Fréttablaðið - 04.08.2010, Side 36
32 4. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
22. þáttaröð Simpsons-fjöl-
skyldunnar hefst í septem-
ber. Eins og endranær verð-
ur Hollywood ekki langt
undan, en sjaldan hafa jafn
margir gestaleikarar verið
staðfestir áður en þáttaröð-
in hefst.
Fjölmargar stjörnur hafa þegar
tekið boðinu um að tala inn á
næstu þáttaröðina um Simpsons-
fjölskylduna. Engan skal undra,
þættirnir eru á meðal þeirra far-
sælustu sem sýndir hafa verið í
sjónvarpi. Þáttaröðin sem hefst í
september er sú 22. í röðinni og
fátt bendir til þess að síðasti þátt-
urinn fari í loftið í bráð.
Fyrsti þátturinn verður sýndur
26. september í Bandaríkjunum,
en ólíkar stjörnur leiða þá saman
hesta sína. Nokkrir krakkar úr
spútnikþættinum Glee tala inn á
fyrir krakka í sérstökum sköpun-
arsumarbúðum sem Lísa er send
í. Leiðbeinendurnir í sumarbúð-
unum eru engir aðrir en Bret
McKenzie og Jemaine Clement
sem allir ættu að þekkja úr þátt-
unum Flight of the Conchords.
Ef þú, lesandi góður, hefur ekki
horft á þættina ættirðu að drífa í
því. Þeir eru frábærir.
Á meðal annarra frægra gesta
í næstu þáttaröð Simpsons-fjöl-
skyldunnar eru Martha Stewart,
sem kemur fram í jólaþættinum,
og Joe Hamm, sem leikur fulltrúa
FBI í þætti þar sem Homer lendir
enn á ný í slagtogi við mafíósann
Fat Tony.
How I Met Your Mother-stjarn-
an Alyson Hannigan leikur dótt-
ur forfallakennara í þættinum
Flaming Moe. Skinner skólastjóri
gengur á eftir forfallakennaran-
um með grasið í skónum og reyn-
ir að koma dóttur hans og Bart
saman. Ekki rugla nafni þáttar-
ins saman við þáttinn Flaming
Moe‘s. Enda gera Moe og Smith-
ers tilraun til að breyta bar þess
fyrrnefnda í hommabar í nýrri
þættinum.
Forstjóri Facebook-samskipta-
fyrirbærisins, Mark Zuckerberg,
les inn á einn þátt, Halle Berry
afhendir Homer verðlaun, Paul
Rudd les inn fyrir sálfræðing sem
reynir að hjálpa Hómer að verða
betri faðir og Ricky Gervais snýr
aftur og tekur þátt.
Þá munu Russell Brand, Jonah
Hill, Rachel Weisz og Cheech &
Chong öll koma fram í þáttaröð-
inni, sem verður augljóslega þétt
skipuð.
atlifannar@frettabladid.is
Hollywood-brjálæði í Simpsons
Rapparinn Wyclef Jean, sem
flestir þekkja úr hljómsveitinni
Fugees, hefur staðið sem klettur
við hlið íbúa Haítí síðan hinn
hræðilegi jarðskjálfti eyðilagði
þar allt snemma á þessu ári. Nú
hefur rapparinn tekið væntum-
þykju sína á landinu skrefinu
lengra og hefur tilkynnt framboð
sitt til forseta í kosningum sem
fram fara í nóvember á þessu ári.
Samkvæmt heimildum er öll
pappírsvinna komin á hreint og
fjölskylda rapparans hefur lýst
yfir stuðningi sínum.
Wyclef í
framboð
RAPPARI SEM FORSETI Meðlimir Fugees
tvístrast í baráttunni því Pras stendur á
bak við annan frambjóðanda. Hvar ætli
Lauren Hill standi?
Breska söngkonan Cheryl Cole
þakkar læknunum sem læknuðu
hana af malaríuveirunni og íhugar
að gefa spítalanum peningagjöf sem
þakklætisvott. Cole sást í fyrsta
sinn opinberlega í vikunni en mán-
uður er síðan söngkonan hné skyndi-
lega niður í myndatöku og greindist
með malaríu í kjölfarið. Hún hefur
því tekið sér frí frá störfum næstu
sex vikurnar og aflýst öllu tónleika-
haldi og plötuútgáfu um tíma. Cole
hefur nú yfirgefið Bretland og farið
í frí til Los Angeles til að slappa af
og ná fyrri kröftum.
Fyrr á þessu ári skildi hún við
eiginmann sinn, fótboltamanninn
Ashley Cole, og hefur verið mikið
í bresku pressunni vegna þessa.
Einnig situr Cheryl Cole í dómara-
sæti í bresku X-faktor þáttunum við
hlið Simonar Cowell en hún hefur
nú tekið sér frí frá því vegna veik-
indanna.
Þakkar fyrir lífið
Tiger Woods ku vera í brúðkaupshugleiðingum þrátt
fyrir að skilnaður hans og Elinar Nordegren sé enn
ekki fullfrágenginn.
Kylfingurinn mun vilja kvænast fyrrum hjákonu
sinni, Rachel Uchitel, og stofna fjölskyldu með
henni en hann er afar ósáttur við þátttöku henn-
ar í raunveruleikaþættinum Celebrity Rehab þar
sem Uchitel hyggst vinna bug á eiturlyfjafíkn sinni.
„Rachel veit að hún er aðeins þekkt fyrir að vera
konan sem eyðilagði hjónaband Tigers Woods og
vonast eftir því að fólk fái að sjá hennar innri mann
í sjónvarpsþáttunum og taki hana í sátt áður en
hún giftist honum,“ var haft eftir heimildarmanni.
Woods skammast sín þó fyrir það að tilvonandi eig-
inkona hans verði þekkt sem fyrrum fíkill eftir að
sjónvarpsþættirnir verða sýndir. „Hann vill að hún
fari í meðferð, en ekki á svona opinberan hátt. Hann
er líka hræddur um að Rachel muni yfirgefa hann
um leið og hún nær fullum bata,“ sagði heimildar-
maðurinn.
Tiger vill kvænast að nýju
VILL GIFTAST Tiger Woods er sagður vilja giftast fyrrum hjá-
konu sinni, Rachel Uchitel. NORDICPHOTOS/GETTY
Mel Gibson á að hafa boðið fyrr-
verandi eiginkonu sinni, Robyn
Gibson, í rólegan kvöldverð fyrir
skemmstu og beðið hana um að
taka aftur saman við sig.
Hjónin enduðu þrjátíu ára sam-
band sitt árið 2006 eftir að mynd-
ir af Mel með annarri konu birt-
ust í tímaritum vestra. Líkt og
flestir vita þá stendur ferill Mels
Gibson völtum fótum vegna ásak-
ana fyrrverandi kærustu hans
um að hann hafi beitt hana líkam-
legu og andlegu ofbeldi. Robyn
er nánast eina manneskjan sem
hefur sýnt Mel opinberan stuðn-
ing og er hann henni afskaplega
þakklátur fyrir það. „Mel var
svo snortinn að hann bauð henni
út að borða á rólegum veitinga-
stað og bað hana að taka við sér
aftur. Honum brá þegar svarið
var afdráttarlaust „nei“,“ var haft
eftir heimildarmanni.
Enginn vill
Mel Gibson
Í VONDUM MÁLUM Mel Gibson á ekki
sjö dagana sæla. NORDICPHOTOS/GETTY
SAFNAR KRÖFTUM Söngkonan Cheryl
Cole er að jafna sig eftir að hafa sýkst af
malaríu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ALLIR MEÐ Í SIMPSONS
Félagarnir Russell Brand og Jonah
Hill tala inn á næstu þáttaröð
Simpsons-fjölskyldunnar sem er sú
22. í röðinni. Fegurðardísin Halle
Berry verður líka með ásamt hinni
snoppufríðu Alyson Hannigan. Þá
verða sprelligosarnir í Flight of the
Conchords ekki langt undan.
Hollywood stjarnan Nicolas Cage hefur
skyndilega dregið sig út úr nýju mynd Joels
Schumacher, Trespass, og það einungis
tveim vikum áður en upptökur áttu að hefj-
ast.
Stjarnan hafði gert mjög róttækar breyt-
ingar á framleiðslu myndarinnar þegar
hann bað um nýtt hlutverk. Upprunalega
átti hann að fara með hlutverk eiginmanns
Nicole Kidman en bað um að því yrði breytt
í hlutverk foringja mannræningjahóps.
Nú þegar hann hefur hætt við verkefnið
þurfa framleiðendur að finna nýja stjörnu í
stað Cage og það á innan við tveimur vikum.
Ef þeir finna ekki neinn sem hentar vel lítur
allt úr fyrir að hætt verði við myndina.
Leikarinn á að hafa yfirgefið leikara og
framleiðendur til þess að fara í frí til Bah-
ama-eyja. Þetta lítur einstaklega illa út fyrir
Nicolas Cage sérstaklega í ljósi þess að leik-
arinn skuldar einn og hálfan milljarð í skatt.
Nicolas Cage hættir við
Trespass á síðustu stundu
NICOLAS CAGE Einungis tveim vikum fyrir tökur hættir
leikarinn við verkefni og skilur alla eftir í súpunni.