömul kona sem losar menn undan álögum augans illa. Þetta illa auga er þekkt víða um Miðjarðarhaf- ið en það virkar eins og illur andi sem leggst á menn þegar einhver öfundar þá af einhverjum sökum. Kona þessi leggur þá fingur sína í ólívuolíu og gerir kross- mark á enni þess sjúka og verður hann þá eins og nýsleginn túskildingur. ÓÞARFT er að segja frá kalþólsku prest- unum sem veita mönnum syndaaflausn á einu augabragði. Ég hef átt nokkurt erindi við prestinn í Zújar og varð þá stundum vitni að því að konur, bognar af syndum og samviskubiti, króuðu guðs- manninn af úti í horni og sögu raunir sínar í stuttu máli. Hefur hann þá uppi fá orð en gerir krossmark við þá þjáðu. Koma þær síðan út úr kirkju beinar í baki og tilbúnar til að hlaða herðar sínar syndum á nýjan leik. ENGAR sannanir hef ég fyrir því að svona brögð beri árangur. Hins vegar finnst mér þau öll krydda tilveruna og þar með hafa þau unnið fyrir tilverurétti sínum í mínum huga. Ef guð er þarna að verki þá er hann líklega að beita gaman- semi sinni: sterkari lækningamáttur er varla til. Allra meina bót Læknirinn lét mig fá þessi útaf hrotunum mínum. Þú verður að setja þau á þig áður en þú ferð að sofa. Ahh! Útborgunar- dagur! Góðar fréttir! Peningarnir breyta mér ekkert! Ekkert sílíkon í þessum mánuði heldur? Ekkert! Ohh! Þú ert alltaf að segja mér að skipuleggja framtíðina... Vandamálið er úr sögunni því nú ætlar Pierce að hjálpa mér að búa til áætlun. Hún kallast „slapp- aðu af og sjáðu hvað gerist“ Hún virkaði ekkert sérstaklega spennt. Ég fæddist ókunnug- ur í eigin klíku. Argh! Það eru ekki til hreinar bleyjur! Ég veit. Mamma fór út að kaupa. Kannski er ein inni í skáp. Kannski get ég... Þetta er ástæðan fyrir því að ofurhetj- ur hafa ofurkrafta. Ætlarðu ekki að hjálpa mér?!? ...ég sá það á Vísi Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna allt sem þú þarft að vita um stjörnurnar í Hollywood, vini þeirra, gæludýr og samkvæmislíf – eða bara eitthvað allt annað. Leitaðu að efni úr Fréttablaðinu og af Vísi. Það eina sem þarf er leitarorð. Vísir er með það. „Hollywood“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.