Fréttablaðið - 04.08.2010, Page 30
26 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Til eru mörg athyglisverð úrræði fyrir þá sem búa við hvers konar kvilla á
líkama og sál í Granadahéraði á Suður-
Spáni.
TIL dæmis býr kynlegur kvistur í borg-
inni Baza sem kallaður er Santon og seg-
ist hann geta, með aðstoð Maríu meyjar,
komið hvaða kvilla sem er fyrir kattar-
nef. Heimamenn hafa þó ekki mikla trú á
honum og gera að honum gys. Hins vegar
kemur fólk víðs vegar að af Spáni og
losar sig við vanda og veikindi. Hann
segir þjónustu sína vera fría en fólk
lætur þó eitthvað af hendi rakna.
Allavega hefur hann haft efni á því
að reisa bænahús mikið við heimili
sitt.
EN ÞÓTT bænahúsið sé veglegt getur
honum þó orðið á í messunni því
einhverju sinni fór hann fylktu
liði upp á hæð eina þar sem
María átti að birtast. Bað
hann hópinn að horfa til
sólar sem fólkið og gerði
og varð vitanlega meint
af. María mætti hins
vegar ekki til þessa
meinlega fundar sem
endaði á bráðamót-
tökunni.
Í ÞORPINU Zújar, þar sem ég hef alið
manninn, býr gömul kona sem losar
menn undan álögum augans illa. Þetta
illa auga er þekkt víða um Miðjarðarhaf-
ið en það virkar eins og illur andi sem
leggst á menn þegar einhver öfundar þá
af einhverjum sökum. Kona þessi leggur
þá fingur sína í ólívuolíu og gerir kross-
mark á enni þess sjúka og verður hann
þá eins og nýsleginn túskildingur.
ÓÞARFT er að segja frá kalþólsku prest-
unum sem veita mönnum syndaaflausn
á einu augabragði. Ég hef átt nokkurt
erindi við prestinn í Zújar og varð þá
stundum vitni að því að konur, bognar af
syndum og samviskubiti, króuðu guðs-
manninn af úti í horni og sögu raunir
sínar í stuttu máli. Hefur hann þá uppi
fá orð en gerir krossmark við þá þjáðu.
Koma þær síðan út úr kirkju beinar í
baki og tilbúnar til að hlaða herðar sínar
syndum á nýjan leik.
ENGAR sannanir hef ég fyrir því að
svona brögð beri árangur. Hins vegar
finnst mér þau öll krydda tilveruna og
þar með hafa þau unnið fyrir tilverurétti
sínum í mínum huga. Ef guð er þarna að
verki þá er hann líklega að beita gaman-
semi sinni: sterkari lækningamáttur er
varla til.
Allra meina bót
Læknirinn lét mig
fá þessi útaf
hrotunum mínum.
Þú verður að setja
þau á þig áður en
þú ferð að sofa.
Ahh!
Útborgunar-
dagur!
Góðar fréttir!
Peningarnir
breyta mér
ekkert!
Ekkert sílíkon
í þessum
mánuði
heldur?
Ekkert!
Ohh!
Þú ert alltaf að segja
mér að skipuleggja
framtíðina...
Vandamálið er úr
sögunni því nú ætlar
Pierce að hjálpa mér
að búa til áætlun.
Hún kallast „slapp-
aðu af og sjáðu hvað
gerist“
Hún virkaði
ekkert
sérstaklega
spennt.
Ég
fæddist
ókunnug-
ur í eigin
klíku.
Argh! Það eru ekki til
hreinar bleyjur!
Ég veit.
Mamma
fór út að
kaupa.
Kannski er ein inni í
skáp. Kannski get ég...
Þetta er ástæðan
fyrir því að ofurhetj-
ur hafa ofurkrafta.
Ætlarðu ekki
að hjálpa
mér?!?
...ég sá það á Vísi
Notaðu öfluga og ókeypis leit á Vísi til að finna
allt sem þú þarft að vita um stjörnurnar í Hollywood,
vini þeirra, gæludýr og samkvæmislíf – eða bara
eitthvað allt annað. Leitaðu að efni úr Fréttablaðinu
og af Vísi. Það eina sem þarf er leitarorð.
Vísir er með það.
„Hollywood“