Fréttablaðið - 04.08.2010, Síða 10
10 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
Ego Dekor
Bæjarlind 12
S: 544 4420
www.egodekor.is
Opnunartímar:
Mán-fös 10.00-18.00
Laugardag: 10.00-18.00
Sunnudag: 13.00-17.00
20-50% AFSLÁTTUR
ÚTSALAN ER HAFIN
LÍBANON, AP Til skotbardaga kom
milli ísraelskra og líbanskra her-
manna á landamærum Ísraels og
Líbanons í gær. Þetta eru alvar-
legustu átökin sem orðið hafa frá
heiftarlegum stríðsátökum þar
fyrir fjórum árum.
Þrír líbanskir hermenn, einn
yfirmaður í ísraelska hernum og
einn blaðamaður létu lífið. Frétt-
um ber þó ekki saman um hvert
var tilefni átakanna. Ekkert bend-
ir til þess að líbönsku samtökin
Hezbollah hafi átt hlut að máli.
Líbanonsher segir átökin hafa
byrjað eftir að ísraelskir hermenn
reyndu að fjarlægja tré sem var
innan landamæra Líbanons en
byrgði Ísraelsmönnum sýn. Líb-
anar segjast hafa skotið viðvörun-
arskotum, en ísraelski herinn hafi
svarað með stórskotahríð.
Á ljósmynd frá AP-fréttastof-
unni, sem fylgir þessari frétt, má
sjá ísraelskan hermann standa í
körfu á krana sem beint er yfir
landamæragirðinguna, þannig
að hermaðurinn er Líbanonsmeg-
in girðingarinnar meðan félag-
ar hans fylgjast með á ísraelskri
grund.
Ísraelski herinn neitar því að
menn hans hafi verið komnir yfir
landamærin, því öryggisgirðingin
sé reist á ísraelsku landsvæði en
landamæralínan sjálf liggi sums
staðar nokkru handan girðingar-
innar.
Saeed Hariri, forsætisráðherra
Líbanons, sendi frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hann segir Ísraela
hafa gerst brotlega gegn fullveldi
Líbanons. Ísraelsmenn hóta hins
vegar frekari aðgerðum ef átökin
halda áfram.
Sameinuðu þjóðirnar hvetja
bæði ríkin til að halda aftur af
sér vegna þessa atviks svo átökin
magnist ekki upp.
Fyrir fjórum árum gerðu Ísra-
elar innrás í Líbanon sem kostaði
tólf hundruð Líbana og 160 Ísraela
lífið. Eftir þau átök sendu Samein-
uðu þjóðirnar tólf þúsund manna
friðargæslulið á svæðið.
Andrea Tenenti, talsmaður frið-
argæsluliðsins, segir óljóst hvort
Ísraelar hafi verið komnir yfir
landamærin. Kanna þurfi hvað
hæft sé í því.
Spenna hefur magnast við
landamærin á síðustu mánuðum.
Mikil tortryggni virðist ríkja
meðal Líbana gagnvart friðar-
gæsluliðinu. „Eruð þið hér til að
vernda okkur eða eruð þið hér til
þess eins að flýja?“ hrópuðu íbúar
að friðargæslumönnum.
guðsteinn@frettabladid.is
Fimm féllu í bardaga eftir
að Ísraelar fjarlægðu tré
Ísraelskir og líbanskir hermenn skiptustu á skotum á landamærum ríkjanna í gær með þeim afleiðingum
að fimm létust. Deilt er um hvort ísraelskir hermenn farið yfir landamærin og ögrað þannig Líbönum.
FARIÐ YFIR LANDAMÆRAGIRÐINGUNA Líbanonsher segir tilefni átakanna hafa verið þegar ísraelskur hermaður fór yfir landa-
mæragirðinguna, en Ísraelsher segir girðinguna á ísraelsku landsvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LAGÐI SIG Í HITANUM Maður þessi
lagði sig í skjóli regnhlífar í hitabylgj-
unni í Moskvu undir turnum Kremlar.
NORDICPHOTOS/AFP
JAPAN, AP Fusa Furuya er talin
vera elsta kona Japans. Hún er
fædd árið 1897 og er því 113 ára.
Hún finnst hins vegar hvergi.
Hún er skráð til heimilis í
höfuðborginni Tókíó, en húsið
hefur verið rifið og ekkert vitað
um dvalarstað hennar.
79 ára gömul dóttir henn-
ar segir hana aldrei hafa búið
þar, og hún viti ekki hvar hún sé
niðurkomin. Hún sagðist þó telja
hana búa rétt fyrir utan borgina.
Aðeins fáeinir dagar eru síðan
karlmaður, sem talinn var sá elsti
í landinu, fannst látinn á heimili
sínu og hafði augljóslega legið
þar látinn í rúmi sínu í tuttugu ár.
- gb
Lítið vitað um elstu Japanana:
Elsta konan
finnst hvergi
HORFIÐ HEIMILI Elsta kona Japans var
skráð hér til heimilis, en húsið hefur
verið rifið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VÍSINDI Svo virðist sem beinni
tengsl séu milli heilbrigðis hjarta
og heila en vísindamenn hafa
hingað til gert sér grein fyrir.
Samkvæmt nýrri rannsókn eld-
ist heilinn hraðar ef hjartað er
veiklað, jafnvel þótt eiginlegir
hjartasjúkdómar hafi ekki látið
á sér kræla.
Vísindamenn við Boston-
háskóla í Bandaríkjunum hafa
birt skýrslu um þessa rannsókn.
Hún var gerð á um 1500 manns á
aldursbilinu 34 til 84 ára.
Vísindamennirnir mældu
styrkleika hjarta og öldrunar-
einkenni heila. Þá kom í ljós að
því kraftmeira sem hjartað er því
minni öldrunareinkenni sjást á
heilanum.
Þessi tengsl milli hjarta og
heila mátti sjá bæði hjá fólki á
fertugsaldri og öldungum komn-
um yfir áttrætt.
Frá þessu er skýrt meðal ann-
ars á vefsíðum BBC og þýska
tímaritsins Spiegel.
„Þátttakendurnir eru ekki
sjúklingar,“ hefur BBC eftir Ang-
elu Jefferson, sem stjórnaði rann-
sókninni. „Mjög fáir þeirra eru
með hjartasjúkdóma.“ - gb
Ný rannsókn sýnir að heilinn á mikið undir heilbrigðu hjarta:
Veiklað hjarta veikir heilann
HJARTASTYRKJANDI ÆFINGAR Kínverskir
öldungar í leikfimi. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Stefnt er að því að skipa
nýjan hæstaréttardómara áður
en Hæstiréttur tekur til starfa að
nýju um næstu mánaðamót. Hjör-
dís Björk Hákonardóttir hæsta-
réttardómari lét af störfum um
helgina og matsnefnd metur nú
hæfni þeirra fjögurra umsækj-
enda sem sóttu um stöðu hennar.
Ása Ólafsdóttir, aðstoðarmað-
ur dómsmálaráðherra, segir að
nefndin hafi sex vikur til þess að
ljúka störfum en að vonast sé til
þess að málið verði klárað í þess-
um mánuði. - jhh
Nýr dómari við Hæstarétt:
Skipaði í starfið
í mánuðinum
Skemmtilegir fá aðgang
Íbúar á Skagaströnd undirbúa nú
hátíðina Kántrýdaga sem verður
haldin 13. til 15. ágúst. Á heimasíðu
sveitarfélagsins kemur fram að
eingöngu skemmtilegt fólk fái aðgang
að Kántrýdögum sem verða formlega
opnaðir með fallbyssuskoti.
SKAGASTRÖND
Vatnið aftur drekkandi
„Neysluvatnið á Djúpavogi uppfyllir
nú aftur þær gæðakröfur sem gerðar
eru og því þarf ekki lengur að sjóða
það,“ segir í tilkynningu sveitarstjóra
Djúpavogs.
DJÚPIVOGUR