Fréttablaðið - 04.08.2010, Qupperneq 32
28 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
menning@frettabladid.is
8. ágúst klukkan 16.00
Næstkomandi sunnudag munu Signý
Sæmundsdóttir og Þórarinn Sigurbergs-
son flytja sonnettur eftir Shakespeare
við lög Olivers Kentish og ljóð eftir
Jónas Hallgrímsson við lög Atla Heimis
Sveinssonar í húsi skáldsins – Gljúfra-
steini í Mosfellsbæ. Tónleikar þessir eru
hluti af stofutónleikum Gljúfrasteins
sem haldnir eru á sunnudögum í sumar.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur og eru allir
velkomnir.
> Ekki missa af
Listamaður mánaðarins í ágúst
hjá SÍM er Heidi Strand. Hún
mun sýna átta textílmyndverk
í Hafnarstræti 16 út mánuð-
inn. Verkin á sýningunni eru
flest unnin úr þæfðri ull ásamt
ásaum og málun. Myndefnið
er sótt í hálendi Íslands en
listakonan hefur verið búsett
hér á landi síðan 1980.
Sigurður Fannar Guð-
mundsson gaf nýlega út
sína fyrstu skáldsögu sem
ber heitir Trúður – metsölu-
bók. Sigurður segir að rit-
höfundur hafi blundað í sér
frá barnæsku en hann hafi
svo strengt það áramótaheit
að gefa út bók.
„Í mér eins og svo mörgum Íslend-
ingum hefur blundað rithöfundur
frá því að ég var lítið barn. Síðan
gerist það um síðastliðin áramót að
rithöfundurinn brýst fram. Þegar
maður er búinn að vera svona
lengi á leiðinni að skrifa eitthvað
þá kemur efnið til manns og þetta
var það sem kom til mín,“ segir
Sigurður Fannar Guðmundsson.
Sigurður Fannar gaf nýlega út
sína fyrstu skáldsögu sem ber
heitið Trúður – metsölubók. Bókin
fjallar um verðandi metsöluhöf-
undinn Guðmund Þór sem rifjar
upp ævi sína og nálgast með því
tilgang lífsins. Guðmundur Þór er
nokkuð beiskur maður og nokkuð
gegnsósa af áfengi en það er í raun
rauði þráðurinn í bókinni.
„Þeir aðilar sem koma fram í
bókinni hafa allir spilað ákveðið
hlutverk með einum eða öðrum
hætti. Bókin er skáldsaga í raun-
sönnum búningi, í raun er þetta
lífið sjálft sett upp í skáldsögu,“
segir Siggi Fannar. Bók þessi er að
stórum hluta byggð á raunveruleg-
um atvikum og því hefur verið þó
nokkur spenna í kringum útgáfu
hennar. „Við getum orðað það
þannig að bókin hefur vakið mikla
forvitni og margir verið spenntir
að sjá hvort þeir hafi hlutverk í
bókinni. Þeir sem koma fram eru
allir sáttir og því eru engin leið-
indi,“ segir Siggi Fannar.
Sigurður gefur út bók sína sjálf-
ur og eins og er sér hann einn um
söluna á henni. Hann heldur úti
vefverslun á síðunni www.metsolu-
bok.is þar sem einungis einn hlut-
ur er til sölu, bókin sjálf.
linda@frettabladid.is
Gefur út skáldsögu byggða
á sönnum atburðum
SIGURÐUR FANNAR Gefur út skáldsögu í raunsönnum búningi.
Dagana 15.-22. ágúst næstkomandi mun sviðs-
listahátíðin artFart fara fram í Reykjavík. Hátíðin
hefur aldrei verið stærri en í ár og er því óhætt
að segja að hátíðin sé viðamesta sviðslistahátíðin
á Íslandi í dag.
Í ár er þema hátíðarinnar óhefðbundin rými og
mun hún fara fram um alla Reykjavík, til dæmis á
BSÍ, í Norðurpólnum, Útgerðinni, Elliðaárdalnum,
galleríum og kjöllurum.
Hápunktur ársins í ár er ókeypis vinnustofa
með breska listamanninum Richard DeDomen-
ici, sem hefur meðal annars verið sýnd í Tate
Modern, sýning norska leikhópsins Stella Polaris
á Menningarnótt, sýning sem var frumsýnd á
Ólympíuleikunum í Lillehammer, auk fjölda nýrra
innlendra og erlendra frumsýninga.
Í tilefni af þema hátíðarinnar mun fara fram í
fyrsta skipti í Reykjavík Public Space Programme,
sem er nýr hluti á artFart sem snýr að list í
almenningsrými. Í þeim hluta eru vinnustofur,
fyrirlestrar og þriggja vikna gestasvalir þar sem
tveimur listamönnum og einum listahópi verður
veitt aðstoð við að þróa ný verk í almennings-
rými. Árni Kristjánsson, Inga Maren Rúnarsdóttir
og hópurinn Kviss Búmm Bang munu njóta
aðstoðar við þróun sína. - ls
BSÍ sýningarstaður á artFart
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 04. ágúst 2010
➜ Tónleikar
12.00 Tónleikar í Selinu á Stokkalæk,
Rangárþingi ytra, þar sem þær Freyja
Gunnlaugsdóttir og Daniela Hlinkova
spila á píanó og klarinettu. Tónleikarnir
hefjast kl. 12.00.
12.00 Orgelandakt verður í Kristskirkju
í Landakoti kl. 12.00, en þar mun Sól-
veig Einarsdóttir spila á orgel. Aðgangur
er ókeypis og öllum frjáls.
20.30 Fiskidagurinn Mikli á Dalvík
hefst í dag. Að því tilefni verða tónleikar
með tónlist úr ýmsum áttum í Menn-
ingarhúsinu Bergi kl.20.30. Miðaverðið
er 2.000 kr.
21.00 Alþjóðlegi jazzkvartettinn heldur
tónleikar í Risinu (áður Glaumbar) í
kvöld kl. 21.00.
➜ Hátíðir
21.00 Dragkeppni Ísland verður haldin
í kvöld í Íslensku óperunni kl. 21.00.
Húsið opnar kl. 20.00. Miðaverð er
2.400 krónur.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Í sumar hafa verið haldnir árlegir sumartónleikar
Skálholtskirkju. Tónleikarnir eiga 35 ára afmæli
nú í ár, en fyrstu tónleikarnir voru haldnir 12. júlí
1975. Helgina 5.-7. ágúst verða tónleikarnir með
ítölsku sniði og verður margt áhugavert í boði.
Á fimmtudeginum verður verkið Regn eftir
Önnu Þorvaldsdóttur frumflutt með aðstoð
ýmissa listamanna. Laugardagurinn og sunnudag-
urinn verða síðan með sérstöku ítölsku móti þar
sem kammerkórinn Libera Cantoria Pisani frá
Lonigo á Ítalíu, undir stjórn Filippo Furla, flytur
ítalska endurreisnartónlist og íslenska og ítalska
nútímatónlist. Laugardagurinn hefst á erindi í
Skálholtskirkju um ítalska endurreisnartónlist
í umsjón Filippo Furlan. Síðan tekur við ítölsk
og íslensk kórtónlist undir yfirskriftinni Sacred
and profane. Laugardagurinn endar síðan á ítals-
kri endurreisnartónlist og 20. aldar verki fyrir
sembal – O beltà rara. Flytjandi er kammerkórinn
Libera Contoria Pisani undir stjórn Filippo Fur-
lan.
Á sunnudag verður flutt verkið Nótt og dagur
sem er úrval úr efnisskrám laugardagsins auk
tónverksins Tara´s Harp eftir Úlfar Inga Haralds-
son. Það er kammerkórinn Libera Contoria Pisani
sem flytur undir stjórn Filippo Furlan. - ls
Ítölsk helgi í Skálholtskirkju
SUMARTÓNLEIKAR Í SKÁLHOLTSKIRKJU verða haldnir í 35.
skipti í ár og í þetta sinn með ítölsku móti.
Næstkomandi laugardag, 7. ágúst,
verður Pönk á Patró haldið í Sjó-
ræningjahúsinu á Patreksfirði, í
annað sinn í sumar. Dagskráin er
glæsileg en það er hljómsveitin
Amiina sem fetar í fótspor hljóm-
sveitarinnar Pollapönk sem gerði
góða ferð á Patreksfjörð 26. júní
síðastliðinn. Þá sló tónlistarsmiðj-
an í gegn og Pollapönk samdi glæ-
nýtt lag með krökkunum sem var
svo frumflutt um kvöldið þegar
foreldrar mættu á kvöldtónleik-
ana. Amiina mun gera slíkt hið
sama og stjórna tónlistarsmiðju
en auk þess flytur hljómsveitin
frumsamda tónlist sína við sígild-
ar hreyfiklippimyndir Lotte Rein-
iger um þau Þyrnirós, Öskubusku
og Aladdín. Kvikmyndunum verð-
ur varpað á tjald og hljómsveitin
leikur síðan undir. Heiðurinn að
þessu verki eiga þær Sólrún Sum-
arliðadóttir, María Huld Markan
Sigfúsdóttir og Edda Rún Ólafs-
dóttir. Á eftir Amiinu mun hinn
ísfirski 7oi spila en hann hefur
gert það gott með frumlegu raf-
tónlistarpoppi og gefið út nokkrar
afbragðsgóðar plötur ásamt því að
hafa til dæmis selt tónlist sína til
Japans.
Frítt er inn á dagskrá og tón-
leika dagsins en 1.000 krónur kost-
ar fyrir fullorðna á kvöldtónleik-
ana. - ls
Amiina sér um Pönk
á Patró um helgina
PÖNK Á PATRÓ Nú á laugardaginn fer Pönk á Patró fram í annað sinn. Það verður
hljómsveitin Amiina sem mun sjá um skemmtunina í þetta sinn.
Leikbrúðusafn - Brúðuleikhús
Veitingar - Gjafavara
www.bruduheimar.is
Sími 530 5000
Opið í Borgarnesi alla
daga frá 10:00 til 22:00
L E I K S Ý N I N G
á sunnudaginn kl 14:00