Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 04.08.2010, Blaðsíða 40
36 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Eyjamenn hafa á einu ári farið frá því að vera botnlið Pepsi-deildar karla í að vera með þriggja stiga forskot á toppnum. Heimir Hallgrímsson, þjálfari liðsins, er búinn að gera frábæra hluti með liðið, hann hefur fengið hárréttu útlendingana út í Eyjar en lykilatriðið var þó að kalla markahetjuna Tryggva Guðmundsson aftur heim. Tölfræðin segir vissulega sína sögu. Eftir 13. umferðina 20. júlí 2009 var ÍBV-liðið í 11. sæti (12. sæti eftir 12. umferð) með 3 sigra og 11 stig alls eða ellefu sætum neðar en FH- liðið sem var með 11 sigra og 34 stig. Eftir 13. umferð 26. júlí 2010 sitja Eyjamenn hins vegar á toppnum, búnir að vinna 9 leiki og með 29 stig. ÍBV er nú 7 stigum og 3 sigrum á undan Íslandsmeisturunum úr FH. Eyja- menn eru þannig búnir að vinna sex leikjum meira en á sama tíma í fyrra þegar þeir voru án Tryggva. FH-ingar hafa unnið fimm leikj- um færra í ár en í fyrra þegar þeir voru með Tryggva innanborðs. Spilar best undir pressu „Það sem Tryggvi gefur strákunum mínum og liðinu mínu er að hann höndlar athygl- ina og honum líður best í athygli. Ég hef oft tekið eftir þessu í sumar. Hvort sem athyglin er jákvæð eða neikvæð þá virðist hann spila best undir pressu og þegar hann fær athygli. Hann tekur því pressuna af peyjunum mínum sem eru ekkert vanir að vera í toppbaráttu eða í mikilli umfjöllun,“ segir Heimir Hall- grímsson, þjálfari ÍBV, um áhrif Tryggva og bætir síðan við: „Hvort sem er á æfingum eða í leikjum þá vill hann að allir séu hundr- að prósent á fullu. Það er þessi sigurvilji sem rekur hann áfram því hann þolir ekki að tapa og þá heldur ekki á æfingu. Þetta smám saman smitast í hópinn í kringum hann,“ segir Heimir. Tryggvi Guðmundsson er nú að leika sitt níunda tímabil í röð þar sem lið hans vinnur átta eða fleiri leiki og hefur hann orðið Íslandsmeistari á fimm af þess- um átta sumrum. Lið hans hafa unnið 104 leiki á þessum níu tímabilum eða tæplega tólf að meðaltali og Eyjaliðið á enn níu leiki eftir inni til þess að bæta við þann fjölda. Heimir bendir á að vissulega hafi Tryggvi notið góðs af því að hafa verið í FH, sem hefur verið yfirburðalið á Íslandi síðustu ár, en talar jafnframt um að sviðsljósið kalli fram allt það besta hjá Tryggva. „Hann virðist blómstra í umhverfi þar sem er mikil umfjöllun eins og til dæmis hjá toppliðunum,“ segir Heimir sem nýtir sér Tryggva óspart þegar þarf að koma fram fyrir liðið. Tryggvi er þannig mun meira áberandi en fyrirliðinn Andri Ólafsson, sem hefur einnig átt frábært tímabil. Látum hann taka viðtölin „Núna látum við hann bara taka viðtölin því hann hefur gaman af því og er góður í viðtöl- um. Hann mun aldrei ofmetnast af því að fá að spjalla við sjónvarpið en einhverjir yngri strákar myndu ekki ráða við það. Það er einn af þessum þáttum sem mér finnst vera mjög sterkur hjá honum og jafnvel þó að það hafi verið skrifað illa um hann, að hann hafi verið að láta sig detta og svona, þá spilar hann bara betur,“ segir Heimir. Tryggvi Guðmundsson hefur átt mjög flott tímabil. Hann er langt frá kominn heim til Eyja „til að deyja“ eins og einhverjir héldu þegar hann skipti úr FH í fyrrahaust. Eins og staðan er núna er Tryggvi efstur í einkunna- gjöf í Fréttablaðinu (6,85 í leik), hann er í 2. sæti (2.-6.) yfir markahæstu menn og í 2. sæti (2.-3.) í stoð- sendingum. „Ég hugsa að það sé einn af þeim þáttum sem gerðu það að verkum að hann er að standa sig vel. Það voru margir sem héldu að þetta yrði ekkert skemmtilegt tímabil fyrir Tryggva að koma út í Eyjar af því að það hefur ekki verið mikill uppgangur hjá okkur síðustu ár. Við vorum ákveðnir í að stefna hátt og við gerum það. Hann er stór þáttur í því að þetta er að ganga upp,“ segir Heimir. Tryggvi hefur alls tekið þátt í 115 sigurleikjum í efstu deild og á möguleika á því að ná tveimur metum í deildinni. Tryggvi hefur skorað 114 mörk í 193 leikjum og vantar tólf mörk upp á að ná Inga Birni Albertssyni. Tryggvi hefur auk þess gefið sextíu stoðsend- ingar og vantar 27 til þess að ná methafanum Guðmundi Benediktssyni. Sex sigurleikir í röð Eyjamenn eru búnir að vinna sex leiki í röð og Tryggvi hefur skorað 5 mörk og gefið tvær stoðsendingar í þeim. „Við erum rétt búnir að spila hálft mótið og það þýðir ekk- ert að búa til einhverjar skýjaborgir. Það er búinn að vera stöðuleiki í þessu hjá okkur og ég er ánægður með það. Tryggvi á svolítið mikinn þátt í því að við erum að halda stöðug- leika því hann er ekki vanur öðru og hann er að kenna þessum peyjum hvernig á að hugsa þegar maður í toppbaráttunni,“ sagði Heimir að lokum og það vill svo til að næsti leikur er einmitt á móti gömlu félögum Tryggva úr FH á Hásteinsvellinum á morgun. ooj@frettabladid.is Sigurvegarinn Tryggvi Guðmunds Tryggvi Guðmundsson kann fátt betur en að skora mörk og vinna leiki í íslensku úrvalsdeildinni. Þessi mikli sigurvegari hefur haft mikil áhrif á ÍBV-liðið sem nú situr í toppsæti Pepsi-deildarinnar ári eftir að það var á botninum. Tryggvi hefur tekið þátt í 104 sigurleikjum á síðustu níu tímabilum sínum á Íslandi. 114 MÖRK OG 115 SIGRAR Tryggvi Guðmundsson hefur fagnað fjölmörgum mörkum og aðeins fleir sigrum á tólf tímabilum sínum í íslensku deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Það er þessi sig- urvilji sem rekur hann [Tryggva] áfram því hann þolir ekki að tapa og þá ekki heldur á æfingu. Þetta smá saman smitast í hópinn í kringum hann. HEIMIR HALLGRÍMSSON ÞJÁLFARI ÍBV Tölur Tryggva síðustu níu tímabil á Íslandi 1995 ÍBV 18 leikir (10 sigrar/14 mörk-5 stoðs.) 1996 ÍBV 16 leikir (8/8-7) 1997 ÍBV* 18 leikir (12/19-4) 2005 FH* 17 leikir (15/16-4) 2006 FH* 17 leikir (10/8-4) 2007 FH 17 leikir (10/8-8) 2008 FH* 21 leikur (14/12-13) 2009 FH* 20 leikir (16/7-6) 2010 ÍBV 13 leikir (9/7-5) 1995-2010: 157 leikir (104/99-56) * Íslandsmeistari þetta sumar Sumarið 2010 hjá Tryggva Maí 5 leikir 2 sigrar, 2 mörk, 2 stoðsendingar Júní 4 leikir 3 sigrar, 2 mörk, 1 stoðsending Júlí 4 leikir 4 sigrar, 3 mörk, 2 stoðsendingar Leikir - sigrar 13-9 (ÍBV er í 1. sæti) Meðaleinkunn hjá Fréttablaðinu 6,85 (1. sæti) Mörk skoruð 7 (2.-6. sæti) Stoðendingar 5 (2.-3. sæti) Þáttur í mörkum 12 (2. sæti) Eftir þrettán umferðir 2009 2010 Margt breytt á einu ári 11 6 -5 3 9 +6 Gengið var frá félagaskiptum Garðars Jóhannssonar í Stjörn- una nú skömmu áður en félagaskiptaglugginn lokaði um mánaðamótin. Garðar lék síðast með Hansa Rostock í Þýska- landi þar sem hann er enn að ganga frá sínum málum. „Ég kem heim á mánudaginn og spila því ekkert með Stjörnunni í þessari viku,“ sagði Garðar við Fréttablaðið. Stjarnan á leik gegn KR á útivelli á fimmtudaginn og á sunnudag tekur liðið á móti Selfossi. Garðar vonast þó enn til þess að hann komist að hjá félagi á meginlandinu áður en alþjóðlegi félagaskipta- glugginn lokar um næstu mánaðamót. „Í augnablikinu er ekkert fast í hendi. Ég leit á félaga- skiptin í Stjörnuna fyrst og fremst sem varnagla, allavega til að byrja með. Ef ekkert gerist hjá mér hérna úti á ég von á því að flytja heim og þá verð ég bara sáttur við það,“ sagði Garðar. Hann segist hafa verið að skoða möguleika á því að komast að hjá félagi annað hvort í Þýskalandi eða Danmörku, fyrst og fremst. „Það hafa verið nokkrir möguleikar í boði fyrir mig en ég tel það sem fram hefur komið ekki það bitastætt að ég geti stokkið á það. En svo er markaðurinn mjög erfiður líka og þá sérstaklega í Danmörku. Ég hef farið tvisvar til reynslu hjá dönskum félögum þar sem mér hefur gengið vel. Hins vegar eiga þessi félög ekki peninga og því er ég í raun enn að bíða eftir svörum þaðan.“ Hann á von á því að markaðurinn taki við sér síðari hluta ágústmánaðar. „Síðustu tvær vikurnar fer allt á fullt og þá kemur einnig til greina að fara til Noregs eða Svíþjóðar. Ég vona að þá verð ég búinn að spila 1-2 leiki með Stjörnunni og kominn í ágætt form. Mér veitir ekki af því enda ekkert æft eða spilað síðan í maí. Það er alveg ljóst að ég er ekki að koma til Stjörnunnar sem bjargvættur eða neitt slíkt,“ sagði hann. GARÐAR JÓHANNSSON: GENGINN TIL LIÐS VIÐ STJÖRNUNA OG KEMUR TIL ÍSLANDS Í NÆSTU VIKU Ég er ekki að koma sem bjargvættur Stjörnunnar > Fær ekki samning hjá Charlton Gunnari Heiðari Þorvaldssyni var ekki boðinn samningur hjá enska C-deildarliðinu Charlton þar sem hann var til reynslu fyrr í sumar. Gunnar Heiðar meiddist reyndar í æfingaleik með félaginu og sneri þá heim til Íslands. Gunnar Heiðar er á mála hjá danska liðinu Esbjerg en var lánaður til Reading í ensku B-deildinni á síðari hluta síðasta tímabils. Þar gat hann lítið spilað vegna meiðsla. Gunnar Heiðar hefur þó til mánaðarloka til að finna sér nýtt félag í Evrópu. Ef það tekst ekki mun hann væntanlega snúa aftur til Esbjerg. U-21 landsliðshópurinn Markverðir: Haraldur Björnsson Þrótti Arnar Darri Pétursson SönderjyskE Varnarmenn: Hólmar Örn Eyjólfsson West Ham Hjörtur Logi Valgarðsson FH Skúli Jón Friðgeirsson KR Andrés Már Jóhannesson Fylki Jón Guðni Fjóluson Fram Kristinn Jónsson Breiðabliki Miðvallarleikmenn: Birkir Bjarnason Viking Bjarni Þór Viðarsson Mechelen Eggert Gunnþór Jónsson Hearts Gylfi Þór Sigurðsson Reading Jóhann Berg Guðmundsson AZ Alkmaar Almarr Ormarsson Fram Guðlaugur Victor Pálsson Liverpool Sóknarmenn: Kolbeinn Sigþórsson AZ Alkmaar Alfreð Finnbogason Breiðabliki Kristinn Steindórsson Breiðabliki FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, fær ekki að nota sitt sterkasta lið á móti Þjóðverjum í leik liðanna í undankeppni fyrir EM 2011. Ísland mætir Þýskalandi á Kapla- krikavelli á miðvikudaginn. Eyjólfur fékk ekki leyfi Ólafs Jóhannessonar til að nota þá Aron Einar Gunnarsson, Arnór Smára- son og Rúrik Gíslason, sem eru í A-landsliðshópnum, fyrir vináttu- leik við Liechtenstein. Matthi- as Sammer, þjálfari Þjóðverja, er að reyna að fá alla sína sterkustu leikmenn í leikinn. Annað sæti riðilsins getur gefið sæti í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2011 sem fram fer í Danmörku og með sigri tryggir íslenska liðið sér nánast annað sætið og skilur Þjóðverja eftir í riðlinum. - óój 21 árs landsliðið valið: Þrír fá ekki að vera með VIÐBÓT FRÁ SÍÐASTA LEIK Gylfi Þór Sig- urðsson er í hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KÖRFUBOLTI Nýliðar KFÍ í Ice- land Express-deild karla hafa samið við Bosníumanninn Edin Suljic (203 sm) og Englendinginn Carl Josey (192 sm). KFÍ sér hins vegar á eftir hinum frábæra mið- herja Igor Tratnik sem hefur gert samning við Tenerife Rural frá Spáni. Tratnik gerði samning við KFÍ um að spila hér, en var með klásúlu um að fá sig lausan ef boð frá stærra liði bærist. Bandaríski bakvörðurinn Craig Schoen spilar sitt þriðja tímabil með KFÍ í vetur en liðið er nú þjálfað af Bandaríkjamanninum B.J. Aldridge sem mætti á Ísa- fjörð í gær. - óój KFÍ í körfuboltanum: Misstu einn en fá tvo í staðinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.