Fréttablaðið - 04.08.2010, Side 28
24 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Ástkær eiginmaður minn, faðir
okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Ólafur Berg
Bergsteinsson,
Grandavegi 47, Reykjavík,
andaðist á Elliheimilinu Grund, föstudaginn 30. júlí.
Steinunn Stefánsdóttir
Sigurbergur M. Ólafsson Ragnhildur Bergþórsdóttir
Sigríður V. Ólafsdóttir Hafþór Halldórsson
Kristján G. Ólafsson
Stefán Oddsson
barnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma okkar,
Sigurrós Margrét
Sigurjónsdóttir,
Gullsmára 9, Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum laugardaginn 31. júlí.
Jarðaförin verður auglýst síðar.
Jónas Gunnar Guðmundsson
Sigurbjörn Rúnar Jónasson
Reynir Jónasson Hrafnhildur Rós Valdimarsdóttir
Daníel Björn Sigurbjörnsson
Matthías Sigurbjörnsson
Þórunn Sigurrós Sigurbjörnsdóttir
Bergdís Heiða Reynisdóttir
Friðbjörn Víðir Reynisson
Elskulegi faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Guðni Hans Bjarnason,
múrari,
frá Þorkelsgerði II í Selvogi, Árn. Miðtúni 20, lést
að kvöldi laugardagsins 31. júlí á lungnadeild
Landspítalans í Fossvogi. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Sigmar Þór Óttarsson Helga Konráðsdóttir
Guðrún Sóley Guðnadóttir Helgi Harðarson
Garðar Guðnason Sigríður Sigurðardóttir
Friðrik Guðnason Elísa Sigrún Ragnarsdóttir
Ásgeir Ævar Guðnason Guðbjörg Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
„Upphaflega hugmyndin var að halda
lítið götugrill fyrir heimamenn,“ segir
Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri
Fiskidagsins mikla á Dalvík, sem hefst
í dag og er haldinn í tíunda skipti. „Það
var Þorsteinn Már Aðalsteinsson sem
var búinn að ganga með þessa hug-
mynd í maganum áður en hann ræddi
við fiskverkendur um að skella út fiski
og svo kæmu heimamenn með grillið
niður á bryggju.“
Júlíus segir að hugmyndin hafi síðan
stækkað og ákveðið hafi verið að bjóða
öllum landsmönnum í mat. „Fyrsta
árið komu 5.800 manns í mat þannig
að frá upphafi hefur þetta verið sett
þannig upp. Markmiðið er að allt sé
frítt og menn komi saman, skemmti
sér og borði fisk. Við það markmið
höfum við staðið alla tíð,“ segir Júlíus
en rúmlega 36.000 manns sóttu Dalvík
heim á Fiskideginum mikla í fyrra.
Mikið hefur breyst að sögn Júlíusar
á þeim tíu árum frá því Fiskidagurinn
var fyrst haldinn hátíðlegur. „Fyrst
var þetta bara einn dagur milli klukk-
an ellefu og fimm,“ upplýsir Júlíus og
segir laugardaginn, sjálfan Fiskidag-
inn mikla, vera enn með sama sniði. Þá
er í boði fjöldi fiskrétta og skemmti-
dagskrá. Fyrstu þrjú árin var dagskrá-
in bara á laugardeginum. „Síðan hefur
teygst úr þessu með svokölluðu fiski-
súpukvöldi þar sem íbúar bjóða heim
til sín á föstudagskvöldinu á undan
Fiskideginum. Við erum með ýmsa
dagskrá orðið alla vikuna.“
Inntur eftir því hvað gert verði í til-
efni afmælisins segir Júlíus: „Það er
meiri dagskrá alla vikuna. Svo setj-
um við nýjungar inn á matseðilinn. Við
erum með stærstu pitsu á Íslandi sem
er fimm fermetrar eða 120 tommur og
stærsta súpupott landsins sem tekur
tólf hundruð lítra.“
Á laugardagskvöld verður dag-
skrá í boði Samherja. Þar verður
bryggjusöngur, Karlakór Dalvíkur
ásamt rokkhljómsveit með Beatles-
og Queen-tónlist og svo kemur Eyþór
Ingi Gunnlaugsson fram. „Dagskráin
endar með allsvakalegri flugeldasýn-
ingu í tilefni afmælisins. Hún er í boði
tveggja brottfluttra Dalvíkinga sem
voru hér í fyrra þegar flugeldasýning-
in fór fram og þeir urðu svo hrifnir og
voru tilbúnir til að gera enn betur í til-
efni af tíu ára afmælinu.“
En veistu um einhverja aðra en
heimamenn sem hafa komið í öll skipt-
in tíu? „Við vorum einmitt að finna
út úr því til þess að minnast á það á
hátíðarsviðinu á laugardaginn. Það
eru nokkrir sem hafa komið öll árin
og mjög margir eru búnir að koma í
átta ár.“
Júlíus segir suma þeirra sem komið
hafa í átta ár nú þegar mætta til Dal-
víkur og taka þátt í undirbúningnum.
„Þeir eru að pakka fiski og eru komn-
ir með ýmis verkefni. Fólk sem hafði
enga tengingu hingað en hreifst bara
af þessum krafti, fékk verkefni og
tekur bara þátt. Það er mjög skemmti-
legt.“ martaf@frettabladid.is
FISKIDAGURINN MIKLI: HALDINN Í TÍUNDA SINN
Bjóða landsmönnum í mat
KRAFTUR Á DALVÍK Júlíus Júlíusson segir upphaflegu hugmyndina á bak við Fiskidaginn hafa verið að halda lítið götugrill fyrir heimamenn.
MYND/FINNBOGI MARINÓSSON
MERKISATBURÐIR
1796 Hannes Finnsson Skál-
holtsbiskup andast. Hann
var einn menntaðasti Ís-
lendingur sinnar tíðar. Af
ritum hans má nefna Um
mannfækkun af hallær-
um á Íslandi.
1907 Ungmennafélag Íslands
stofnað en þriggja daga
sambandsþingi lýkur
þennan dag. Sjö ung-
mennafélög ganga í UMFÍ
og fyrsti formaður þess er
Jóhannes Jósefsson.
1984 Efri-Volta tekur upp nafn-
ið Búrkína Fasó.
1993 Alríkisdómari dæmir tvo
lögreglumenn frá Los
Angeles í þrjátíu mánaða
fangelsi fyrir að hafa brot-
ið á réttindum Rodneys
King.
BARACK OBAMA ER 49 ÁRA Í
DAG.
„Ég er ekki á móti öllum
stríðum. Það sem ég er á
móti eru heimskuleg stríð
og það sem ég er á móti eru
vanhugsuð stríð.“
Barack Obama er 44. for-
seti Bandaríkjanna. Obama
tók við embættinu 20. janúar
2009 og fékk friðarverðlaun
Nóbels seinni hluta síðasta
árs.
Handverkshátíð verður
haldin í Hrafnagilsskóla um
helgina og er nú haldin í átj-
ánda sinn.
Á annað hundrað sýnend-
ur undirbúa komu sína norð-
ur en ásamt þeim verður
fjöldi af hópum og félögum
á svæðinu. Verksvæði hand-
verksmanna verður litríkt,
með tískusýningum, kram-
búð, sirkushópi, blöðrulist
og andlitsmálun fyrir börn-
in.
Á útisvæði verður komið
upp söguþorpi en það eru
Gásahópur og Handraðinn/
Laufáshópur sem taka hönd-
um saman við að glæða fal-
legt útisvæði lífi. Ætlunin
er að sýna eins konar tíma-
vél þar sem tímabil land-
náms allt til dagsins í dag
er spannað í handverki.
Baðstofa og miðaldatjöld
þar sem tilheyrandi verk
verða viðhöfð í þessu spenn-
andi söguþorpi. Birgir Ara-
son í Gullbrekku mun sýna
rúning hátíðardagana, ullin
verður spunnin og unnin í
söguþorpinu.
Félag landnámshænsna
verður með sýningu og feg-
urðarsamkeppni. Kajak-
smíði og vélasýning setja
svo punktinn yfir i-ið.
Hátíðin stendur frá föstu-
degi til mánudags og er opið
frá 12 til 19 alla dagana.
Handverkshátíð í Eyjafjarðarsveit
Ásta Jóhannesdóttir var fyrsta konan sem synti
Viðeyjarsund á þessum degi fyrir 82 árum. Talið
er að Ásta hafi verið eina klukkustund og 56
mínútur á leiðinni.
Með Viðeyjarsundi er átt við sundleiðina frá
Viðey, oftast frá Viðeyjarbryggju og inn í Reykja-
víkurhöfn, við gamla slippinn. Sundleiðin er um
4,3 kílómetrar í beinni loftlínu.
Viðeyjarsundið á sér langa sögu. Fyrsta sundið
var synt af Benedikt G. Waage en hann fór frá
Viðey að Völundarbryggju í Reykjavík þann 6.
september 1914. Var þetta þá talið lengsta sund
sem synt hafði verið hér við land á síðustu
öldum. Benedikt var þekktur fyrir sundíþrótt sína
og tókst vel upp með sundið enda var logn og
spegilsléttur sjór meðan á því stóð. Líkt og Ástu
tók sundið Benedikt eina klukkustund og 56
mínútur. Síðan Benedikt fór Viðeyjarsundið hafa
35 manns þreytt það.
Þriðja konan til að synda milli eyjar og lands
var Þórdís Hrönn Pálsdóttir, sem fór það á mið-
vikudag í síðustu viku. Í millitíðinni hafði Helga
Haraldsdóttir synt þarna á milli árið 1959.
ÞETTA GERÐIST: 4. ÁGÚST 1928
Fyrsta konan syndir Viðeyjarsund
RÚNINGUR Sýndur verður rúningur á handverkshátíðinni í Hrafnagils-
skóla um helgina.